Bókasafnið


Bókasafnið - 01.07.2018, Blaðsíða 55

Bókasafnið - 01.07.2018, Blaðsíða 55
Bókasafnið 42. árg – 2018 55 Undirbúningsvinnan leiddi til þess að skipulagður var þjón- ustukjarni eða þekkingarmiðstöð, eftirsóttur íverustaður sem einkennist af lifandi og síkviku umhverfi, styður við fjölbreyttar námsaðferðir, rannsóknir og vinnulag, þar sem matsalur og sjálfsalar eru jafn sjálfsagðir hlutir og hver annar búnaður. Þekkingarmiðstöðin er nú í Espoo þar sem áður var til húsa bókasafn Tækniháskólans. Að auki eru enn starfræktir smærri þjónustukjarnar víðs vegar um Espoo og Helsinki, en stefnt er að því að öll þjónustan verði komin undir sama þak innan fárra ára. Til að koma til móts við nýjar þarfir og væntingar þurfti að endurskipu- leggja húsnæðið. Byggingin var hönnuð á sjöunda áratugnum af finnska arkitektinum Alvar Aalto (1898-1976) og er staðsett miðsvæðis á háskólasvæðinu. Á árunum 2015 til 2016 var hún tekin í gegn og þekkingarmiðstöðinni gefið nafnið Harald Herlin Learning Centre í höfuðið á Bror Harald Herlin (1874-1941), finnskum verkfræðingi og frumkvöðli. Ævistarf hans er talið tengja saman tækni, viðskipti, hönnun og frumkvöðlastarfsemi, það sem er kjarni starfsvettvangs hins nýja sameinaða háskóla (Aalto University, 2016). Herald Herlin Learning Centre vann Finlandia Prize for Architecture 2. október 2017 (Aalto University Learning Centre, 2017). Við endurbæturnar var húsinu breytt í fjölnota og nútíma- lega þekkingamiðstöð fyrir nemendur, starfsmenn og aðra viðskiptavini. Með aukinni áherslu á rafrænar heimildir hafa áherslur breyst. Rými sem áður var fyrir bækur, hefur nú nýju hlutverki að gegna fyrir notendur, alls kyns starf- semi og notendamiðaða þjónustu. Má þar nefna aðstöðu fyrir málstofur, uppákomur og sýningar. Í samvinnu við utanaðkomandi aðila er safninu einnig gert kleift að bjóða upp á annars konar þjónustu eins og kaffihús, FabLab og myndstúdío. Sérstök áhersla var lögð á að bera virðingu fyrir uppruna- legri hönnun Alvars Aaltos, þegar húsið var gert upp. Byggingin þykir endurspegla vel hönnun hans og þegar gengið er um húsið má glögglega sjá skyldleika við hönnun Norræna hússins í Reykjavík. Leiðsögukerfi er ofið í gólfteppið á jarðhæðinni Sýningarrými í anddyri hússins Gróa Finnsdóttir við gamla afgreiðsluborðið sem ekki er lengur notað sem slíkt, en ekki má fjarlægja vegna þess að húsið er friðað
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.