Bókasafnið


Bókasafnið - 01.07.2018, Blaðsíða 68

Bókasafnið - 01.07.2018, Blaðsíða 68
68 Bókasafnið Greinin fj allar um rannsókn sem unnin var sem lokaverkefni í MIS námi í upplýs-ingafræði við Háskóla Íslands. Rann- sakað var hvaða þættir hafa áhrif á vel heppnaða innleiðingu upplýsingakerfi s og auk þess var efnið skoðað út frá aðferðum breytingastjórn- unar. Innleiðing á upplýsingakerfi felur ekki einungis í sér tæknilegar og rekstrarlegar breytingar heldur einnig breytingar á starfsháttum og venjum starfsfólks og þar af leiðandi vinnustaðamenningu skipulagsheildarinnar. Því mætti segja að innleiðingarferli á upplýsingakerfum snúist ekki síður um það að leiða starfsfólk í gegnum breytingar (Hogarth, 2001; Magnea Davíðsdóttir, 2013; Magnea Davíðsdóttir, Jóhanna Gunnlaugsdóttir og Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, 2016; Yen, Wen, Lin og Chou, 1999). Breytingastjórnun snýst einmitt um að skapa og viðhalda breytingum innan skipulagsheilda (Galpin, 1996). Því er gagnlegt að notast við aðferðir breytingastjórnunar til þess að innleiðingin heppnist sem skyldi (Magnea Dav- íðsdóttir o.fl ., 2016; Moran og Brightman, 2001; Jóhanna Gunnlaugsdóttir, 2007b). Þegar erfi ðleikar koma upp í inn- leiðingarferli snúast þeir oftar en ekki að mannlegum þátt- um, það er hvernig fólk bregst við breytingum á vinnuhátt- um, fremur en tæknilegum örðugleikum. Ef ekki er hugað vel að vinnustaðamenningunni í ferlinu, eykur það líkurnar á því að ferlið mistakist (Hogarth, 2001; Yen o.fl .1999). Í rannsókn þessari voru sex innleiðingarferli skoðuð, þó ekki með það að markmiði að greina innleiðingarferlin sjálf, heldur var tilgangurinn að öðlast innsýn inn í reynsluheim viðmælendanna og draga fram hvaða þætti þeir töldu mikil- væga í ferlinu. Hópur viðmælenda var fj ölbreyttur, með það að markmiði hafa nálgunina þverfaglega og auka þar með breidd á skilningi rannsóknarefnisins. Rætt var við ráðgjafa, verkefnisstjóra, gæðastjóra, deildarstjóra og skjalastjóra. Þar að auki var litið til mismunandi tegunda rekstrarforma. Notaðar voru eigindlegar rannsóknaraðferðir en tekin voru átta hálf-stöðluð djúpviðtöl. Tveir viðmælenda starfa hjá hugbúnaðar- og ráðgjafafyrirtækjum og síðan voru tekin viðtöl við þrjá viðskiptavini hvors þeirra. Í greininni verður vísað til viðskiptavinanna sem verkkaupa. Fjögur meginþemu komu í ljós. Þau voru upp- hafi ð, samvinna, kennsla og þjálfun og stjórn- unarhættir. Þessi þemu tengjast innbyrðis en í innleiðingarferli haldast mörg atriði í hendur og þurfa þau að vinna vel saman svo að ferlið gangi sem best. Allir viðmælendur voru einhuga um að undirbúningsvinna væri mikilvæg forsenda þess að innleiðingin gengi vel, því eins og annar ráðgjafi nn tók fram: „Því betri sem undirbúningurinn er, því betra er að ganga að verkefninu. Þá er bara minna um vandamál.“ Annar ráðgjafanna nefndi að það væri ekki nógu oft sem skipulagsheildir væru með starfandi skjalastjóra. Goldschmidt, Joseph og Debowski (2012) og Jóhanna Gunnlaugsdóttir (2007b) benda á mikilvægi þess að skjalastjórar taki þátt í þarfagreiningu, vali á kerfi sem og þróun og aðlögun þess að þörfum skipulagsheildarinnar. Í fj órum innleiðingarferlum af þeim sex sem voru skoðuð, voru starfandi skjalastjórar. Gregory (2005) og Yen o.fl . (1999) nefna að gott sé að setja saman teymi sem sér um innleiðinguna. Hjá öllum verk- kaupum, að einum undanskildum, var sett saman þverfag- legt teymi sem hélt utan um innleiðingarferlið og stýrði því. Undantekningin var ríkisstofnun og sagðist verkefnastjór- inn þar standa einn að innleiðingunni. Taldi hún það vera ókost og tjáði sig um það oftar en einu sinni á meðan við- talinu stóð að hún hefði gjarnan viljað hafa fl eiri sem ynnu að verkefninu. Nefndi hún sérstaklega að helst myndi hún vilja að það væri skjalastjóri. Þegar rætt var um samvinnu voru allir viðmælendur sam- mála um að hún væri ein af forsendum vel heppnaðs inn- leiðingarferlis. Þá er átt við samvinnu bæði á milli ráðgjafa og verkkaupa, sem og innanhúss þar sem innleiðingin átti sér stað. Viðmælendum þótti mikilvægt að samvinnan væri góð og töldu þeir góða samvinnu stuðla að vel heppnuðu innleiðingarferli, jákvæðu viðmóti og fj árhagslegum ávinn- ingi. Annar ráðgjafanna komst svo að orði: „Ef það næst upp góð samvinna, trúnaður og traust á milli aðila að þá er hægt að vinna sig út úr öllum vandamálum.“ Verkkaupar nefndu mikilvægi þess að „fá starfsfólk í lið með sér“. Einn „Fólk er svolítið eins og vatnið, það fer alltaf auðveldustu leiðina.“ Innleiðingarferli upplýsingakerfa Sigurrós Oddný Kjartansdóttir hefur lokið MIS í upplýsingafræði og starfar hjá upplýsingatæknideild Reykjavíkurborgar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.