Morgunblaðið - 19.05.2018, Síða 49
DÆGRADVÖL 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2018
86
ÁRA
Starfsmannafatnaður
fyrir hótel og veitingahús
Hótelrúmföt og handklæði
fyrir ferðaþjónustuna
Eigum allt fyrir:
• Þjóninn
• Kokkinn
• Gestamóttökuna
• Þernuna
• Vikapiltinn
• Hótelstjórnandann
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | sími 525 8210 | eddaehf@eddaehf.is | www.eddaehf.is
Allt lín fyrir:
Hótelið • Gistiheimilið
Bændagistinguna • Airbnb
Veitingasalinn • Heilsulindina
Þvottahúsið • Sérverslunina
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Hristu af þér alla hræðslu og helltu
þér í það sem þig langar mest að gera. Ef þú
ferð ofan í saumana á heimilisbókhaldinu
finnurðu margt sem mætti betur fara.
20. apríl - 20. maí
Naut Óvænt uppákoma verður þess valdandi
að gamlar minningar koma upp á yfirborðið.
Það er komið að skuldadögum, gerðu hreint
fyrir þínum dyrum.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það er hætt við að þið lendið í deil-
um við systkini ykkar eða aðra ættingja. Þú
ert í startholunum hvað varðar framkvæmdir
í garðinum.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú munt sennilega lenda í deilum við
yfirmenn þína eða aðra yfirboðara í dag, en
ekki óttast það, þú hefur heilmikið til þíns
máls. Heima fyrir er allt í lukkunnar vel-
standi.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Að reyna að breyta hegðun einhverra
annarra er þolinmæðisverk, ef það þá tekst.
Ekki þræla þér út í vinnunni.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Bíddu með stórinnkaup til mán-
aðamóta. Er vegabréfið þitt í gildi? Athugaðu
það í tíma fyrir sumarfríið. Vinur leitar skjóls
hjá þér.
23. sept. - 22. okt.
Vog Vertu í mátulegri fjarlægð frá öllum leið-
indaskjóðum. Maður á að forðast fólk sem
hefur slæm áhrif á mann. Reyndu að sníða
þér stakk eftir vexti í peningamálum.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Leggðu þig fram um að auka
jafnvægi í lífi þínu. Samskipti við stofnanir
og stjórnvöld munu ganga vel og bæta hag
þinn.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þér mun veitast auðveldara að
stjórna þínum mönnum ef þú kemur fram
við þá eins og jafningja. Byrjaðu á því að losa
þig við dót sem þú þarft ekki á að halda.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú ert að springa úr snjöllum, nýj-
um og óvenjulegum hugmyndum í dag. Hvort
sem þú vilt draga úr kostnaði eða auka
tekjur þínar lofa hugmyndir þínar góðu.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú gætir verið á hlaupum í dag
fyrir einhvern annan, og þér er alveg sama.
Frá og með deginum í dag er tími kominn til
að stíga skref fram á við skrá sig í nám sem
þig hefur dreymt um lengi.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Reyndu ekki að þvinga fram sættir
því þær koma af sjálfu sér með tímanum.
Það fer verst með þig ef þú getur ekki fyr-
irgefið öðrum.
Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson:
Þéttur botn og þrýstinn er.
Þetta er kot í hreppnum.
Einnig þjó á þegnum ver.
Þetta er tota á leppnum.
Helgi Seljan svarar: „Eftir hug-
ans japl og jaml og fuður varð þetta
til:
Rímið heimtar rokna skass,
reynist vindur úti hvass.
Ef þetta er ekki rækalls rass
rétt og slétt ég mæli pass.
Helgi R. Einarsson á þessa lausn:
Ég vísnahornið stoltur styð,
þótt stundum segi pass.
Hér kotrassa ég kannast við,
kvenna og lepparass.
Sjálfur skýrir Guðmundur gát-
una þannig:
Rass er botn á rekkum hér.
Rass er kot í hreppnum.
Rass á buxum rekka er.
Rass er tota á leppnum.
Þá er limra:
Hann Simmi í flokki fimra
var fótunum sífellt að mimra
og rann svo á rassinn,
rækarls hjassinn,
en þetta er ljómandi limra!
Og loks nýja gáta eftir Guðmund:
Sólin guðar gluggann á,
gátu nýja semja má,
vík ei þeirri venju frá
í Vísnahornið sendi þá:
Betri en kelda ávallt er.
Oft við torfverk nýtist mér.
Gjarnan er í glímu beitt.
Getum fiskinn á hann veitt.
Helgi lét þessar limrur fylgja
sínu svari, – „Varist sterana“:
Sterana átti’ ann í stöflunum
og styrktist vel af þeim töflunum.
En er of margar át,
hann alveg varð mát
og gekk að lokum af göflunum.
Og síðan „Óþarfa áhyggjur“:
Farin er hún frá ’onum,
nú flestir einsemd spá ’onum,
sem óþarft er
með öllu hér
því upp er tippið á ’onum.
„Leikum okkur“ segir Pétur
Stefánsson:
Í lífinu skaltu leika þér,
láta á súðum vaða,
því ævitíminn framhjá fer
á feikimiklum hraða.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Betri er brók
lasin en ber rass
Í klípu
„ÆFINGIN ER SEINNA UM DAGINN.
ÞETTA ER FORÆFINGIN.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÉG FRÉTTI AÐ ÞÚ HEFÐIR VERIÐ AÐ FÁ
ÞÉR NÝJAN HUND.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að lofa þína ástkæru
Meyju.
SÉRSTAKLEGA
HVERNIG
HLUTIRNIR
LYKTA
AÐ EIGA KÆRUSTU BREYTIR
ÖLLU, GRETTIR
HVERNIG HLUTIRNIR BRAGÐAST,
HVERNIG HLUTIRNIR LYKTA
ÉG ÞARF AÐ SKIPTA
OFTAR UM SOKKA
MENN, LÍTIÐ Á OKKUR
SEM LIÐ Á LEIÐINNI Í
LEIK!
OG HUGSIÐ UM MIG
SEM ÞJÁLFARANN
YKKAR!
HEY, ÞJÁLFI! EF VIÐ VINNUM ORRUSTUNA,
MUNTU SPLÆSA PÍTSU Á OKKUR ALLA?
Víkverja fannst ekki gaman aðhorfa á forkeppni Eurovision
að þessu sinni og horfði reyndar
bara á aðra þeirra, þá fyrri þegar
Ísland tók þátt. Ari stóð sig með
sóma en Víkverji var ekki hrifinn
af laginu. Sviðsetningin hefði líka
mátt vera betri því Eurovision er
þrátt fyrir allt keppni sem fram
fer ekki aðeins á staðnum heldur
ekki síður í sjónvarpi og hinar
þjóðirnar notfærðu sér miðilinn í
mun meira mæli.
x x x
Sumt var dýrt eins og átta millj-óna kjóll sópransöngkonunnar
frá Eistlandi sem sýndi myndir og
skipti litum en hann gerði það
samt að verkum að atriðið fór
ekkert framhjá manni. Annað var
mun ódýrara eins og textabrot
Ítalanna sem voru sýnd á ýmsum
málum. Í Eurovision er nefnilega
ekki nóg að vera með fallegan
söng heldur verður atriðið sjálft
að vera eftirminnilegt á einhvern
hátt.
x x x
Fjölskyldan sleppti því að horfaá seinna undanúrslitakvöldið
og lét nægja að horfa á úrslitin.
Þrátt fyrir að þrjú börn séu á
heimilinu var áhuginn einna mest-
ur hjá Víkverja sjálfum. Honum
finnst gaman að velta fyrir sér
mismunandi menningu landa og
hvað þeim finnist töff og áhuga-
vert. Stigakeppnin hefur í gegnum
tíðina endurspeglað smekk land-
anna og hefur því verið gaman að
fylgjast með henni.
x x x
Núna er búið að eyðileggjaþessa skemmtun fyrir manni
því fulltrúar landanna lesa ekki
lengur upp stig fólksins heldur
stigin sem dómnefndir landanna
gefa.
x x x
Misræmið í þessum tveimurstigagjöfum var mikið og sér-
staklega áberandi munurinn hjá
tveimur lögum sem féllu í kramið
hjá fjölskyldunni, framlagi Tékk-
lands og Danmerkur.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels, því
að hann hefur vitjað lýðs síns og búið
honum lausn.
(Lúk: 1.68)