Bókasafnið


Bókasafnið - 01.07.2018, Blaðsíða 27

Bókasafnið - 01.07.2018, Blaðsíða 27
Bókasafnið 42. árg – 2018 27 ritið einbeitt sér að jarðvísindum og tengdum greinum, en nú hafi verið tekin upp sú ritstjórnarstefna að birta greinar í öllum lífvísindunum, sem og annað efni sem ritstjórnin hefur áhuga á. Formerly focused on glaciology, glacial geology, physical geography, […], the journal now expands the coverage area to all aspects of the life sciences including human sciences and technologies. Jökull also publishes research notes and reports from expeditions, book reviews, and other materials of interest to the members of the editor- ial board. („Jokull Journal::Home“, e.d.) Blekkingin nær því það langt að gert er ráð fyrir að þeir sem hafa hugsað sér að skrifa fyrir tímaritið þekki til verka þess fyrir fram eða spyrjist fyrir um ritið. Þess ber þó að geta að rányrkjuútgefendur leitast almennt við að gefa út tímarit sem taka við efni á breiðari grunni en góðu hófi gegnir. Þannig er aukinn möguleiki á að ná til fleiri aðila sem gætu látið blekkjast. Útgefandi gervi-Jökuls auglýsir reglulega eftir greinum í tímaritið með því að senda dreifipóst á starfsfólk háskóla, þar á meðal Háskóla Íslands. Auglýsingapósturinn ræður sem betur fer ekki við íslenska stafinn Ö þannig að auglýs- ingin er ekki trúverðug. Tímarit sem vönd eru að virðingu sinni senda ekki dreifipóst að óska eftir greinum. Þegar ritnefnd blaðsins er skoðuð koma fram þrír aðilar sem eru tengdir við landið Ísland. Hvergi er minnst á háskóla, stöður eða tölvupóstföng þessara aðila. Yfirritstjóri er titluð J. Brandsdóttir. Ef Brandsdóttir er slegið inn í Leitir kemur í ljós að þetta á sjálfsagt að vera Bryndís Brandsdóttir jarð- fræðingur, en gervi-Jökull gefur henni gervifornafn. Annar ritstjóri staðsettur á Íslandi er F. Natesapillai. Sé honum slegið upp í Google leit berst slóðin til annarra tímarita, svo sem HFSP journal, þar sem Natesapillai er gefið franskt þjóðerni. Örlítil skoðun leiðir í ljós að þetta er einnig stolið tímarit. Það er því mikilvægt að skoða ritstjórn og ritstjórnarstefnu blaðanna til að sjá hvort einhverjir virtir fræðimenn sitja virkilega í ritnefndunum. Einnig er það skýrt merki þess að eitthvað er ekki eins og vera ber þegar ritstjórar eru ekki tengdir neinum háskólum eða fræðastofnunum og upp- lýsingarnar um þá eru af mjög skornum skammti. Einu upplýsingarnar um ritstjóra gervi-Jökuls er þjóðernið, ekki stöður ritstjórnarinnar. Annað atriði sem vekur athygli mína er útgáfutíðni tíma- ritsins. Hinn upprunarlegi Jökull er ársrit, kemur út einu sinni á ári. Árið 2016 innihélt Jökull samtals 12 greinar. Gervi-Jökull kemur út mánaðarlega og í hvert skiptið eru á bilinu 10 til 12 greinar gefnar út. Það merkir hátt í 140 greinar á ári og sjálfsagt líka að það eru að minnsta kosti 140 höfundar innan akademíu sem láta blekkjast af gervi- Jökli. Það ætti því að hringja viðvörunarbjöllum ef virt tímarit breytir skyndilega stefnu sinni í útgáfumálum. Fyrir utan það að starfsaðferðir gervitímaritsins eru byggðar á blekkingum, eru lýsingarnar á vinnuaðferðunum samb- ærilegar við það sem kemur fram hjá virðulegri tímaritum. Tímaritið gefur sig út fyrir að birta ritrýndar greinar og lýsir ritrýniferlinu á svipaðan hátt og önnur tímarit, mörgu er sagt hafnað og að tveir ritrýnar lesa handritið yfir. Hér er þó eitt atriði sem stingur svolítið í augu, ritrýniferlið er sagt taka um tvær vikur. 14 dagar frá því að handrit er fyrst sent til útgefanda og þar til greinin er tilbúin til útgáfu eftir að tveir óháðir ritrýnar á fræðasviðinu hafa lesið grein yfir þykir mér grunsamlega skammur tími. Ég veit reyndar ekki hver meðaltími ritrýni er hjá virtum útgefendum en efast um að hann sé innan við mánuður. Hér er verið að höfða til höfunda sem vilja ólmir koma greinum sínum út hið fyrsta, mögulega til að fá hraðari framgang í akademíunni. Þegar kemur að tekjulind útgefandans, höfundinum, er gervi-Jökull með furðulega stefnu til að rukka höfunda fyrir birtingu á greinum þeirra. Þar segir: Papers Submitted in the field of glaciology and related earth sciences There are no page charges for publication in Jökull for these papers, except for colour illustrations, and aut- hors receive a minimum of 10 reprints free of charge. Additional reprints may be ordered when galley proofs are returned to the editor. Iceland Glaciological Society covers the publication charges of these papers. Papers Submitted in other fields of the life sciences The authors of the rest of papers are charged in case of acceptance based upon the paper length, pictures, tables and etc.(„Jokull Journal::Home“, e.d.) Höfundar fræðigreina innan jarðvísinda eru ekki rukkaðir um neitt nema litmyndir en þegar kemur að öðrum fræði- greinum, sem ættu í raun aldrei að eiga neitt erindi í Jökul, þá er krafist einhverrar borgunar sem ekki er tiltekin ná- kvæmlega. Gervi-Jökull er ekki dæmi um tímarit í opnum aðgangi. Fyrir aðgang að hverri grein þarf að borga 40$ en 600$ fyrir aðgang að ritinu í heild. Útgefandinn fær því greiðslur bæði frá þeim sem heillast af áhrifastuðli tímaritsins og vilja birta greinar sínar þar, en einnig frá þeim sem vilja lesa greinarn- ar auk háskólabókasafna sem halda utan um útgefið efni fræðimanna sinna og kaupa áskriftir að tímaritunum. Gullinn opinn aðgangur Jeffrey Beall bókasafnsfræðingur hélt úti vefsíðunni Schol- arly Open Access, www.scholarlyoa.com, þar sem hann listaði upp nöfn tímarita og útgefenda sem hann taldi falla undir þann hatt að vera rányrkja innan opins aðgangs á lista sem bar heitið Beall‘s list: Potential, possible, or probable predatory scholarly open-access publishers. Nú hefur ann- ar ónafngreindur aðili tekið við vefsíðunni, eftir að Beall hætti að hans eigin sögn vegna hótana, ógnana og ofsókna útgefenda sem lentu á listanum; fræðimanna sem höfðu birt greinar hjá útgefendunum og voru ekki sáttir við að
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.