Morgunblaðið - 19.05.2018, Page 46
46 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2018
DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is
GÆÐI OG ÞÆGINDI
SÍÐAN 1926
DUX 8008 – UNDRAVERÐUR SVEIGJANLEIKI
Háþróuð tækni, alvöru handverk, strangar prófanir og vandlega valin efni tryggja góðan nætursvefn
og passa upp á að líkaminn fái góða hvíld þegar þú þarf mest á því að halda.
Í þessum töluðum orðum er ég með fjölskyldunni á leiðinni fráKastrup-flugvelli í Kaupmannahöfn til Lundar í Svíþjóð að heim-sækja Unni Ósk dóttur mína sem eignaðist sína þriðju dóttur 6.
maí síðastliðinn. Ég hlakka til að sjá stúlkuna, mitt fjórða barnabarn,
og allt þetta segir að ég er gæfumaður,“ segir Magnús Guðmundsson,
forstjóri Landmælinga Íslands, sem er 58 ára í dag.
Magnús er uppalinn í Leirvogstungu í Mosfellsbæ, sonur Guð-
mundar Magnússonar og Selmu Bjarnadóttur. „Áhugi á landi og nátt-
úru vaknaði snemma. Eftir stúdentspróf fór ég í landafræði við Há-
skóla Íslands og þegar námi lauk árið 1983 fékk ég vinnu hjá
Landmælingum Íslands. Þar hef ég unnið síðan og hef sinnt mörgum
verkefnum, var til dæmis fjórtán sumur í að taka loftmyndir af land-
inu sem eru mikilvæg mælingagögn í kortagerð. Ég tók svo við starfi
forstjóra stofnunarinnar 1999, sem fyrir um 20 árum var flutt upp á
Akranes og þar hef ég búið síðan.“
Á Skaganum hefur Magnús tekið þátt í ýmsum félagsstörfum. Sat
eitt kjörtímabil í bæjarstjórn og er í dag formaður knattspyrnufélags
ÍA. „Við ætlum okkur stóra hluti í fótboltanum. Meistaraflokkur karla
spilar í dag í 1. deildinni en við ætlum okkur strax eftir þetta sumar
aftur upp í deild þeirra bestu. Annað kemur ekki til greina, og sama
gildir um stelpurnar í meistaraflokki sem eru líka í 1. deild,“ segir
Magnús sem á tvö uppkomin börn, fyrrnefnda Unni Ósk og Daníel.
Eiginkona hans er Guðrún Guðbjarnadóttir grunnskólakennari sem á
þrjú börn, Sólrúnu, Eyrúnu og Guðbjarna. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Mælingar Áhugi á landi og náttúru vaknaði snemma, segir Magnús.
Á leiðinni að sjá
fjórða barnabarnið
Magnús Guðmundsson er 58 ára í dag
J
óhann Gunnar Þorbergsson
fæddist 19. maí 1933 í
Reykjavík. Hann bjó lengst
af á Leifsgötunni og Bolla-
götunni. „Ég kynntist her-
mannalífinu í borginni, en hermanna-
braggar voru fjölmargir á Skólavörðu-
holti, og voru hermennirnir duglegir
að gefa okkur krökkunum súkkulaði.
Ég byrjaði að vinna sem sendi-
sveinn hjá Skipaútgerð ríkisins og þar
kynntist maður lífinu við höfnina þar
sem menn biðu eftir að fá vinnu. Sex-
tán ára fór ég að vinna í tívólíinu í
Vatnsmýrinni og þar var mikið fjör.
Ég stjórnaði hringekju og parísarhjól-
inu og vann á kvöldin og um helgar.
Þegar ég varð tvítugur fékk ég
vinnu hjá Steypustöðinni, keyrði
GMC-trukkana, gamla herbíla, og
sand- og malarflutningabíla sem voru
stórir og þungir bílar með strompi. Ég
vann einnig hjá BM Vallá meðan ég
Jóhann Gunnar Þorbergsson, fyrrverandi yfirlæknir – 85 ára
Fjölskyldan Jóhann Gunnar og Ágústa ásamt börnum og barnabörnum fyrir nokkrum árum.
Stýrði parísarhjóli og
keyrði bíla með strompi
Hjónin Jóhann Gunnar og Ágústa á góðri stundu erlendis.
Akureyri Bríet Rós
Bjarnadóttir fæddist
25. maí 2017 kl.16:27
á Akureyri. Hún vó
3.322 g og var 51 cm
löng. Foreldrar henn-
ar eru Birta Ýr
Baldursdóttir og
Bjarni Helgason.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is