Skírnir - 01.04.2015, Page 231
231„það er ekki ljósunum að því lýst“
Allt sannleikur
Leikritið „Gleðilegur afmælisdagur“ gerist á einum degi í Reykja-
vík, á afmæli Jóhanns stúdents. Því fylgir enginn formáli með kynn-
ingu á persónum eða þáttum og eru sviðslýsingar af skornum
skammti. Það er í þremur löngum þáttum sem hver skiptist í mörg
atriði. Fyrsti þáttur gerist í „hreysi“ Margrétar, annar þáttur í veit-
ingahúsinu, þriðji þáttur í húsi herra Páls og madömu Pál. Þetta eru
mikil leiksvið með fjölda persóna sem hver gegnir sínu hlutverki,
eins og einnig þeir fáu innanstokksmunir sem lýst er, lítil borð,
hirslur, speglar, flöskur, glös, að ógleymdum fatnaði sem sérstök
áhersla er lögð á. Helstu persónur eru:
margrét, ekkja og aftur gift Ásbirni
ásbjörn, eiginmaður Margrétar, ónytjungur, drykkjusvín
ingibjörg, dóttir Margrétar, heimasæta, saumakona
ragnhildur dóttir Margrétar, þjónustustúlka á veitingahúsinu
jón, sonur Margrétar, letingi, skólapiltur í Lærða skólanum
ísleifur, bróðir Margrétar
aðkomumaður frá Ameríku
herra páll
madama pál
jóhann, sonur þeirra, nýstúdent
húsbóndinn, eigandi veitingahússins
mogens, skenkjari á veitingahúsinu
sigurður, bróðir Mogens, úr sveit
jónas breiðdalur, flysjungur, í Prestaskólanum
þorkell, rithöfundur og bókari
nesi, sendill
áslaug, utanbæjarkona
steinunn, vatnskerling
hallgerður, vatnskerling
vigdís, vinnukona í húsi herra Páls
inspektor lærða skólans
pólití
herrar, gestir veitingahússins
Fyrirsögn leikritsins, „Gleðilegur afmælisdagur“, er misvísandi, þar
sem gleðin sem hún boðar er í litlu samræmi við alvarlegt efni þess.
skírnir
Skírnir vor 2015.qxp_Layout 1 16.4.2015 15:47 Page 231