Bókasafnið - 01.07.2018, Side 31
Bókasafnið 42. árg – 2018 31
Bókasafns- og upplýsingafræðingar í grunnskólum Hafnarfj arðar hafa um árabil haft mikið og gott samstarf. Við hittumst mánaðarlega á fundum hver
hjá annarri þar sem við berum saman bækur og miðlum
ýmsum verkefnum og hugmyndum. Þetta samstarf er ómet-
anlegt þar sem við erum fl estar einyrkjar á okkar söfnum.
Samráðsfundirnir gefa okkur tækifæri á að læra hver af
annarri og velta á milli okkar hugmyndum. Við kynnum
verkefni sem við erum með í gangi á okkar söfnum og
miðlum þeim öllum til afnota. Þessir fundir gefa okkur líka
tækifæri til að aðstoða nýja samstarfsmenn, til dæmis við
ýmis viðfangsefni varðandi Gegni. Við höfum jafnvel að-
stoðað hvor aðra í grisjun og skipulagningu safna.
Við lánum safngögn á milli safna í miklum mæli sem spar-
ar sveitarfélaginu mikla fj ármuni. Þetta samstarf sannaði
sig þegar við tókum okkur saman á síðasta ári og rituðum
áskorun til bæjaryfi rvalda um nauðsyn þess að auka fj ár-
magn til safnanna verulega. Þetta fannst okkur mikilvægt í
ljósi þess að Hafnarfj örður ætlar að vera framarlega þegar
kemur að lestrarkunnáttu barna og unglinga. Þessi áskorun
okkar varð til þess að sveitarfélagið hækkaði fj ármagn til
safnanna um helming.
Á vordögum 2016 lagði þessi hópur svo land undir fót
og fl aug til Brighton á Englandi í námsferð. Okkur hafði
mörgum staðið til boða að fara í námsferðir með okkar
skólum, en langaði að fara í ferð sem myndi nýtast betur
í starfi okkar á söfnunum. Ferðin var skipulögð af Krist-
ínu Wallis sem lagði áherslu á að við myndum kynnast
skólasöfnum í ólíkum skólum og heimsækja almennings-
bókasafnið í Brighton.
Við byrjuðum á að heimsækja Cardinal Newman Catholic
School sem er skóli fyrir 11-18 ára. Þarna skoðuðum við
lesaðstöðu eldri barnanna, þar var vísir að svolitlu bókasafni
og þangað gátu nemendur komið og undirbúið sig fyrir próf
og verkefni. Þar höfðu þeir líka aðgang að tölvum.
Safn yngri nemenda líktist meira okkar söfnum og starf-
semin einnig. Þar var mikið úrval bóka, til dæmis lestrar-
bækur fyrir mismunandi getustig og ýmsar áhugaverðar
fræðibækur. Ýmis verkefni voru í gangi á safninu sem
hvöttu til lestrar. Á safninu störfuðu tveir bókasafns- og
upplýsingafræðingar ásamt aðstoðarmanni. Þannig skapast
möguleiki á að hafa safnið opið nemendum allan daginn.
Næst heimsóttum við Brunswick Primary School, sem er
skóli fyrir nemendur frá 4 - 11 ára. Í fl estum skólastofum
þar var vísir að bókasafni sem nemendur gátu gengið í og
kennarar héldu utan um. Fyrir grunnskólabörn skólans var
lítil kennslustofa sem rúmaði lítið bókasafn. Þar sáu nem-
endur um að afgreiða og raða í hillur undir umsjón eins
kennara. Það kom okkur á óvart hversu lítið safnið var.
Að lokum heimsóttum við almenningsbókasafnið Jubilee
Library, sem er staðsett í hjarta Brighton borgar í nýrri
glæsilegri byggingu. Þar skoðuðum við okkur um og feng-
um upplýsingar um hvað var í boði frá degi til dags. Ferðin
var skemmtleg og fræðandi í alla staði og mjög gott tæki-
færi til að þjappa hópnum enn betur saman og efl a samstarf
okkar enn frekar. Eins og áður segir er svona samstarf
ómetanlegt fyrir einyrkja á skólasöfnum og getur aldrei gert
annað en lyfta starfi bókasafnanna og þar með skólanna á
hærra plan.
Samstarf bókasafns- og upplýsinga-
fræðinga í grunnskólum Hafnarfjarðar
Guðný Birna Rosenkjær hefur lokið BA í
bókasafns- og upplýsingafræði. Hún starfar
sem bókasafns- og upplýsingafræðingur í
Lækjarskóla í Hafnarfi rði.
Þóra Jónsdóttir hefur lokið cand.scient.bibl. Hún
starfar sem bókasafns- og upplýsingafræðingur í
Öldutúnsskóla í Hafnarfi rði.