Bókasafnið - 01.07.2018, Síða 19
Bókasafnið 42. árg – 2018 19
Samstarfshópur bókasafnsfræðinga í fram-haldsskólum var stofnaður þann 6. mars 1985 í Fjölbrautaskólanum við Ármúla.
Síðan hefur mikið vatn til sjávar runnið og ör
tækniþróun orðið á bókasöfnum hér á landi.
Í upphafi þessa tímabils voru spjaldskrár á
söfnunum. Útbúa þurfti spjaldskrárspjöld
fyrir safngögnin. Það auðveldaði starfi ð þegar
hægt varð að kaupa spjaldskrárspjöld hjá Þjón-
ustumiðstöð bókasafna. Þegar spjaldskrárnar
voru tölvuvæddar – sem gjarnan voru átaksverkefni
- voru um nokkurn tíma líka prentuð spjaldskrárspjöld.
Hægt var að prenta beint úr tölvukerfunum sem í fl estum
tilfellum var MetraBók. Þegar notendatölvur voru settar
upp á söfnunum og spjaldskrárnar urðu óþarfar gátu not-
endur leitað í rafrænu skránum. Eitt af öðru sameinuðust
söfnin svo Gegni þegar hann kom til sögunnar.
Helstu markmiðin með stofnun SBF voru: að rjúfa faglega
einangrun en fl est söfnin voru einyrkjasöfn á þeim tíma; að
samræma starfshætti safnanna en þau voru tiltölulega ung,
stofnuð um og eftir 1980, fengu fyrst lagastoð í Lögum um
menntaskóla frá 1970; að vinna að faglegum hagsmunamál-
um safnanna og starfsmanna þeirra; bera saman reynslu
– efl a faglegan styrk safnanna og persónulegan styrk starfs-
mannanna.
Strax í upphafi var ákveðið að stofna ekki formlegt félag. Á
þessum tíma voru að minnsta kosti sex mismunandi félög
hjá starfsfólki bókasafna og misjafnlega gekk að manna
stjórnir. Grasrótarfyrirkomulagið varð því ofan á og settar
ákveðnar starfsreglur sem hafa reynst mjög vel og hafa ekki
þarfnast mikillar endurskoðunar í gegnum tíðina. Engin
formleg stjórn er, heldur kosið í eftirfarandi störf: tengill
og gjaldkeri annars vegar og umsjónarmaður póstlista og
skoðunarmaður ársreikninga hins vegar. Sama fólkið gegndi
þessum störfum til ársloka 2016, þær Þórdís T. Þórarins-
dóttir MS og Kristín Björgvinsdóttir FÁ. Umræðuhópur
SBF (frh-bok@listar.ismennt.is) var stofnaður á netinu
þann 7. desember 1994. Auðveldar hann mjög samskipti
milli safnanna, svo sem vegna millisafnalána, sem og um-
ræður um ýmis fagleg málefni. Fyrir daga tölvupóstsins tóku
söfnin á höfuðborgarsvæðinu að sér söfnin úti á landi og sáu
til þess að þau fylgdust með því sem fram fór og fengu þau
gögn sem dreift var á fundunum. Samstarf innan SBF hefur
alltaf verið einstaklega ánægjulegt og gefandi.
Árið 2015 var stofnaður lokaður Facebook hópur fyrir SBF
en hann hefur verið frekar lítið notaður nema í sambandi
við kynnisferð til Danmerkur og Svíþjóðar það sama
ár. Á árunum 1997-2015 naut SBF árlegs styrks frá
mennta- og menningarmálaráðuneytinu „til að
efl a faglegt starf á framhaldsskólastigi“ líkt og
önnur fagfélög í framhaldsskólum og skilað var
inn ársskýrslu þegar sótt var um árlegan styrk.
Árið 2016 lagði mennta- og menningarmála-
ráðuneytið styrkina niður.
Fundir eru haldnir til skiptis í framhaldsskól-
um landsins og hefur hópurinn gert víðreist. Farið
nokkrum sinnum norður og til dæmis haldið fundi á
Laugum, Akureyri og Húsavík. Einnig á Egilsstöðum,
Vestmannaeyjum og á Suður- og Vesturlandi svo eitthvað
sé nefnt. Þegar farið er norður og austur er gist eina nótt og
skipulögð dagskrá báða dagana. Til að byrja með voru fund-
ir haldnir mánaðarlega á starfstíma skólanna; nú á seinni
árum tveir fundir á önn. Á vorin er veglegur vorfundur þar
sem söfn og menningarmiðstöðvar eru sóttar heim einnig
jólafundur með upplestri rithöfundar. Í haust (2017) var
155. fundurinn haldinn. Fundargerðum og fylgiskjölum
hefur verið haldið saman fyrir alla fundina. SBF hefur í
gegnum tíðina unnið að ýmsum sameiginlegum fagleg-
um hagsmunamálum bókasafna í framhaldsskólum svo
sem tillögum í námskrá, umsögnum um lagafrumvörp og
námskrár, stefnumörkun, samræmingu starfshátta, svo sem í
lyklun, sameiginlegum áskriftum, innkaupum, tölvuvæðingu
almennt, notkun netsins og annarra tæknilegra nýjunga sem
snúa að söfnunum. Fulltrúar frá samstarfshópnum hafa fyrir
hönd hópsins tekið þátt í faglegu starfi á sviði bókasafns- og
upplýsingamála, til dæmis má nefna samstarf í sambandi við
aðild að Gegni, samskrá íslenskra bókasafna sem Landskerfi
bókasafna hf. rekur og Landsaðgang að rafrænum tímaritum
og gagnasöfnum, www.hvar.is, sem Landsbókasafn Íslands –
Háskólabókasafn sér um og fl est bókasöfnin eiga aðild að.
Þá má nefna samstarf um bókasafnskerfi ð MetraBók sem
var forveri Gegnis og nokkur framhaldsskólasöfn nota enn.
Það verklag er við lýði í samstarfshópnum að skipað er í
fámenna vinnuhópa um tiltekin afmörkuð verkefni. Slíkir
undirhópar leggja síðan niðurstöður sínar fyrir samstarfs-
hópinn í heild til umfj öllunar og samþykktar. Fulltrúar
SBF hafa auk þess tekið þátt í ýmsum vinnuhópum á sviði
bókasafns- og upplýsingafræði. Fulltrúar í vinnuhópa eru
kosnir á fundum félagsins.
Rekja má upphaf Lykilskrár Gegnis (lykilskra.landsboka-
safn.is) til SBF en höfundar Kerfi sbundins efnisorðalykils
fengu árið 1990 það hlutverk að taka saman efnisorðaskrá
SBF - Samstarfshópur bókasafns- og
upplýsingafræðinga í framhaldsskólum
Þórdís T. Þórarinsdóttir MLS, er fyrrverandi forstöðumaður bókasafns og upplýsingamiðstöðvar
Menntaskólans við Sund.