Bókasafnið - 01.07.2018, Page 42
42 Bókasafnið
Lagt er í gönguferð. Kannski gerist ekkert – en stund-um gerist eitthvað. Einstaka sinnum gerist eitthvað svo merkilegt á göngunni að úr verður „ævintýri á
gönguför“. Landnám Rafbókasafnsins er eitt slíkt ævintýri.
Um það skrifaði Sveinbjörg Sveinsdóttir grein í Bókasafnið
fyrir ári síðan (Sveinbjörg Sveinsdóttir, 2017). Hér verður
sagt frá uppsetningu Rafbókasafnsins á Íslandi en annars
staðar í blaðinu segir Úlfhildur Dagsdóttir m.a. frá konfekt-
inu sem er að fi nna í safninu (Úlfhildur Dagsdóttir, 2018).
OverDrive
Fólkið sem þar vinnur
Ekki var blekið fyrr þornað á samningnum sem Landskerfi
bókasafna2, Borgarbókasafnið3 og OverDrive4 undirrituðu
þann 17. október 2016, en að vinna við uppsetningu og
innleiðingu Rafbókasafnsins hófst. Við vorum kynnt fyrir
tæknilegum tengilið okkar í höfuðstöðvunum í Cleveland,
Ohio og öðrum tengilið sem settur var okkur til aðstoðar
við uppbyggingu safnkostsins. Samvinnan við þau og annað
starfsfólk OverDrive hefur verið einstaklega góð og starfs-
fólkið leggur sig fram við að uppfylla sinn hluta samnings-
ins. Það gerðum við líka.
Bókakosturinn
Með hvaða bókum á að opna Rafbókasafn? Það var stóra
verkefnið sem starfsfólk Borgarbókasafnsins stóð frammi
fyrir. Gegnum það ferli leiddi starfsfólk OverDrive Borg-
arbókasafnið ljúfl ega, enda því hundvön. Þau vita hver er
hæfi leg blanda „góðra bókmennta“, krimma, ástarsagna,
sagnfræði, ferðabóka og annarra
bóka um heima og geima.
Auðkenning
Auðkenning lánþega Raf-
bókasafnsins fer fram gegnum vefþjónustu í Gegni. Lánþegi
skráir sig inn á vef Rafbókasafnsins með því að setja inn
númer bókasafnskorts síns og lykilnúmer, sem er það sama
og á leitir.is. Þjónar OverDrive taka við skráningunni og
senda boð á Gegni til þess að spyrja hvort lánþeginn sé með
gilt bókasafnskort í því bókasafni sem hann valdi í inn-
skráningunni og hvort skírteinisnúmer og lykilnúmer séu
rétt. Þegar allt er eins og það á að vera fl ýgur lánþeginn inn
í Rafbókasafnið. Sé lánþega ekki hleypt inn í Rafbókasafnið
þarf hann eða hún að hafa samband við bókasafnið sitt til
þess að kanna hvert vandamálið er.
Vefur Rafbókasafnsins
Allur vefur Rafbókasafnsins kemur tilbúinn frá OverDrive.
Það þurfti síðan að fá hannað lógó fyrir Rafbókasafnið og
ákveða hverjir skyldu vera einkennislitir þess. Leitað var til
Hvíta hússins5 sem hannaði lógóið. Þá þurfti að ákveða á
hvaða tungumál ætti að vera hægt að stilla vefi nn. Kveðið
var á um það í samningnum að Rafbókasafnið myndi bjóða
upp að íslenskt viðmót. Þá urðu enska, danska og spænska
einnig fyrir valinu. Pólskt viðmót er ekki enn í boði.
Rafbókavefurinn þýddur
Þá var að snara vefnum yfi r á íslensku. OverDrive hefur
á sínum snærum þýðingarfyrirtækið Mad Translations6.
Brjáluðu þýðendurnir þýddu vefi nn og reyndist það nokkuð
brjáluð þýðing sem birtist okkur á vefnum, en þó ekki alvit-
laus. Ljóst var þó að ekki hélt Íslendingur á penna og alls
ekki bókavörður. Til þess að „íslenska” þýðinguna fengum
við allan texta vefsins sendan, enska textann og íslensku
þýðinguna, alls um 2.000 textastrengi til þess að rýna og
gera breytingar. Þóra Sigurbjörnsdóttir á Borgarbókasafni
var fengin í verkið með undirritaðri. Þetta var nokkuð sér-
stök vinna þar sem í mörgum tilvikum var ekki hægt að sjá í
hvaða samhengi textinn var. Ragna Steinarsdóttir sem situr
í Efnisorðaráði Gegnis, fór yfi r efnisorðin sem bókunum
eru gefi n. Hún bjargaði þar því sem bjargað varð. Efnisorðin
sem notuð eru á vef Rafbókasafnsins koma frá bókaútgef-
endum sjálfum og oft setja þeir söluvænlegustu efnisorðin á
bækur sínar, frekar en þau sem lýsa þeim best.
Rafbókasafnið1 – „Ævintýri á gönguför“
Þóra Gylfadóttir er upplýsingafræðingur og verkefnastjóri hjá Landskerfi bókasafna hf.
1. http://rafbokasafnid.is/
2. https://www.landskerfi.is/
3. http://borgarbokasafn.is/
4. https://www.overdrive.com/
5. http://www.hvitahusid.is/
6. https://www.madcapsoftware.com/services/translation/