Skírnir - 01.04.2016, Page 140
Geirs. Samanburður sýnir að tekið var tillit til breytinga Svein-
bjarnar.
Matteus 5. 1–20
1 En er hann sá mannfjøldann, gékk hann uppá fjall eitt og settist
þar; þá komu lærisveinarnir til hans; (1584/1644/1728 Enn er Iesus
(1644 hann) sa Folkit / gieck hann vppa Fiallit (1644 eitt Fiall / og
setti sig nidur) …; 1866 = Við.; 1908/1981/2007 … gekk hann upp
á fjallid …).
2 hóf hann þá kénningu sína til þeirra á þenna hátt (1584/1644/1728
engin bein þýðingartengsl; 1866 engin bein þýðingartengsl; 1908/
1981 lítil bein þýðingartengsl; 2007 fer aðra leið).
3 Sælir eru andlega lítillátir, því þeir munu eignast himnaríki.
(1584/1644/1728 engin bein þýðingartengsl; 1866 nánast eins og
1584/1644; 1908 og áfram, engin bein þýðingartengsl).
4 Sælir eru sorgbitnir, því þeir munu huggun hljóta. (1584/1644
engin bein þýðingartengsl; 1728 Sæler eru þeir sem syrgia …; 1866
= Við.; 1908 Sælir eru syrgjendur, því að þeir munu huggaðir verða:
mjög nálægt 1728; 1981 Sælir eru sorgbitnir = Við.; þuiat þeirmunu
huggader verda = 1584/1644/1728; 2007 = 1908).
5. Sælir eru hógværir, því þeir munu landid eignast. (1584/1644 …
þuiat þeir munu Iardrijke erfa; 1728 fer aðra leið; 1866 nánast eins
og 1584/1644; 1908 … landið erfa; 1981/2007 … jörðina erfa).
6 Sælir eru þeir, sem húngrar og þyrstir eptir réttlætinu, því þeir
munu saddir verda. (1584/1644 Sæler eru þeir sem hungra og þysta
epter Riettlætenu / þuiat þeir skulu sadder verda; 1728 nánast eins;
1866 = Við.; 1908 og áfram = Við.).
7 Sælir eru miskunsamir, því þeir munu miskun hljóta. (1584/1644
eins og Við.; 1728 eilítið frábrugðin; 1866 = Við.; 1908 og áfram …
því að þeim mun miskunnað verða).
8 Sælir eru hreinhjartadir, því þeir munu Gud sjá. (1584/1644 =
Við.; 1728 fer eilítið aðra leið; 1866 = Við.; 1908 og áfram … hjarta-
hreinir …).
9 Sælir eru fridsamir, því þeir munu Guðs børn kalladir verda. (1584
Sæler eru þeir sem Friden giøra þuiat þeir munu Gudz Syner kalla-
140 guðrún, gunnlaugur, sigurður skírnir
Skírnir vor 2016.qxp_Layout 1 18.4.2016 13:00 Page 140