Morgunblaðið - 19.05.2018, Síða 56
LAUGARDAGUR 19. MAÍ 139. DAGUR ÁRSINS 2018
Í LAUSASÖLU 1.050 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Andlát: Guðrún Ragnheiður …
2. „Virðist vera í lagi í kollinum“
3. Kínverjar gera Trump risatilboð
4. Icelandair setur hótelin á sölu
Inga S. Ragnarsdóttir opnar mynd-
listarsýningu á morgun kl. 12.15 í
Hallgrímskirkju, við lok hátíðar-
messu, og ber hún titilinn Votiv –
áheit. Sem myndhöggvari tekst Inga
á við efnið og litinn og mótar í form.
Þessi form verða til sýnis í forrými
Hallgrímskirkju og stucco-skúlptúr-
arnir sem eru festir þar á veggi taka
mið af fórnargjöfum fyrri alda.
Taka mið af fórnar-
gjöfum fyrri alda
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Gengur í SA 10-18 m/s með rigningu en allt að 23 SV-lands. Þurrt
að mestu á Norðurlandi. Snýst í S og SV 10-18 seinnipartinn með skúrum eða slyddu.
Á sunnudag (hvítasunnudagur) Sunnan- og suðvestanátt, víða 13-18 m/s. Rigning eða
skúrir, en snjókoma til fjalla. Þurrt norðaustanlands. Hiti 3 til 11 stig, mildast á norðaust-
urhorninu. Á mánudag (annar í hvítasunnu) Suðvestan 8-13 m/s og skúrir eða slyddu-
él, en léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti breytist lítið.
Fjórði úrslitaleikur FH og ÍBV um Ís-
landsmeistaratitilinn í handknattleik
karla fer fram í Kaplakrika í dag
klukkan 16.30. Eftir tap í Eyjum í
fyrrakvöld eru FH-ingar með bakið
upp við vegginn. Þeir verða að vinna í
dag til að knýja fram oddaleik á
þriðjudagskvöld í Vestmannaeyjum.
Takist það ekki fara leikmenn ÍBV með
Íslandsbikarinn í farteskinu heim. »4
Verða Eyjamenn Ís-
landsmeistarar í dag?
Breiðablik er áfram á toppi
Pepsi-deildar karla í knatt-
spyrnu þótt liðið hafi tapað
sínum fyrstu stigum í 1:1-
jafnteflisleik gegn KR-ing-
um í Vesturbænum í gær-
kvöld. Víkingar töpuðu sín-
um fyrsta leik, 0:1, fyrir
Grindavík, Valur og Stjarnan
skildu jöfn, 2:2, og Keflvík-
ingar sitja eftir á botninum
eftir tap gegn Fjölni, 1:2. »
2-3
Breiðablik er
áfram á toppnum
„Það er alls ekki sjálfsagður hlutur
að vera hluti af íslenska landsliðinu
sem tekur þátt í HM í Rússlandi. Ég
var þess vegna himinkátur þegar ég
fékk skilaboð þess efnis að ég væri í
HM-hópnum,“ sagði knattspyrnu-
maðurinn Albert Guðmundsson er
Morgunblaðið hitti hann að máli fyr-
ir fyrstu æfingu örfárra leikmanna
íslenska landsliðsins sem hófu í gær
undirbúninginn
fyrir HM í Rúss-
landi. » 1
Alls ekki sjálfsagður
hlutur að vera í liðinu
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Kómedíuleikhúsið á Ísafirði frumsýnir einleik um
Einar Guðfinnsson útgerðarmann í Einarshúsi í
Bolungarvík nk. miðvikudagskvöld, 23. maí. „Ég
er að dunda við að læra textann minn,“ segir Elf-
ar Logi Hannesson, stofnandi og eigandi leik-
hússins, en leikstjóri er Rúnar Guðbrandsson.
Verkið kom til eins og margir skrýtnir og
kómískir hlutir gerast, að sögn Elfars Loga.
Eins og svo oft áður hafi hann verið að drekka
kaffi með Jóni Páli Hreinssyni, bæjarstjóra Bol-
ungarvíkurkaupstaðar, og bæjarstjórinn hafi
spurt upp úr þurru hvort hann væri ekki til í að
búa til einleik um þennan merkilega mann. „Jú,
jú, svaraði ég og klukkutíma seinna var hann bú-
inn að ganga frá öllu og við gátum lagt á djúpið.
Þetta var skyndihugdetta sem hitti beint í mark.
Í þessu leikhúsi erum við vön því að velta hlut-
unum ekki of mikið fyrir okkur heldur fram-
kvæma strax.“
Lífróður þar sem allt er undir
Undirbúningur verksins hófst í ársbyrjun og
hafa Elfar Logi og Rúnar að mestu verið í fjar-
sambandi þar sem Rúnar vinnur í Reykjavík en
Elfar Logi fyrir vestan. „Nú er lokaspretturinn
hafinn og þetta er bara eins og hver annar líf-
róður, það er allt undir,“ segir leikarinn.
Elfar Logi lærði í Kómedíuleiklistarskólanum í
Danmörku. Róbert Snorrason var samtíða hon-
um í skólanum og þegar þeir komu heim undr-
uðust þeir að leikhússtjórar Þjóðleikhússins og
Borgarleikhússins hringdu ekki í þá með boð um
gull og græna skóga. „Við ákváðum þá að gera
eitthvað í málinu og bjuggum til okkar eigin leik-
hóp, sem við nefndum Kómedíuleikhúsið,“ segir
Elfar Logi um stofnun leikhússins 1997. „Róbert
gafst upp á hinu íslenska harki og fór í harkið í
Kaupmannahöfn, þar sem hann er enn, en ég
hélt áfram að bardúsa í borginni. Leikhúsið náði
samt ekki flugi fyrr en ég flutti vestur um alda-
mótin, en síðan 2001 höfum við verið nokkuð iðin
við kolann. Þetta er verk númer 42.“
Nokkurn tíma tók að ákveða hvaða sögu ætti
að segja af Einari. „Þegar við vorum orðnir sátt-
ir við leiðina vorum við eins og alfræðiorðabók
um Einar Guðfinnsson og handritsskrifin gengu
mjög vel,“ segir hann og bætir við að ævisaga
Einars eftir Ásgeir Jakobsson hafi verið helsta
heimildin.
Elfar Logi segist renna blint í sjóinn með
þetta leikverk eins og öll önnur, en bendir á að
síðasta verkefnið, Gísli á Uppsölum, hafi verið
sýnt hátt í 100 sinnum, þótt hann hafi alveg eins
Skyndihugdetta hittir í mark
Kómedíuleikhúsið
frumsýnir einleik um
Einar Guðfinnsson
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kómedíuleikhúsið Elfar Logi Hannesson og Rúnar Guðbrandsson alvarlegir á æfingu í vikunni.
Björn Thoroddsen samdi tónlistina í verkinu og Magnús Arnar Sigurðsson
hannaði lýsinguna.
Björn stendur í ströngu þessa dagana og er á leið til Bandaríkjanna. Þar
verður hann með gestafyrirlestur með tónlistarmanninum Robben Ford í
Musical Institute í Los Angeles, skólanum sem hann lærði í á sínum tíma, og
auk þess verða þeir með tónleika í Baked Potato, virtum klúbbi í borginni.
Þaðan liggur leiðin til Las Vegas, þar sem hann kemur fram á tónleikum 16.
júní. „Ég vona að þá geti ég tilkynnt að Ísland hafi rétt í þessu verið að ná
hagstæðum úrslitum á móti Argentínu á HM í Moskvu,“ segir Björn, sem er
jafnframt byrjaður að undirbúa Guitarama 2018 með Martin Taylor og Ulf
Wakenius í Salnum í Kópavogi 28. september nk.
Vill tilkynna hagstæð úrslit
TÓNLISTIN Í VERKINU EFTIR BJÖRN THORODDSEN
Morgunblaðið kemur næst út
þriðjudaginn 22. maí. Frétta-
þjónusta verður um hvíta-
sunnuhelgina á fréttavef Morg-
unblaðsins, mbl.is. Hægt er að
koma ábendingum um fréttir á
netfangið netfrett@mbl.is.
Þjónustuver áskriftardeildar
er opið í dag, laugardag, frá kl.
8 til 12 en lokað er á hvíta-
sunnudag og annan í hvíta-
sunnu. Þjónustuverið verður
opnað aftur á þriðjudag kl. 7.
Sími þjónustuvers er 569-1122
og netfangið askrift@mbl.is.
Blaðberaþjónusta er opin í
dag, laugardag, frá kl. 5-12.
Hún verður opnuð á ný á
þriðjudag kl. 5. Hægt er að
bóka dánartilkynningar á
mbl.is. Símanúmer Morgun-
blaðsins er 569-1100.
Fréttaþjón-
usta mbl.is
um helgina
búist við að sýningarnar yrðu aðeins tvær.
„Þetta er eins og laxveiði og framhaldið er í
höndum áhorfenda. Ef þeim líkar uppsetningin
er aldrei að vita hvað gerist. Við tökum slaginn
og verðum að vona að þetta verði ekki bara gott
partí heldur standi yfir í langan tíma.“
Björn Thoroddsen