Bókasafnið


Bókasafnið - 01.07.2018, Page 13

Bókasafnið - 01.07.2018, Page 13
Bókasafnið 42. árg – 2018 13 Þau eru ennþá með upplýsingafræðinga í vinnu? Já, sem gjarnan er orðinn skjalastjóri. Sums staðar sér sami einstaklingurinn um hvort tveggja. Þá er treyst á efnið sé til rafrænt eða í Lbs-Hbs, háskólabókasöfnunum eða einhverju af stóru almenningssöfnunum. Sem dæmi um þær breytingar sem nú eiga sér stað má nefna að á Heilbrigðisvísindabókasafni Landspítalans og HÍ hefur pappírsefnið verið grisjað verulega og mikill meirihluti safnkostsins er orðinn rafrænn. Þetta er að gerast um allan heim og því er enn mikilvægara að efla þjóð- bókasöfnin og stærstu háskólabókasöfnin sem landsmið- stöðvar og varðveislusöfn. Efnið er einnig fært í stafrænt form og gert aðgengilegt á vef, en forðinn varðveitist bæði á pappír og stafrænt. Hér á landi lánaðist okkur að kaupa gott úrval af rafrænum áskriftum í gegnum Landsaðgang, reyndar fyrir mikla fjár- muni, en það var hægt með því að bókasöfnin lögðu saman. Þá varð verkefnið svo miklu auðveldara og við fengum svo miklu meira efni en ella. Þó má segja að með í kaupunum flaut heilmikið efni sem enginn hefði keypt fullu verði, ef það hefði ekki verið inni í einhverjum pakka. Umhverfi rafrænu áskriftanna og sérstaklega Landsaðgangsins hef- ur einnig orðið miklu stöðugra með árunum. Það gerðist með breytingum á lögum um Lbs-Hbs árið 2011, þá var safninu falið að reka Landsaðganginn, sem varð að sérs- töku verkefni safnsins. Það lá við að Landsaðgangurinn tapaðist úr höndunum á okkur eftir hrunið, en það tókst að fá meira miðlægt fé til að viðhalda áskriftunum. Einnig tókst að semja við útgefendur, um að leita leiða til að fleyta samlaginu áfram. Þetta kenndi okkur mikið í samninga- tækni og einhvern veginn tókst að halda þessu á floti. Við fækkuðum áskriftum en héldum þeim mikilvægustu. Það hefði verið hræðilegt að missa Landsaðganginn, það hefði verið verulegt bakslag. Þú segir að stóru rannsóknarbókasöfnin hérna á landi hafi verið að grisja eins og fólk er að gera út um heiminn. Sérðu að það muni gerast í náinni framtíð hér í safninu? Já, það er verið að grisja heilmikið úr erlenda safnkostin- um. Út um allan heim er fólk að setja efni í stafrænt form, það verður síðan aðgengilegt eftir ýmsum leiðum, svo sem í opnum aðgangi, í Landsaðgangi eða séráskriftum, eða það er hægt að panta í millisafnalánum. Þá vaknar eðilega sú hugsun að láta erlenda pappírsefnið fara. Það eru önn- ur þjóðbókasöfn sem bera ábyrgð á varðveislu þess, hvert land sér um sína útgáfu. Það er fljótlegra að panta greinar í millisafnalánum, heldur en að fara upp í Mjódd, sækja ritið, ljósrita greinina og senda hana til notandans. Verður þá fjölgað vinnslulínum til að mynda í safninu? Eruð þið að mynda bækur sem þið eruð með hérna í safnkostinum? Í safninu er unnið alla daga við stafræna endurgerð, en ein- göngu íslenskt efni. Við erum komin mjög langt með kort, blöð og tímarit og fram undir 1844 af íslenskum bókum. Einnig er verið að færa handrit og tónlist á stafrænt form og aðrar tegundir safna eru vinna að sínu efni. Ég sé fyrir mér að mikið af menningarsögulegu íslensku efni verði með einhverjum hætti orðið stafrænt innan 20-30 ára. Mennta- og menningarmálaráðuneytið lét taka saman skýrslu um varðveislu íslenskrar menningararfleifðar á stafrænu formi árið 2017 og nú er verið að forgangsraða verkefnum. Tækninni mun einnig fleygja fram og efnið myndað aftur eða stafrænu gögnin unnin aftur. Sumt af því sem myndað var fyrst, hefur verið myndað aftur. Það er eðli stafrænu gagnanna að það þarf að endurnýja þau þegar ný tækni eða aðferðir koma fram. En það er mikilvægt að ýta áfram nýjum verkefnum og að rækja það forystuhlutverk sem safnið hefur samkvæmt lögum. Ég hef alltaf talað fyrir samvinnu bókasafna og hér á landi skiptir það öllu vegna þess að við erum svo fá. Safnategundir eins og til dæmis almenningsbókasöfnin hafa verið með mjög öflugt samstarf og ég vil að Lbs-Hbs taki þátt í samstarfi eins og Landsaðganginum og Landskerf- inu, Gegni og Leitum. Háskólabókasöfnin eru í töluverðu samstarfi og safnið á í miklu samstarfi við Háskóla Íslands, og þar má nefna málefni opins aðgangs, CRIS, og varð- veislusöfnin Skemmuna og Opin vísindi. Auk þessa er einnig samvinna við aðrar menningarstofnanir ríkisins, og fjölmarga aðra aðila eins og ég hef áður nefnt. Finnst þér skorta skilning í ráðuneytinu á þessu stóra hluverki ykkar? Ég hef verið landsbókavörður í 11 ár og í fyrstu fannst mér ekki mikill skilningur eða þekking á okkar hlutverki. Áður var bókafulltrúi ríkisins í ráðuneytinu og það var ef til vill ekki gott að sú staða var lögð niður. Almenningsbókasöfnin voru færð til sveitarfélaganna og því varð ákveðið rof þegar bókafulltrúinn fór úr ráðuneytinu, því þekkingin á mála- flokknum fór með honum. Ekki er tekin saman heildstæð tölfræði, enginn heldur beinlínis utan um málefni bókasafn- anna eða gætir hagsmuna þeirra. Ráðuneytið á að fara með málefni allra bókasafna, en vinnan snýst kannski of mikið um rekstur og málefni Lbs-Hbs. Sum verkefni hafa verið flutt þangað, svo sem fagleg forysta, en sum hafa farið til Landskerfis eins og tæknimálin og sum til Upplýsingar eins og endurmenntunarhlutverkið. Enn önnur áttu að fara til Bókasafnaráðs svo sem stefnumótun, yfirlit um starfsem- ina, hagsmunagæsla og tölfræði. En þessi verkefni hafa því Útlána- og upplýsingaborð

x

Bókasafnið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.