Bókasafnið


Bókasafnið - 01.07.2018, Blaðsíða 40

Bókasafnið - 01.07.2018, Blaðsíða 40
40 Bókasafnið Dómsdagsspámenn hafa óttast dauða bókarinnar nokkurn veginn allt frá því að hún varð til. Og þeir sem ekki hafa spáð henni ótímabærum dauða, hafa óttast bókina sjálfa, og þá sérstaklega áhrifamátt hennar til valdefl ingar – eða bara afþreyingar. Rétt fyrir aldamótin 1800 skrifaði Jane Austen skáldsöguna Northanger Abbey, en þar gerir hún grín að áhyggjum karlmanna af bóklestri kvenna – að ekki sé talað um þau ósköp að konur færu sjálf- ar að skrifa bækur. Dystópíur frá fyrri hluta tuttugustu aldar gerðu ráð fyrir að bókin yrði eitt fyrsta fórnarlambið í ‚hinni nýju og góðu veröld‘. Fahrenheit 451 (1953, ísl. þýð. 1968) eftir Ray Bradbury fj allar um hvarf bókarinnar, titillinn vísar í það hitastig sem þarf til að brenna bækur. Þegar líður á öldina eykst bjartsýni rithöfunda lítið, í sæberpönk þríleik William Gibsons (1984-1988) er ekki aðeins bókin horfi n, heldur skáldlegt mál einnig – unglingspiltur hefur aldrei heyrt orðið „myndhverfi ng“. Utan skáldskaparins hafa dauðadómarnir dunið yfi r einn af öðrum í hvert sinn sem ný tækni kemur til sögunnar; kvikmyndin, útvarpið, sjónvarpið, myndbandið og nú síðast stafræna tæknin og tölvan. Rétt fyrir síðustu aldamót byrjuðu tilraunir með rafbækur sem umsvifalaust ollu því að bókafólk varð bæði hrist og hrært – og enn í dag virðist rafbókin ná að læsa klóm óttans í hjörtu bókaútgefenda og höfunda. En boðskapur dagsins er eftirfarandi: óttist eigi, því bókin er ekkert á förum. Eða réttara sagt, bókin er vissulega á stöðugri ferð og fl ugi, og nú sem aldrei fyrr, því nú er hún alltaf til reiðu, allsstaðar: á Rafbókasafninu: http://raf- bokasafnid.is. Rafbókasafnið var opnað 30. janúar 2017. Til að byrja með gátu einungis lánþegar Borgarbókasafnsins nýtt sér efni á þessu nýja bókasafni. 1. júní bættust þrettán ný almennings- söfn í samlagið og í árslok 2017 hafa öll almenningssöfn sem eru í Gegni aðgang að Rafbókasafninu. Notendur þurfa að eiga gild skírteini í einhverju þessara safna og með því að slá inn skírteinisnúmer og leyninúmer opnast aðgangur að útlánum á síðunni rafbokasafnid.is. Rafbókasafnið er samstarfsverkefni Landskerfi s bókasafna og Borgarbókasafns. Landskerfi sér um kerfi slega hlutann, skráningu, umsjón með þýðingum og fl eira en Borgar- bókasafnið hefur yfi rumsjón með þeirri hlið sem snýr að bókunum sjálfum, innkaupum og útstillingum á forsíðu safnsins. Þriðja höfuðið þursins er svo bandaríska rafbóka- veitan Rakuten Overdrive, en hún þjónar fj ölda bókasafna um allan heim. Rafbókasafnið er með samning við þessa veitu, kerfi ð kemur frá þeim og langmest af efninu er keypt þaðan. Rafbókasafnið er nú að verða árs gamalt og hefur dafnað vel og vandlega. Útlán aukast stöðugt, innkaupatillögum rignir inn og það er ljóst að lánþegar og lesendur taka þessum nýja valkosti fagnandi. Í júní 2018 er staðan sú að útlán eru 17.381, lánþegar eru 1.964, fj öldi titla er yfi r 6.000. 585 titlar hafa farið 10 sinnum og oftar í útlán. Á hverjum sólar- hring fara um 50 bækur í útlán. Meiri hluti bókanna er fyrir fullorðna, en einnig eru bækur fyrir börn, unglinga og ungmenni (YA), en þær síðast- nefndu njóta vaxandi vinsælda. Rafbókasafnið er langþráð viðbót í bókasafnafl óruna, en lesendur hafa beðið óþreyjufullir eftir því að bókasöfn hæfu útlán á rafbókum. Líkt og á öðrum bókasöfnum er safn- kosturinn fj ölbreyttur, en þar má fi nna skáldverk, fræðirit og rit almenns efnis, bæði nýtt efni og klassík. Lesendur geta átt von á því að hitta bæði Jane Austen og Ray Bradbury á göngum safnsins, og lesa fyrrnefndar bækur þeirra, heim- sækja fj arlægar slóðir í ferðabókum, smakka framandi rétti úr matreiðslubókum og njóta málverka í myndlistabókum. Meginhluti efnisins er á ensku og í formi „les”bóka, en hlutur hljóðbóka fer ört vaxandi, enda njóta þær sérlegra vinsælda. Því miður hefur gengið erfi ðlega að fá íslenskar bækur inn, en eins og áður segir virðist rafbókin vekja ótta og skelfi ngu meðal margra íslenskra útgefenda og höfunda. Kemur þar til tvennt: bókamarkaðurinn er lítill og menn hafa áhyggjur af því að rafbókin muni skerða hann og svo hefur útbreiðsla svokallaðra „sjóræningja” afrita verið til vandræða á sviði tónlistar og kvikmynda/sjónvarpsefnis. Menn óttast því að það sama gerist með rafbókina, að hún verði afrituð og komist þannig í endalausa dreifi ngu (af ein- Rafbókasafnið – bækur hér, bækur þar, bækur allsstaðar Úlfhildur Dagsdóttir er bókmenntafræðingur og verkefnastýra hjá Borgarbókasafninu. Hún er einnig sjálfstætt starfandi fræðikona og gagnrýnandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.