Bókasafnið - 01.07.2018, Síða 34
34 Bókasafnið
og menn komu sér upp tengslaneti og íhuguðu samstarfs-
verkefni í gegnum t.d. Nordplus og eTwinning. Þá skiptust
þátttakendur einnig á upplýsingum um verkefni og náms-
efni fyrir börn og unglinga á óformlegan hátt.
Landkynning
Okkur var boðið í skoðunarferð um gamla miðbæinn í
Zagreb. Þar var gengið um göturnar að kvöldlagi í nístings-
kulda. Við fræddumst um menningu og sögu borgarinnar
og þekktra borgarbúa í gegnum tíðina. Þarna voru heima-
slóðir verkfræðingsins og frumkvöðulsins Nikola Tesla
(1856-1943) en hann bauðst á sínum tíma til að vinna
að rafvæðingu borgarinnar. Hugmyndir hans hlutu ekki
brautargengi og enn er að miklu leyti notast við gaslýsingu
í miðbænum sem gerir andrúmsloftið sérstakt og dulúðugt.
Að lokinni skoðunarferðinni var sameiginlegur kvöldverður
á veitingastað við dómkirkjutorgið.
Önnur skoðunarferð var farin til bæjarins Krapina og þar
skoðuðum við safnið Krapina Neanderthal Museum en
á þessum slóðum hafa fundist minjar og bein frá tímum
neanderdalsmannsins. Safnið er mjög nútímalegt og veitir
góða innsýn inn í líf neanderdalsmanna sem talið er að
hafi dáið út fyrir um það bil 28.000 árum. Að því loknu var
litið við í verslunarmiðstöð og að lokum snæddi hópurinn
kvöldverð á veitingastað þar sem boðið var upp á þjóðlega
rétti og heimamenn fluttu þjóðsöngva og stigu þjóðdansa.
Lokaorð
Um gagnsemi námskeiða af slíku tagi þarf ekki að fjölyrða.
Fagleg umfjöllun eflir okkur í starfi og víkkar sjóndeildar-
hringinn svo ekki sé minnst á kynni af starfsystkinum, inn-
lendum sem erlendum. Í umræðum um framtíð skólasafna
var áberandi hversu lík áhersluatriðin voru. Söfnin eiga að
fóstra lestur af öllu tagi og efla með ráðum og dáð og ala
um leið upp stafræna borgara sem kunna að hagnýta sér
tæknina í námi og starfi. Í lokin veltum við meðal annars
fyrir okkur spurningunni um hvort bókin myndi hugsanlega
hverfa af sjónarsviðinu á næstu árum. Og þó þeirri spurn-
ingu hafi verið svarað neitandi voru menn sammála um að
hlutverk skólasafnanna hafa breyst mikið og að tækifærin
sem nú bjóðast í starfinu virðast óþrjótandi.
Anna Guðmundsdóttir Grunnskólanum í Borgarnesi
Anna Sigurðardóttir Hraunvallaskóla
Ásdís Árnadóttir Áslandsskóla
Guðný Birna Rosenkjær Lækjarskóla
Guðrún Níelsdóttir Síðuskóla
Halla Svavarsdóttir Víðistaðaskóla
Heiða Rúnarsdóttir Háteigsskóla
Ingunn Sigmarsdóttir Giljaskóla
Jóhanna Júlíusdóttir Hólabrekkuskóla
Margrét Aradóttir Hrafnagilsskóla
Rósa Harðardóttir Norðlingaskóla
Sif Heiða Guðmundsdóttir Hvaleyrarskóla
Sigríður Margrét Hlöðversdóttir Brekkuskóla
Þóra Jónsdóttir Öldutúnsskóla
Landsfundur Upplýsingar 2018
verður haldinn í Silfurbergi í Hörpu
dagana 25. – 26. október
Taktu daginn frá!
Fólk, tækni og rými
Spennandi fyrirlestrar um fólk, tækni og rými,
allt frá áherslu á þjónustu í framlínu, breyttar
þarfir notenda í stafrænum heimi yfir í
umbreytingu rýmis bókasafna.
Lykilfyrirlesarar verða þeir Reinert Andreas
Mithassel, deildarstjóri Biblio Toyen í Noregi
og Aat Vos, arkitekt sem hefur hannað
fjölmörg bókasöfn víðsvegar í Evrópu.
Eigum góða
daga saman í Hörpu!