Morgunblaðið - 19.05.2018, Qupperneq 50
50 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2018
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Öfgarokkið spretturnefnilega svo ljómandi velhér á landi elds og ísa.
Þurrkatíð kemur endrum og
eins, eðlilega, en angar þessa
eins og dauðarokkið, svartmálm-
urinn og harðkjarninn þrífast
venjulega vel. Senur koma og
fara, kynslóðaskipti eiga sér
stað, en þorsti Íslendinga í eitt-
hvað hratt, hátt og grimmt er
mikill, eins og reyndar víðast
Dauðarokkið lifir
hvar annars staðar á Norður-
löndum.
Svartmálmurinn er t.d. við
einstaklega góða heilsu nú um
stundir en mig langar til að fjalla
sérstaklega um dauðarokkið í
þessum pistli, sem er við sæmileg-
ustu heilsu sömuleiðis. Við höfum
séð nokkrar bylgjur koma og fara,
fyrsta bylgjan skall á upp úr 1990
(Sororicide o.fl.) og sú næsta reis
á að giska fimmtán árum síðar
(Severed Crotch o.fl.). Í dag fara
með himinskautum m.a. Cult of
Lilith, Grave Superior, Narthraal,
Nexion, Úlfúð, Gruesome Glory og
Devine Defilement, svo eitthvað sé
nefnt. Og mektarsveitin Beneath,
sem verður nú gerð að sérstöku
umfjöllunarefni.
Sveitin var stofnuð veturinn
2007-2008 og hefur haft á að
skipa fjölda manns í gegnum tíð-
ina, m.a. nokkrum af hetjum
fyrstu bylgjunnar. Stuttskífan
Hollow Empty Void kom svo út
2010 á vegum Mordbrann Musikk
en fyrsta breiðskífan, Enslaved by
Fear, kom út árið 2012 á Unique
Íslendingar, eins og aðrar Norðurlandaþjóðir,
eru hallir undir öfgarokk. Hér verður rýnt í
dauðarokkssenu dagsins í dag auk þess sem
nýjasta verk Beneath er sett undir smásjána.
Bleikur og grænn er heiti sýningar á
Anitu Hirlekar sem verður opnuð í
Listasafninu á Akureyri - Ketilhúsi í
dag, laugardag, kl. 15. Sýningin er á
báðum hæðum Ketilhússins.
Í tilkynningu um sýninguna segir
að í hugmyndafræði Anítu sameinist
handverk og tískuvitund með ein-
kennandi hætti. Listrænar lita-
samsetningar og handbróderaður
stíll séu áberandi þættir í hönnun
hennar.
Þá er sagt vel við hæfi að nota orð-
færi listfræðinnar þegar hönnun
Anitu er skoðuð. Anita sækir inn-
blástur í myndlist og tekst á við
verkefni sín á forsendum hennar.
„Vísun til myndhöggvarans er til að
mynda ekki fráleit þegar horft er til
Anitu; sniðin hennar eru gjarnan
skúlptúrísk. Þau taka sitt eigið form
en fylgja ekki endilega líkamanum.“
Aníta Hirlekar lauk árið 2012 BA-
námi í fatahönnun með áherslu á
textílprent og síðan MA-gráðu í
textílhönnun fyrir tískufatnað frá
Central Saint Martins í London árið
2014. Hún hefur tekið þátt í fjölda
sýninga bæði á Íslandi og erlendis,
meðal annars á tískuvikunum í
London og París, í Espoo Museum
of Modern Art í Finnlandi og í
Hönnunarsafni Íslands. Aníta var
tilnefnd til Menningarverðlauna DV
árið 2015 og hönnun hennar var í
forvali fyrir Hönnunarverðlaun Ís-
lands 2015. Hún hlaut Fashion
Special Prize í International Talent
Support hönnunarkeppninni á Ítalíu
árið 2014.
Sýningin stendur í allt sumar, til
16. september og verður opin alla
daga frá kl. 10 til 17.
Anita Hirlekar
sýnir í Ketilhúsinu
Listræn hönnun Handverk og
tískuvitund sameinast í verkum
Anitu Hirlekar sem opnar sýningu í
Listasafninu á Akureyri í dag.
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Samþykkt borgarráðs á fimmtudag
um viljayfirlýsingu á milli Reykjavík-
urborgar og hjónanna Unu Dóru
Copley og Scott Jeffries, um að sett
verði á fót listasafn sem beri nafn
Nínu Tryggvadóttur (1913-1968),
móður Unu Dóru, hefur vakið verð-
skuldaða athygli.
Borgin mun fá hið
viðamikla lista-
verkasafn Nínu að
gjöf, auk verka
eftir eiginmann
hennar, lista- og
vísindamanninn
Al Copley (1910-
1992), og verk eft-
ir aðra listamenn
sem þau áttu. Vel
á annað þúsund
listaverk alls.
Viljayfirlýsingin felur í sér að Una
Dóra og Scott arfleiða Reykjavík-
urborg að fasteignum sínum á Man-
hattan og í Reykjavík.
Safnið í nafni Nínu á að verða sjálf-
stæð eining, með sjálfstæðri stjórn og
framkvæmdastjóra. Í safninu munu
verða fastasýningar á verkum Nínu
auk annarrar fjölbreyttrar starfsemi
á sviði myndlistar. Stefnt er að því að
finna safninu stað í Hafnarhúsinu og
veitti borgarráð borgarstjóra heimild
til að undirrita viljayfirlýsingu á milli
Reykjavíkurborgar og Faxaflóahafna
um kaup á eignarhlut þeirra í Hafn-
arhúsinu. Miðað skal við að 2/3 hlutar
þess rýmis sem keypt verður af
Faxaflóahöfnum verði nýttir undir
safn Nínu Tryggvadóttur og Lista-
safn Reykjavík, sem þegar er í
stórum hluta hússins, fái aukið pláss.
Nína var einn merkasti myndlist-
armaður þjóðarinnar á liðinni öld,
hvort sem horft er til fígúratífra
verka hennar frá fjórða og fimmta
áratugnum, mósaíkverka eins og í
Skálholtskirkju og á Tollhúsinu, eða
áhrifamikilla abstrakverkanna frá
seinni hluta ferilsins.
„Flytja Nínu aftur heim“
„Þetta er stórmerkilegur við-
burður í íslenskri menningarsögu og
frábært að fá tækifæri til að flytja
Nínu aftur heim,“ segir Sigurður
Björn Blöndal, formaður borgarráðs,
en hann undirritaði viljayfirlýsinguna
með Unu Dóru og Scott í New York.
„Gjöf þeirra Unu Dóru og Scott er
höfðingleg og ég efast ekki um að
Reykjavíkurborg muni gera allt til að
sýna Nínu Tryggvadóttur þá virðingu
sem hún á skilið. Með þessari höfð-
inglegu gjöf skapast jafnframt ein-
stakt tækifæri til að gera Hafnar-
húsið að listamiðstöð sem á eftir að
auðga menningarlíf Íslendinga enn
frekar og efla miðborgina.“
Sigurður Björn segir hjónin hafa
komið að máli við borgaryfirvöld síð-
asta haust, með tillögu um safn með
verkum Nínu, og síðan hafi hún verið
rædd. Hjónin hafi talað um að þau
vildu „flytja Nínu aftur heim“.
Hann segir þetta mikla gjöf og það
felist ábyrgð í því að taka við henni.
„Þetta verður sjálfstæð stofnun með
sjálfstæðri stjórn,“ svarar hann þeg-
ar spurt er hvort safnið með verkum
Nínu verði hluti af Listasafni Reykja-
víkur í Hafnarhúsinu. „Hún hefur
listrænt og fjárhagslegt sjálfstæði.“
Aðilar viljayfirlýsingarinnar gefa
sér ríflega eitt ár til þess að ganga frá
endanlegum samningum um fyrir-
komulag gjafarinnar og stofnun
safnsins. Una Dóra og Scott hyggjast
arfleiða borgina að fasteignum sínum
að sér gengnum og styður það rausn-
arlega við stofnun safnsins.
„Fyrsti hluti verkanna kæmi þegar
húsnæðið yrði tilbúið og miðað er við
að það verði um 1.500 verk sem sér-
staklega endurspegli feril Nínu alveg
frá námsárum; glerlistaverk, teikn-
ingar, málverk, og geti staðið undir
föstum sýningum sem og rann-
sóknum.“ Með tímanum kæmi af-
gangur verkanna í safnið, eftir Nínu,
Al Copley og aðra. „Við leggjum öll
áherslu á að þetta safn muni ekki
bara sýna verk Nínu Tryggvadóttur
og Al Copley heldur verður þetta lif-
andi, sterk og öflug listamiðstöð með
jafnt sýningum genginna listamanna
sem samtímalistamanna,“ segir Sig-
urður Björn.
Viljayfirlýsing Sigurður Björn Blöndal, formaður borgarráðs, Una Dóra Copley og Scott Jeffries við undirritun
viljayfirlýsingarinnar á heimili hjónanna í East Village í New York. Listamaðurinn Hrafnhildur Arnardóttir –
Shoplifter stendur fyrir aftan þau, við eitt hinna fjölmörgu málverka eftir Nínu Tryggvadóttur á heimilinu.
Verður lifandi, sterk og
öflug listamiðstöð
Stefnt á safn um Nínu Tryggvadóttur í Hafnarhúsinu
Nína
Tryggvadóttir
Söfn • Setur • Sýningar
LISTASAFN ÍSLANDS
Sunnudagur 20. maí: 2 fyrir 1 af aðgangseyri
Heiðnar grafir í nýju ljósi
– ný sýning um fornleifarannsókn á Dysnesi við Eyjafjörð
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár grunnsýning
Þjóðminjasafnsins
David Barreiro – Langa blokkin í Efra Breiðholti í Myndasal
Karl Jeppesen – Fornar verstöðvar á Vegg
Prýðileg reiðtygi í Bogasal
Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru
Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi
Síðasta sýningarhelgi afmælissýningar Þjóðskjalasafns Íslands:
Spegill samfélagsins 1770 - Almúgi og embættismenn skrifa Danakonungi
Sjónarhorn - Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú
grunnsýning Safnahússins
Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög,
ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira
Spegill samfélagsins 1770 - Almúgi og embættismenn skrifa Danakonungi
Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna
Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali
Júlía & Julia ljúfar veitingar í fallegu umhverfi
Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands
Hverfisgata 15, 101 Reykjavík, s. 530 2210
www.safnahusid.is - https://www.facebook.com/safnahusid/
Opið alla daga 10-17
SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Suðurgata 41, 101 Reykjavík, s. 530 2200,
www.thjodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn
Opið alla daga 10-17
ÝMISSA KVIKINDA LÍKI - ÍSLENSK GRAFÍK – 11.5. - 23.9.2018
ELINA BROTHERUS - LEIKREGLUR – 16.2. - 24.6.2018
FJÁRSJÓÐUR ÞJÓÐAR Valin verk úr safneign
7.4.2017 - 31.12.2019
SAFNBÚÐ – Listrænar gjafavörur
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is.
Listasafn Íslands er opið alla daga frá kl. 10-17.
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR
TVEIR SAMHERJAR – ASGER JORN OG SIGURJÓN ÓLAFSSON
21.10.2017 - 7.10.2018
Opið alla daga frá kl. 13-17. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is
Kaffistofa – heimabakað meðlæti
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR
- HEIMILI LISTAMANNS OG SÝNINGAR
KORRIRÓ OG DILLIDÓ - ÞJÓÐSAGNAMYNDIR ÁSGRÍMS JÓNSSONAR
15.5. - 15.9.2018
Opið alla daga frá kl. 13-17. Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is