Skírnir - 01.04.2015, Page 48
Forseti Íslands kaus sem sagt að gerast guðfaðir útrásarinnar,
veðja á athafnamenn hennar og vinna með þeim af alefli að upp-
byggingu og útrás íslenskra fyrirtækja um heim allan. Á sama tíma
heyrðist lítt frá honum um hans fyrri hjartans mál — lýðræði,
jöfnuð og siðbót. Forsetanum gekk eflaust gott eitt til og að baki var
eflaust einlægur ásetningur um að standa dyggilega við hinn óskráða
sáttmála lýðveldisins, að ráðamenn landsins með forsetann í broddi
fylkingar tryggðu varanlega efnahagslega hagsæld landsins. Engu
að síður mátti lengi vera ljóst að fórnarkostnaður útrásarinnar væri
mikill: Lýðræðið var vanrækt í landinu, ójöfnuður varð meiri en
nokkru sinni fyrr, og siðlaus hugmyndafræði auðhyggju og átaka-
fús þjóðernishyggja réðu ríkjum. Spurningin sem sagan ein mun
svara er þessi: Réttlætti útrásartilraunin til að skapa Íslandi efna-
hagslegt öryggi og hagsæld hinn mikla fórnarkostnað?
Laugardaginn 6. október 2008 hrundi allt fjármálakerfi landsins
með braki og brestum. Alþingi kom saman til fundar og setti neyðar-
lög. Forsætisráðherra, Geir H. Haarde, ávarpaði þjóðina í sjónvarpi.
Lokaorðin voru fleyg: „Guð blessi Ísland.“
Hinn veraldlegi guðfaðir dugði Íslandi ekki lengur.
Heimildir
„10 ríkustu Íslendingarnir eiga 725 milljarða.“ 2006. DV, 26. maí.
„22 milljónir á mánuði yfir velsæmismörkum.“ 2006. Morgunblaðið, 10. ágúst.
Árni Þórarinsson. 2004. „Þjóðhöfðingi með einum eða öðrum hætti.“ Seinni hluti.
Morgunblaðið – Tímarit Morgunblaðsins, 9. maí.
Bjarni Benediktsson. 1943. Lýðveldi á Íslandi. Reykjavík.
Björn Þórðarson. 1942. „Sjálfstæðismálið er ævarandi.“ Helgafell, 8–10 (1): 295–301.
Dagskrá forseta. 2007, 3. maí. Forseti.is. Sótt á http://www.forseti.is „Ýmsir atburðir
úr dagskrá forseta: 03.05.2007.“
Dagskrá forseta. 2007, 26. sept. Forseti.is. Sótt á http://www.forseti.is — „Ýmsir at-
burðir úr dagskrá forseta: 26.09.2007.“
Dagskrá forseta. 2007, 13. okt. Forseti.is. Sótt á http://www.forseti.is — „Ýmsir at-
burðir úr dagskrá forseta: 13.10.2007.“
48 svanur kristjánsson skírnir
ríkisstjórn sem hafi aðildarumsókn að stefnumáli. Aðildarsinninn Halldór verður
forsætisráðherra og aðildarsinninn Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkis -
ráðherra. Þarf að spyrja að leikslokum?
Skírnir vor 2015.qxp_Layout 1 16.4.2015 15:46 Page 48