Morgunblaðið - 19.05.2018, Qupperneq 52
52 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2018
Hver / Gerði nefnist sýning sem
Sigrún Harðardóttir opnar í Lista-
safni Árnesinga í Hveragerði í dag
kl. 15. Klukkustund síðar verður
fluttur gjörningur sem er samtal
milli kontrabassa og striga.
„Líkt og heiti sýningarinnar
gefur til kynna þá er viðfangsefni
Sigrúnar á sýningunni hverir og
gróður. Þar má sjá hvernig gagn-
virkni og skyntækni er tvinnuð
saman og áhorfendum boðið að
taka þátt. Með eigin þátttöku ná
þeir að upplifa fjölmarga mögu-
leika þessarar tækni í samspili
lita, hreyfinga og hljóðs. Inn á
milli gagnvirkra verka og skúlp-
túrs innsetninga eru líka málverk
sem gera áhorfendum kleift að
njóta þeirrar fagurfræði sem til
verður í umbreytingunni milli
hefðbundinna og tæknivæddra
mynda,“ segir í tilkynningu.
Sigrún stundaði nám við Mynd-
lista- og handíðaskóla Íslands
1978-82, framhaldsnám við
Ríkislistaakademíuna í Hollandi
1982-86 og fjölmiðlafræðideild
Québec Háskólans í Montreal,
Kanada, þaðan sem hún lauk
meistaragráðu árið 2005. Sýningin
stendur til 6. ágúst. Safnið er opið
alla daga kl. 12-18 og er aðgangur
ókeypis.
Sigrún sýnir í Listasafni Árnesinga
Gróðurverk Sigrún Harðardóttir með
einu verkanna sem sjá má á sýningunni.
Í tilefni af 100 ára afmæli fullveldis
Íslands og 100 ára kaupstaðarafmæli
Siglufjarðar verður ný sýning opnuð
í Þjóðlagasetri sr. Bjarna Þorsteins-
sonar á morgun, sunnudag, kl. 13.30.
„Sýningin nefnist Leið ég yfir lönd
og sæ og er kjarni hennar nýjar
myndbandsupptökur með tveimur
einstökum kvæðakonum, þeim Hildi-
gunni Valdimarsdóttur og Kristrúnu
Matthíasdóttur,“ segir í tilkynningu.
Þar kemur fram að Hildigunnur
(1930-2017) ólst upp í Vopnafirði.
„Móðir hennar var skáldkonan Erla
og bróðir hennar var Þorsteinn
Valdimarsson skáld. Hildigunnur
lærði allt sem móðir þeirra söng fyr-
ir börn sín. Hildigunnur kunni gríð-
arlega mörg kvæði, þjóðlög, þulur
og ekki síst danskvæði, sem sungin
voru á dansleikjum í heimahúsum í
Vopnafirði um aldamótin 1900. Sam-
tals eru lögin sem Hildigunnur syng-
ur fyrir Þjóðlagasetrið um 100 tals-
ins.
Kristrún (1923-2011) var frá Fossi
í Hrunamannahreppi. Hún var systir
Haraldar Matthíassonar mennta-
skólakennara á Laugarvatni og
ferðafrömuðar. Þau systkinin kunnu
ógrynni af vísum og lögum sem þau
lærðu í æsku og varðveitast nú í upp-
tökum Þjóðlagaseturs. Kristrún
syngur hátt í 50 lög, einkum rímna-
lög og eftirhermur. Upptökurnar
með Hildigunni og Kristrúnu eru
einstök heimild um íslenska menn-
ingu í upphafi 20. aldar, ekki síst um
þátt íslenskra kvenna til varðveislu
íslenskra þjóðlaga.“
Upptökurnar gerðu Gunnsteinn
Ólafsson og Dúi Landmark. Sýn-
ingin stendur til 31. ágúst.
Ný sýning opnuð í Þjóðlagasetrinu
Siglufjörður Þjóðlagasetur sr. Bjarna.
Jonna - Jónborg Sigurðardóttir opn-
ar myndlistasýninguna Sjúkdómar í
Kartöflugeymslunni í Listagilinu á
Akureyri í dag, laugardag, kl.14.
Jonna sýnir heklaða skúlptúra þar
sem hún túlkar sýn sína á sjúkdóma,
raskanir og heilkenni. Samkvæmt
upplýsingum frá sýningarhaldara
hefur Jonna frá í janúar heklað yfir
60 sjúdóma og á eftir að halda áfram
með þessa sjúklegu sjúkdóma þar til
þeir verða langt yfir 100.
„Aðdragandi sýningarinnar var sá
að Jonna greindist með sortuæxli í
auga og byrjaði hún þá að hekla sína
eigin sjúkdóma og segir Jonna að
þetta hafi verið einskonar hugleiðsla
að geta handfjatlað sortuæxlið sitt
og í kjölfarið bjó hún til sjúkdóma
annarra og jafnvel útdauða sjúk-
dóma, Skúlptúrarnir á sýningunni
eru m.a. kvíði, kæfisvefn, alzheimer,
streptókokkasýking, berklar, svarti-
dauði, klamidia og lungnaþemba.“
Ef sýningargestum finnst vanta til-
tekinn sjúkdóm á sýningunni er
þeim, að sögn Jonnu, velkomið að
skrifa nafnið á honum og skilja eftir
og þá verður hann heklaður síðar.
Jonna útskrifaðist úr fagurlista-
deild Myndlistaskólans á Akureyri
vorið 1995 og sem fatahönnuður frá
Københavns Mode- og Designskole
2011. Sýningin, sem stendur til 31.
maí, er opin kl. 14-17 um helgar og
kl. 10-16 á virkum dögum.
Jonna sýnir Sjúkdóma í Listagilinu
Litagleði Eitt verkanna sem sjá má á
sýningunni í Kartöflugeymslunni.
Í tilefni af aldarafmæli Birgit Nils-
son þann 17. maí stendur Richard
Wagner félagið fyrir dagskrá í Nor-
ræna húsinu í dag, laugardag, kl.
14. Umsjón með dagskránni hefur
dr. Sveinn Einarsson leikstjóri og
fyrrverandi þjóðleikhússtjóri.
„Birgit Nilsson var ein fremsta
dramatíska óperusöngkona 20. ald-
ar. „La Nilsson“ debúteraði í Kon-
unglega óperunni í Stokkhólmi árið
1946. Árið 1954 söng hún sitt fyrsta
hlutverk í Bayreuth sem Elsa í Lo-
hengrin og var það fyrsta sumarið
af sextán sem hún varði í Bayreuth
þar sem hún söng Brünnhilde og Is-
olde allt til ársins 1970,“ segir í til-
kynningu frá félaginu.
Fagna aldarafmæli Birgit Nilsson
Söngdíva Birgit Nilsson árið 1948.
Svanurinn 12
Morgunblaðið bbbmn
IMDb 6,6/10
Bíó Paradís 22.00
Good Time
Metacritic 80/100
IMDb 7,3/10
Bíó Paradís 20.00
Undir trénu
Bíó Paradís 20.00
You Were Never
Really Here
Metacritic 84/100
IMDb 7,0/10
Morgunblaðið bbnnn
Bíó Paradís 20.00
I, Tonya
Metacritic 77/100
IMDb 7,5/10
Bíó Paradís 22.00
Andið eðlilega Morgunblaðið bbbbm
IMDb 7,4/10
Bíó Paradís 18.00
The Shape of
Water 16
Morgunblaðið bbbnn
Metacritic 86/100
IMDb 7,8/10
Bíó Paradís 22.00
Doktor Proktor og
prumpuduftið
Morgunblaðið bbbnn
Bíó Paradís 16.00
Deadpool 2 16
Eftir að hafa naumlega kom-
ist lífs af í kjölfar nautgripa-
árásar á afmyndaður kokkur
ekki sjö dagana sæla.
Metacritic 68/100
IMDb 8,6/10
Laugarásbíó 17.30, 20.00,
22.25
Sambíóin Egilshöll 14.30,
17.20, 20.00, 22.30
Sambíóin Kringlunni 14.45,
17.15, 19.45, 22.15
Sambíóin Keflavík 17.15,
19.45, 22.15
Smárabíó 13.20, 14.00,
16.10, 16.50, 19.00, 19.40,
22.00, 22.30
Háskólabíó 18.00, 21.00
Borgarbíó Akureyri 19.30,
22.00
I Feel Pretty 12
Metacritic 47/100
IMDb 4,5/10
Sambíóin Álfabakka 13.00,
15.20, 17.40, 20.00, 22.20
Sambíóin Egilshöll 17.40,
20.00, 22.10
Sambíóin Kringlunni 13.45,
16.00
Sambíóin Akureyri 17.40,
20.00
Sambíóin Keflavík 17.30,
19.45
Overboard Metacritic 42/100
IMDb 5,4/10
Laugarásbíó 17.40, 20.00,
22.20
Smárabíó 19.50, 22.20
Borgarbíó Akureyri 17.20,
19.30, 21.30
Bókmennta- og
kartöflubökufélagið
Háskólabíó 15.20, 17.50,
20.40
Borgarbíó Akureyri 19.30
Super Troopers 2 12
Metacritic 40/100
IMDb 7,0/10
Smárabíó 20.00
A Quiet Place 16
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 80/100
IMDb 8,2/10
Sambíóin Egilshöll 20.00
Strangers:
Prey at Night 16
Metacritic 48/100
IMDb 5,6/10
Smárabíó 22.10
Rampage 12
Metacritic 45/100
IMDb 6,4/10
Sambíóin Álfabakka 13.00,
17.40, 20.00, 22.20
Sambíóin Egilshöll 15.00
The Death of
Stalin 16
Morgunblaðið bbbbm
Metacritic 88/100
IMDb 7,2/10
Háskólabíó 20.50
Black Panther 12
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 87/100
IMDb 7,1/10
Sambíóin Álfabakka 13.00
Draumur
Mjallhvít, Öskubuska og
Þyrnirós komast að því að
þær eru allar trúlofaðar
sama draumaprinsinum.
IMDb 7,7/10
Háskólabíó 15.30
Önd önd gæs
Laugarásbíó 13.40, 15.40
Sambíóin Keflavík 15.20
Smárabíó 15.20, 17.30
Háskólabíó 15.20, 18.10
Pétur Kanína
Laugarásbíó 13.50, 15.50
Smárabíó 12.50, 15.10,
17.40
Háskólabíó 15.40
Lói – þú flýgur aldrei
einn Morgunblaðið bbbbn
Smárabíó 13.00, 17.30
Bíó Paradís 16.00
Krummi Klóki
Laugarásbíó 13.40, 13.50,
15.40
Bíó Paradís 18.00
Víti í Vestmanna-
eyjum Morgunblaðið bbbbn
Sambíóin Álfabakka 13.00,
15.20, 17.20
Sambíóin Egilshöll 15.00,
17.40
Sambíóin Kringlunni 13.45
Sambíóin Akureyri 15.20
Sambíóin Keflavík 15.00
Ready Player One 12
Morgunblaðið bbbnn
Metacritic 64/100
IMDb 7,8/10
Sambíóin Álfabakka 19.30,
22.20
Morgunblaðið bbbbm
Metacritic 68/100
IMDb 8,8/10
Sambíóin Álfabakka 13.00, 14.20, 15.20,
16.00, 17.30, 18.30, 19.00, 20.40, 21.40,
22.00
Sambíóin Egilshöll 14.30, 17.20, 20.20, 22.20
Sambíóin Kringlunni 16.00, 19.10, 22.20
Sambíóin Akureyri 16.00, 19.10, 22.20
Sambíóin Keflavík 22.00
Avengers: Infinity War 12
Vargur 16
Bræðurnir Erik og Atli eiga
við fjárhagsvanda að
stríða. Þeir grípa til þess
ráðs að smygla dópi.
Morgunblaðið
bbbmn
IMDb 7,6/10
Laugarásbíó 18.00,
20.00, 22.10
Smárabíó 20.00, 22.20
Háskólabíó 18.10, 21.10
Borgarbíó Akureyri 19.30,
21.30
7 Days in Entebbe 12
Myndin er innblásin af sannsögulegum atburðum, þegar flug-
vél Air France var rænt árið 1976 á leið sinni frá Tel Aviv til
Parísar, og sett var í gang ein
djarfasta björgunaráætlun í
sögunni.
Metacritic 49/100
IMDb 5,8/10
Sambíóin Álfabakka 15.20
Sambíóin Kringlunni 18.10,
20.30, 22.50
Sambíóin Akureyri 22.20
Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna
Kvikmyndir
bíóhúsanna
mbl.is/bio