Morgunblaðið - 19.05.2018, Side 47
var í læknanáminu og keyrði stóra
trukka þar. Maður kynntist því alls
konar störfum og mér finnst það hafa
mikið að segja að þekkja til fleiri
starfa.“
Jóhann Gunnar varð stúdent frá
MR 1953, cand.med. frá HÍ 1961, fékk
íslenskt lækningaleyfi 1963 og sænskt
lækningaleyfi 1966. Hann varð viður-
kenndur sérfræðingur í lyflækningum
í Svíþjóð 1969, og á Íslandi 1970 og
hlaut sérfræðiréttindi í gigtar-
sjúkdómum 1971.
Jóhann Gunnar var aðstoðarlæknir,
sérfræðingur og settur aðstoðaryfir-
læknir á sjúkrahúsum í Eskilstuna,
Karlskrona og Lundi í Svíþjóð 1963-
1971, sérfræðingur á stofu í Reykjavík
og Hafnarfirði 1971-1972. Hann var
sérfræðingur og síðan yfirlæknir við
Endurhæfingardeild/Grensásdeild frá
1973 og fram til 2003. Jafnframt
stundaði hann sérfræðistörf á
lækningastofu í Domus Medica.
Jóhann Gunnar sat í stjórn Gigt-
sjúkdómafélags íslenskra lækna í 25
ár, var formaður Heilbrigðisnefndar
Garðabæjar 1975-1982, sat í Lækna-
ráði Borgarspítalans 1981-1985, var
félagi í Rotaryklúbbnum Görðum og
sat í stjórn klúbbsins 1982-1983 og var
í stjórn Læknaráðs LSH 2001-2003.
Jóhann Gunnar er félagi í Rotary
Club of Westminster West í London,
sat í stjórn klúbbsins og tilnefndur for-
seti klúbbsins 2006 (President Elect).
Hann var gerður að heiðursfélaga í
klúbbnum 2007. Í nóvember 2013 var
hann útnefndur heiðursfélagi í Félagi
íslenskra gigtarlækna.
„Núna fer ég mikið í ferðalög innan-
lands og erlendis og tek mikið af
myndum þegar ég ferðast. Ég á ennþá
marga vini í Svíþjóð frá námsárunum
sem mér finnst gaman að heimsækja.
Svo hefur einn sonur minn verið að
bjóða mér í laxveiði. Ég er ekki mikill
veiðimaður en mér finnst gott að fara
út í náttúruna. Ég fylgist með barna-
börnunum tíu eins mikið og ég get en
tíminn líður alltof fljótt og mér finnst
svo margt vera ógert.“
Fjölskylda
Jóhann Gunnar er kvæntur Ágústu
Óskarsdóttur, f. 13.2. 1940, fyrrver-
andi stjórnarráðsfulltrúa í utanríkis-
þjónustunni. Foreldrar hennar voru
hjónin Ásta Einarsdóttir, f. 7.2. 1919,
d. 23.9. 2002, húsmóðir og Óskar Óla-
son, f. 7.11. 1916, d. 14.4. 1994, yfirlög-
regluþjónn í Reykjavík.
Synir Jóhanns Gunnars og Ágústu
eru: 1) Óskar Þór, f. 27.8. 1960, læknir
PhD, sérfræðingur og klínískur pró-
fessor í krabbameinslækningum við
LSH, kvæntur Helgu Gunnlaugs-
dóttur, f. 24.9. 1963, PhD. matvæla-
verkfræðingi hjá Matís. Eiga þau
börnin Kristínu, f. 2.10. 1992, iðnaðar-
verkfræðing, starfar hjá Isavia, og
Daníel, f. 25.5. 1999, menntaskóla-
nema í MR; 2) Kristinn, f. 3.5. 1964,
rafeindavirki hjá Inter ehf., kvæntur
Hallfríði Bjarnadóttur, f. 30.8. 1967,
fulltrúa á fjármálasviði N1. Eiga þau
börnin Bjarna Heimi, f. 29.6. 1994, há-
skólanema, Birnu Ósk, f. 5.7. 2000,
nemanda í VÍ, og Ágústu Helgu, f.
17.4. 2003, nemanda í Hagaskóla,
Reykjavík; 3) Ólafur Einar, f. 7.6.
1967, cand.oecon. HÍ, MBA BI Osló,
viðskiptafræðingur, stjórnandi
viðskiptaþróunar hjá Union Marine
Management Services (UMMS) í
Osló, kvæntur Helgu Guðmunds-
dóttur, f. 22.4. 1966, lækni og PhD,
nýrnasérfræðingi við Háskólasjúkra-
húsið Ullevål í Osló. Eiga þau börnin
Ástu Sól, f. 10.8. 1992, læknanema og
Óskar, f. 9.4. 1994, BS í viðskiptafræði,
starfar við eignaumsýslu hjá Union
Gruppen í Osló og er hann atvinnu-
maður í handbolta; 4) Jóhann Gunnar
f. 6.3. 1973, löggiltur endurskoðandi og
starfar sem fjármálastjóri, kona hans
er Anna Vigdís Kristinsdóttir, f. 3.5.
1972, viðskiptafræðingur og lauk
meistaranámi í endurskoðun frá HÍ.
Eiga þau börnin Kristin Ólaf, f. 15.12.
2003, nemanda í Garðaskóla, Vigdísi
Rut, f. 15.10. 2007 og Jóhann Gunnar,
f. 10.8. 2009, bæði nemendur í Hof-
staðaskóla í Garðabæ.
Bróðir Jóhanns Gunnars er Kjartan
Oddur, f. 2.7. 1936, tannlæknir.
Foreldrar Jóhanns Gunnars voru
hjónin Guðríður Þórdís Sigurjóns-
dóttir, f. 13.4. 1911, d. 4.4. 2001, hús-
móðir og Þorbergur Kjartansson, f.
26.8. 1891, d. 20.4. 1979, kaupmaður í
Reykjavík.
Jóhann Gunnar Þorbergsson
Kristín Jónsdóttir
húsfreyja á Bíldudal
Kristján Kristjánsson
skipasmiður á Bíldudal
Hjálmfríður Marsibil Kristjánsdóttir
húsfr. í Rvík
Sigurjón Kristjánsson
vélstjóri í Rvík
Guðríður Þórdís Sigurjónsdóttir
húsfreyja í Rvík
Guðríður Torfadóttir
húsfr. í Þorgeirsfelli,
síðar í Kanada
Kristján Sigurðsson
bóndi í Þorgeirsfelli í
Staðarsveit, síðar í Kanada
Runólfur kjartansson
kaupmaður í Reykjavík
Kristján Sigurjónsson yfirvélstjóri
hjá Landhelgisgæslunni
Sigurgeir Sigurjónsson hrl. í Reykjavík
Sigurlaug Vigfúsdóttir
húsfreyja í Holti
Runólfur Jónsson
bóndi og hreppstjóri
í Holti á Síðu
Oddný Runólfsdóttir
húsfreyja í Skál og á Velli
Kjartan Ólafsson
bóndi í Skál á Síðu, síðar á Velli í Hvolhr., Rang.
Jón Kjartansson ritstjóri Morgunblaðsins,
sýslumaður í Vík í Mýrdal og alþm.
Sigurlaug Jónsdóttir
húsfreyja í Hörgslandi
Ólafur Pálsson
bóndi og alþingismaður í Hörgslandi, V-Skaft.
Úr frændgarði Jóhanns Gunnars Þorbergssonar
Þorbergur Kjartansson
kaupmaður í Rvík
ÍSLENDINGAR 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2018
Birgir Finnsson fæddist 19. maí1917 á Akureyri. Foreldrarhans voru Finnur Jónsson,
alþingismaður og ráðherra, f. 1894, d.
1951, og Auður Sigurgeirsdóttir, f.
1888, d. 1935.
Fjölskylda Birgis flutti frá Akur-
eyri til Ísafjarðar árið 1920 þegar fað-
ir hans gerðist póstmeistari þar.
Birgir lauk stúdentsprófi frá MA
1937 og hóf þá um haustið nám í hag-
fræði við Stokkhólmsháskóla, en
hætti námi þegar heimsstyrjöldin
síðari braust út.
Birgir hafði á sumrum annast
síldarútgerð og söltunarstöð Sam-
vinnufélags Ísfirðinga á Siglufirði og
gerði það áfram til ársins 1955. Hann
sá einnig um afgreiðslu fiskflutninga-
skipa til Englands fram til 1945 þegar
stríðinu lauk. Það ár tók hann við
stöðu framkvæmdastjóra Samvinnu-
félagsins og gegndi henni til 1961.
Hann hafði með höndum umboð
Brunabótafélags Íslands 1954-1970
og var vararæðismaður Svíþjóðar á
Ísafirði 1958-1970.
Birgir gekk ungur til liðs við Al-
þýðuflokkinn. Hann sat í bæjarstjórn
Ísafjarðar 1942-1966 og var forseti
bæjarstjórnar í tíu ár. Ritstjóri Skut-
uls var hann 1949-1971.
Birgir var alþingismaður 1959-
1971. Fyrsta kjörtímabilið var hann
annar varaforseti sameinaðs Alþingis
en næstu tvö var hann forseti samein-
aðs Alþingis. Birgir starfaði í atvinnu-
tækjanefnd 1956-1961 og ýmsum
fleiri nefndum. Hann sat allsherjar-
þing Sameinuðu þjóðanna 1961 og
1971. Árin 1967-1986 var hann í
stjórn Samábyrgðar Íslands á fiski-
skipum. Hann var í Síldarútvegs-
nefnd 1971-1973 og 1980-1991, og var
formaður eða varaformaður hennar.
Birgir kvæntist Arndísi Árnadótt-
ur, f. 22.5. 1921, d. 25.6. 2008, árið
1944 og bjuggu þau í Neðstakaupstað
á Ísafirði. Börn þeirra eru Auður Þor-
björg, Finnur, Arndís og Björn. Þeg-
ar þingsetu Birgis lauk fluttu þau
hjónin búferlum til Reykjavíkur og
hófu bæði störf á Endurskoðunar-
skrifstofu Eyjólfs K. Sigurjónssonar.
Birgir lét af störfum þar árið 1993.
Birgir lést 1. júní 2010.
Merkir Íslendingar
Birgir
Finnsson
Laugardagur
100 ára
Kristín Helgadóttir
90 ára
Guðrún Guðjónsdóttir
Hólmfríður Bjarnadóttir
Magnús Guðmundsson
85 ára
Guðrún Gréta Tómasdóttir
Jóhann Gunnar Þorbergss.
Sigríður Höskuldsdóttir
80 ára
Valgerður Guðmundsdóttir
75 ára
Alda Hermannsdóttir
Björn Jóhannsson
Jóhann Hjartarson
Kristján Gunnarsson
Ólafur Engilbertsson
70 ára
Áki Jónsson
Guðfinna E. Thordarson
Guðmundur Árnason
Jón Örn Thordarson
Linda Arvidsdóttir
Ólafur Vilbertsson
Sigrún Sól Ólafsdóttir
Þuríður María Hauksdóttir
60 ára
Ásgrímur Skarphéðinsson
Gréta Dröfn Þórðardóttir
Guðbjörg María Garðarsd.
Heiðar Sigurðsson
Ingólfur Þórisson
Jón Andrjes Hinriksson
Kristjana Skúladóttir
Laufey Skúladóttir
Signý Jónsdóttir
Smári Ragnarsson
50 ára
Birgit Raschhofer
Bryndís Sigríður Eiríksd.
Erna Björk Gestsdóttir
Freyr Sverrisson
Guðbjörg Sigurgeirsdóttir
Hallgrímur I. Þorláksson
Kristín Þorgeirsdóttir
Lilja Guðrún Kjartansdóttir
Petra Bieler
Ragnheiður Sigurbjörnsd.
Sólveig B. Jóhannesdóttir
Þorgerður P. Kristinsdóttir
Þórður Björnsson
40 ára
Anita Björk Sveinsdóttir
Arnfríður Björg Sigurdórsd.
Auður Eysteinsdóttir
Björn Helgason
Hallgrímur Eymundsson
Jensína Kristín Gísladóttir
Kolbrún Benediktsdóttir
Lilja Jónsdóttir
Orri Páll Jóhannsson
Ólafur Ólafsson
Þorbjörn Gísli Ómarsson
30 ára
Andri Lima
Auður Böðvarsdóttir
Deivydas Andrulis
Eyrún Sævarsdóttir
Georg Haraldur Kristinsson
Gunnar Guðmundsson
Halldór Fannar Júlíusson
Jóhanna Lind Þrastardóttir
Kristyna Svetlikova
Monika Rapkiewicz
Rachel Petra Mercer
Slawomir Majkrzak
Hvítasunnudagur
90 ára
Anna Magnúsdóttir
85 ára
Ásgeir B. Ellertsson
Hólmfríður Ágústsdóttir
Ingibjörg U. Sigmundsd.
80 ára
Bernhard Schmidt
Dóra Guðrún Sigfúsdóttir
Guðmundur Theódórsson
Maja Veiga Halldórsdóttir
Ólafur Sigfússon
Steinar Jónsson
Þorbergur Þórðarson
75 ára
Björn Jóhannsson
Elín Þórdís Elísdóttir
Geir Birgir Guðmundsson
Guðmundur Vilhelmsson
Haukur Már Haraldsson
Hulda Fjóla Magnúsdóttir
Lilja Magnúsdóttir
Ólafur Pétursson
Sveinn Kjartansson
70 ára
Anna Björnsdóttir
Edda Ottadóttir
Eggert Lárusson
Elín Ágústa Sigurgeirsd.
Guðlaug Helga Hálfdanard.
Hilmar Þorvaldsson
Richard Olsen
Tryggvi Aðalsteinsson
60 ára
Auður Þórólfsdóttir
Árni Friðrik Guðmundsson
Guðbjörg Þóra Davíðsdóttir
Guðmundur H. Ögmundss.
Guðni Páll Birgisson
Halldór Forni Gunnlaugss.
Helga Haraldsdóttir
Ólafía Guðrún Ragnarsd.
Ólafur Ingi Ólafsson
50 ára
Anney Ágústsdóttir
Árni Örn Bergsveinsson
Ásmundur Kristb. Örnólfss.
Bára Hafsteinsdóttir
Bryndís Björk Hólmarsd.
Bryndís Guðjónsdóttir
Danut Tamas
Eiríkur Pálsson
Hermann Björgv. Kolbeinss.
Inese Babre
Jose E. Lopez R. Rodriguez
Kolbrún Matthíasdóttir
Laufey Þóra Friðriksdóttir
Margrét Ragnarsdóttir
Ólafur Helgi Kristjánsson
Sigríður Helga Gunnarsd.
40 ára
Adrian Gustaw Wraclawek
Bylgja Dís Erlingsdóttir
Dariusz Józef Marczak
Magdalena M. Smialkowska
Manuel Plasencia Gutierrez
Pawel Kwiatkowski
Sigrún Gréta Heimisdóttir
Þórður Sighvatsson
30 ára
Aleksandar Milenovich
Anna Katarzyna Biel
Arna Rannv. Guðmundsd.
Arnar Snædal
Arnþór Ingi Hlynsson
Berglind Gunnarsdóttir
Bjarki Ólafsson
Brynjar Þorbjörnsson
Elín Kristín Klar
Frederikke Bang
Gísli Freyr Brynjarsson
Grétar Þór Traustason
Halldóra Lind Guðlaugsd.
Hörður Rafnsson
Íris Ósk Sigurðardóttir
Jóhannes Axelsson
Líf Anna Nielsen Harðard.
Magnús Ingvar Bjarnason
Razvan-Constantin Alecsa
Sara Brekkan
Sigríður Soffía Sigurðard.
Sigurbjörg Margrét Lárusd.
Suthathip Thongdicharoen
Thea Theódórsdóttir
Tinna Ýr Gunnarsdóttir
Til hamingju með daginn