Bókasafnið


Bókasafnið - 01.07.2018, Síða 16

Bókasafnið - 01.07.2018, Síða 16
16 Bókasafnið Þann 24. nóvember á síðasta ári stóð Upplýsing fyrir málþinginu Samstarf og samstaða. Tilgangur mál-þingsins var að vekja athygli á þörf og mikilvægi þess að bókasöfnin í landinu og starfsfólk þeirra starfi og standi saman. Við vildum skoða hvað félagið, söfnin og við sem einstaklingar starfandi eða tengdir okkar fagi, gætum gert betur og hvaða væntingar við hefðum til frekara og öfl ugra samstarfs bæði innan og þvert á safnategundir. Við lögðum áherslu á að heyra frá sem fl estum sem tengjast faginu, inn- lendum og erlendum. Okkur fannst tilvalið að heyra frá erlendum aðila sem hefði reynslu af að starfa fyrir félag eins og Upplýsing er og gæti gefi ð okkur innsýn inn í sitt félag sem sinnir því að efl a samstarf og samstöðu innan síns fags. Við fengum því Mariann Schjeide, formann norska bókavarðafélagsins, til þess að koma og segja okkur frá sínu félagi og starfi sínu innan þess og hvernig þau ná að halda tengsl við önnur fag- félög og starfshópa innan fagsins í Noregi. Erindi Mariann var skemmtilegt og fræðandi og gaf góða innsýn inn í störf norska bókavarðafélagsins. Í ljós kom að starf þeirra og vandamál eru öðruvísi en okkar en einnig var margt mjög líkt. Íslenskt samstarf var hinsvegar efst á baugi. Eftir smá rann- sóknarvinnu komumst við í undirbúningshóp málþingsins að þeirri niðurstöðu að tilvalið væri og í raun nauðsynlegt að heyra frá fulltrúum fagfélaga og starfshópa mismunandi safnategunda. Þessir hópar hafa starfað lengi innan fagsins og endurnýjun í stéttinni er mikil og því þekkja ekki allir sem í okkar fagi starfa í dag, sögu þessara hópa. Því var tilvalið að fá erindi þar sem sagt var frá sögu og hlutverki hvers hóps og/eða félags og þeirra væntingum til frekara samstarfs. Síðasta erindi málþingsins hélt Ingrid Kuhlman og nefndist það „Sameinuð stöndum vér, sundruð föllum vér“ þar sem hún fræddi viðstadda um þær hindranir sem orðið geta í samstarfi og hvernig við getum leyst úr þeim. Erindið þótti lukkast vel. Í lok málþingsins voru pallborðsumræður og þátttakendur voru Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir landsbókavörður, Pálína Magnúsdóttir borgarbókavörður, Kristjana Mjöll Jónsdóttir Hjörvar formaður Upplýsingar, Rósa Björg Jóns- dóttir fulltrúi Bókasafns Móðurmáls og Rósa Harðardóttir grunnskólakennari á samsteypusafni Norðlingaskóla og Borgarbókasafns. Margt kom fram í þeim umræðum en það sem stóð uppúr var hve nauðsynlegt væri að efl a bókasöfn grunnskólanna og spáð í hvað við gætum gert til að ná til þeirra er ráða í efri lögum stjórnsýslunnar. Allir voru sam- mála um mikilvægi þessara hópa og félaga sem við höfðum heyrt frá á málþinginu og að enginn ætti að standa einn. Mikilvægt væri að koma á meira samstarfi á milli þeirra og að Upplýsing væri regnhlífi n sem skýli þeim öllum og vinni að hagsmunum þeirra allra. Einnig kom það fram frá Krist- jönu Mjöll, formanni Upplýsingar og frá öðrum núverandi og fyrrum stjórnarmeðlimum sem sátu úti í sal að félagið þyrfti vítamínsprautu í formi starfskrafta fólks í faginu. Í gegnum árin hefðu framboð og tilnefningar í störf innan félagsins minnkað svo verulega að í óefni stefnir. Stjórn félagsins endurnýjast að mestu, ef ekki öllu leyti, vorið 2018 vegna óviðráðanlegra aðstæðna og væri því mikilvægt að við Samstarf og samstaða, málþing Upplýsingar í nóvember 2017 Kristjana Mjöll J. Hjörvar er bókasafns- og upplýsingafræðingur á Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni og fyrrum formaður Upplýsingar. Formennirnir tveir, Mariann Schjeide og Kristjana Mjöll

x

Bókasafnið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.