Morgunblaðið - 19.05.2018, Page 51
MENNING 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2018
Sprelllifandi Meðlimir Beneath, nettir á því að vanda.
Leader Records. The Barren
Throne fylgdi henni eftir árið
2014 og sú nýjasta, Ephemeris,
kom út í fyrra.
Beneath leggja sig eftir bylj-
andi, en þó tæknilegu, dauðarokki
og hafa haldið þeirri línu nokkuð
vel í gegnum nefndar plötur.
Ephemeris er ofsaleg. Gríðar-
keyrsla og þyngsli, stórkostlegir
tæknisprettir en aldrei á kostnað
lagasmíða og áferðar, sem er vel
glæst. Menn leyfa sér að stíga út
fyrir formúluna (þessi geiri á það
til að vera viðkvæmur fyrir slíku)
og oft fær platan að anda, hægir
og stemningsríkir kaflar gera
vart við sig og „ódauðarokks-
legir“ gítarar skreyta hljóðmynd-
ina smekklega á köflum.
Þá ber að geta þess að
Reykjavík Deathfest lýkur í kvöld
en það hefur staðið yfir síðan á
fimmtudaginn á Gauknum. Marg-
ar af þeim sveitum sem ég nefndi
hér í upphafi hafa verið að leika
þar. Beneath spila þá í júní á
Húrra, fyrstu tónleikar sveit-
arinnar í um tvö ár en hana skipa
nú þeir Benedikt Natanael
Bjarnason (söngur), Jóhann Ingi
Sigurðsson (gítar), Unnar Sig-
urðsson (gítar) og Magnús Hall-
dór Pálsson (bassi). Jóhann tjáði
blaðamanni að trymbli yrði flogið
inn frá San Francisco og er það
enginn annar en Gabe Seeber sem
hefur m.a. leikið með Decripit
Birth, Faceless, The Kennedy Veil
og sjálfum Abbath. Heill sé hon-
um og Beneath-liðum öllum!
»Ephemeris er ofsa-leg. Gríðarkeyrsla
og þyngsli, stórkostlegir
tæknisprettir en aldrei
á kostnað lagasmíða og
áferðar.
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Leik- og söngkonan Jana María Guð-
mundsdóttir heldur útgáfutónleika í
Tjarnarbíói í kvöld kl. 21 vegna
fyrstu breiðskífu sinnar, FLORA,
sem kom út í nóvember í fyrra. Plat-
an hefur að geyma tíu lög og texta
eftir Jönu og á plötunni leika Stefán
Örn Gunnlaugsson á hljómborð og
hljóðgervla og
stýrði hann jafn-
framt upptökum,
Guðmundur Ósk-
ar Guðmundsson
á bassa, Gróa
Valdimarsdóttir á
fiðlu, Magnús
Jóhann Ragnarsson á hljóðgervla,
Magnús Trygvason Eliassen á
trommur og Þórdís Gerður Jóns-
dóttir á selló.
Verkefnin síbreytileg
„Í vetur hef ég verið að kenna í
söngleikjadeild Söngskóla Sigurðar
Demetz svo söngurinn hefur hlotið
örlítið meiri fókus en svo koma tímar
þar sem leiklistin tekur yfir,“ svarar
Jana þegar hún er spurð að því hvor
listgreinin skipi stærra hlutverk hjá
henni, leiklistin eða sönglistin. „Sem
betur fer eru verkefnin mjög sí-
breytileg því ég lít á þetta sem eina
heild og vil vinna jöfnum höndum
með leiklist, söng, skrif og allt því
tengt: að skapa. Þessar listgreinar
eru að mínu mati nátengdar, styðja
við hver aðra svo það er snúið að gera
upp á milli þeirra.“
En hvernig tónlist er á plötunni?
„Tónlistin er byggð upp eins og hefð-
bundin popptónlist en er undir sterk-
um áhrifum af djassi, kvikmynda-
tónlist og triphoppi,“ svarar Jana.
Spurð að því hvort hún hafi litið til
einhverra tiltekinna tónlistarmanna
við gerð plötunnar svarar hún því til
að kanadíska söngkonan Feist sé
einn af áhrifavöldum hennar þó svo
útsetningarnar á FLORU séu stærri
og hlaðnari en gítarskotin tónlist
Feist. „Portishead, Duke Ellington
og gömlu meistarar djassins eru líka
ótvíræðir áhrifavaldar,“ bætir Jana
við.
Óvart á ensku
– Lögin eru á ensku, hvers vegna
eru þau ekki á íslensku?
„Það gerðist raunar alveg óvart.
Ég vinn erlendis líka og enskan var
því mikið í kringum mig þegar ég var
að semja. Þegar ég fór að hugsa um
heildarsvip og þurfti að taka ákvörð-
un um hvort platan yrði á íslensku
eða ensku áleit ég svo að platan þyrfti
stærri hlustendahóp en Ísland og því
nærtækara að semja texta á ensku til
að ná til fleira fólks,“ svarar Jana.
– Þið Stefán unnuð saman úr lög-
um og textum, hvernig kom ykkar
samstarf til?
„Við höfðum unnið saman í íslensk-
um söngleik, Revolution in the Elbow
Of Ragnar Agnarsson Furniture Pa-
inter, í New York fyrir nokkrum ár-
um þar sem hann var tónlistarstjóri
og ég aðstoðarleikstjóri. Þegar við
hófum samstarf fyrir FLORU var
fyrirkomulagið á þann veg að ég
samdi lögin og textana, kom með
demó í stúdíó til Stefáns þar sem við
unnum saman úr hugmyndum að
hljóðheimi sem hann síðan útsetti.“
Prýðilegt regnhlífarheiti
– Er eitthvert þema hvað textana
varðar, um hvað fjalla þeir?
„Textarnir vísa í fjölbreytileika
mannsins eða flóru náttúrunnar. Sög-
urnar sem birtast í textunum er fjöl-
breyttar og endurspegla upplifun
mína af ferðalögum og vistaskiptum
við fólk. Mér þótti FLORA prýðilegt
regnhlífarheiti yfir þær sögur sem
þarna koma fram því hægt er að
finna öll sömu litbrigði, hegðun og
orku í náttúrunni sjálfri.“
41 mínútu myndband
– Þið eruð að fara að taka upp
myndband fyrir alla plötuna, 41 mín-
útu langt. Hvers konar myndband
verður það og hvers vegna er þessi
leið farin, að taka upp eitt langt
myndband fyrir alla plötuna?
„FLORA er byggð upp eins og
flæði, eitthvað sem hefur upphaf og
endi á sama stað og vísar í náttúruna
sem er stöðug hringrás, endurnýjun.
Ég var svo heppin að kynnast hópi
ungra dansara í FWD Youth Comp-
any sem vinna þetta verkefni með
mér af miklum áhuga. Hugmyndin
var að nota líkama til að mynda bók-
stafi úti í náttúrunni í stöðugu flæði;
mynda titla plötunnar, fara inn í þá
og út úr þeim í stöðugri tengingu við
jörðina,“ segir Jana. „Okkur fannst
áhugaverð áskorun að taka upp eitt
langt myndband og endurspegla
hringrásina með því að láta dansara
og jörðina mætast í gegnum alla plöt-
una.“
Hljómsveitina sem fram kemur
með Jönu í kvöld skipa Magnús Jó-
hann Ragnarsson á hljómborð og
syntha, Bergur Einar á trommur og
slagverk og Valdimar Olgeirsson á
bassa og syntha. Ingibjörg Fríða og
Gyða Margrét syngja bakraddir.
Miðasala fer fram á tix.is.
Ferðalög og vistaskipti
Jana heldur útgáfutónleika vegna plötunnar FLORA
Vísar í stöðuga hringrás og endurnýjun náttúrunnar
Skapandi Jana segist vilja vinna jöfnum höndum með leiklist, söng, skrif og
allt sem þeim listgreinum tengist. Hin listræna sköpun er aðalatriðið.
Vor í Vaglaskógi er yfirskrift
kammertónleika sem haldnir
verða í Hofi á Akureyri á
mánudag, annan í hvítasunnu,
kl. 16. Á þeim leikur brasstríó
Sinfóníuhljómsveitar Norður-
lands verk eftir Poulenc, Bizet,
Hull, Mozart og Bach. Á
franskt horn leikur Ella Vala
Ármannsdóttir, Carlos Caro
Aguilera á básúnu og Vil-
hjálmur Ingi Sigurðarson á
trompet.
Tónleikarnir eru síðustu tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands á
þessu starfsári og í léttari kantinum. „Efnisskráin er létt og skemmtileg
eins og vorvindurinn, blanda af þekktum þjóðlögum og verkum höf-
uðtónskálda sígildrar tónlistar,“ segir um tónleikana á vef Hofs en þar
má finna frekari upplýsingar um efnisskrána.
Tríó Brasstríó Sinfóníuhljómsveitar Norður-
lands, þau Carlos, Ella og Vilhjálmur.
Vor í Vaglaskógi á lokatónleikum
Málaradeildin er titill málverkasýningar sem opnuð verður í Listamönnum
galleríi að Skúlagötu 32 í dag kl. 16 en á henni sýna tíu upprennandi list-
málarar sem hafa stundað nám við listmálarabraut Myndlistaskólans í
Reykjavík. Hópurinn er jafnframt sá fyrsti til að ljúka tveggja ára diplóm-
anámi af brautinni og eru verk þeirra fjölbreytt og öll unnin á þessu ári.
Sýningin verður opin til 29. maí, frá mánudegi til föstudags kl. 9-17 og á
laugardögum frá kl. 12 til 16.
Málaradeildin í Listamönnum
Listmálarar Hluti kynningarmyndar fyrir sýninguna sem opnuð verður í dag.
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Rocky Horror (Stóra sviðið)
Lau 19/5 kl. 20:00 37. s Mið 30/5 kl. 20:00 aukas. Fim 7/6 kl. 20:00 50. s
Mið 23/5 kl. 20:00 aukas. Fim 31/5 kl. 20:00 41. s Fös 8/6 kl. 20:00 51. s
Fim 24/5 kl. 20:00 aukas. Fös 1/6 kl. 20:00 46. s Lau 9/6 kl. 20:00 52. s
Fös 25/5 kl. 20:00 38. s Lau 2/6 kl. 20:00 47. s Sun 10/6 kl. 20:00 53. s
Lau 26/5 kl. 20:00 39. s Sun 3/6 kl. 20:00 48. s
Sun 27/5 kl. 20:00 40. s Mið 6/6 kl. 20:00 49. s
Síðustu sýningar komnar í sölu.
Elly (Stóra sviðið)
Fös 31/8 kl. 20:00 139. s Sun 9/9 kl. 20:00 142. s Sun 16/9 kl. 20:00 145. s
Lau 1/9 kl. 20:00 140. s Mið 12/9 kl. 20:00 143. s Lau 22/9 kl. 20:00 146. s
Fös 7/9 kl. 20:00 141. s Fim 13/9 kl. 20:00 144. s Sun 23/9 kl. 20:00 147. s
Sýningar haustið 2018 komnar í sölu.
Sýningin sem klikkar (Nýja sviðið)
Lau 19/5 kl. 20:00 33. s Sun 27/5 kl. 20:00 35. s Lau 2/6 kl. 20:00 37. s
Fös 25/5 kl. 20:00 34. s Fös 1/6 kl. 20:00 36. s
Allra síðustu sýningar!
Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið)
Lau 19/5 kl. 20:30 aukas. Lau 26/5 kl. 20:30 aukas. Lau 2/6 kl. 20:30 aukas.
Fim 24/5 kl. 20:30 aukas. Fim 31/5 kl. 20:30 aukas.
Slá í gegn (Stóra sviðið)
Sun 27/5 kl. 19:30 30.sýn Sun 3/6 kl. 19:30 32.sýn Sun 10/6 kl. 19:30 34.sýn
Lau 2/6 kl. 19:30 31.sýn Lau 9/6 kl. 19:30 33.sýn Fim 14/6 kl. 19:30 35.sýn
Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna!
Svartalogn (Stóra sviðið)
Fös 25/5 kl. 19:30 7.sýn Fim 31/5 kl. 19:30 9.sýn
Lau 26/5 kl. 19:30 8.sýn Fös 8/6 kl. 19:30 10.sýn
Heillandi verk um óvæntu möguleikana í lífinu
Mystery boy (Stóra sviðið)
Fim 24/5 kl. 19:30
MYSTERY BOY (Yfirnáttúruleg ástarsaga)
Aðfaranótt (Kassinn)
Lau 19/5 kl. 19:30 6.sýn Fim 24/5 kl. 19:30 8.sýn Lau 26/5 kl. 19:30 10.sýn
Mið 23/5 kl. 19:30 7.sýn Fös 25/5 kl. 19:30 9.sýn
Lokaverkefni leikarabrautar sviðslistadeildar LHÍ
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200