Bókasafnið


Bókasafnið - 01.07.2018, Side 50

Bókasafnið - 01.07.2018, Side 50
50 Bókasafnið Þroskastig og fræðsla Niðurstöðurnar úr þessum könnunum hafa verið birtar í skýrslum sem aðgengilegar eru á vef safnsins. Þá hefur Þjóðskjalasafn einnig unnið að árangursmati í formi þroska- stiga, en með þeim er hægt að meta stöðu afhendingar- skyldra aðila og sjá hvort ráðgjöf og eftirlit skjalavarða Þjóð- skjalasafns hafi borið árangur. Þroskastig hverrar stofnunar er fundið með því að setja svör hennar inn í stigatöflu sem gefur heildarstigafjölda hverrar stofnunar. Þar sem að Þjóð- skjalasafn hefur nú framkvæmt tvær heildarkannanir, 2012 og 2016, er hægt að bera saman niðurstöðurnar úr þeim og þróunina á skjalavörslu og skjalastjórn afhendingarskyldra aðila. Það var mjög ánægjulegt að sjá breytingu á þroska- stigunum til hins betra eftir seinni könnunina og gaf það til kynna að starf okkar á Þjóðskjalasafni væri að skila sér í bættari reglufylgni okkar afhendingarskyldra aðila. Þjóðskjalasafn hefur á undanförnum árum aðallega ein- beitt sér að fræðslu til skjalastjóra og þeirra sem starfa við skjalastjórn hjá hinu opinbera. Meðal annars hafa verið haldin nokkur námskeið ár hvert undanfarin ár og heldur Þjóðskjalasafn úti Youtube rás með fræðsluefni ásamt því að senda út regluleg fréttabréf með nýjustu fréttum og upplýs- ingum til skjalastjóra. Að auki starfa nokkrir ráðgjafar sér- staklega við það að veita afhendingarskyldum aðilum upp- lýsingar og ráðgjöf um þeirra skjalavörslu og skjalastjórn. Eftirlitsheimsóknir Til að styrkja þennan góða árangur enn frekar stendur nú fyrir dyrum að móta og fara af stað með skipulagt eft- irlit af hálfu Þjóðskjalasafns. Undirbúningsvinna er hafin og felst hún meðal annars í því að fastmóta framkvæmd eftirlitsheimsókna og ferli þeirra ásamt því að skilgreina áhættuþætti í skjalavörslu og skjalastjórn. Út frá því verð- ur útbúið áhættumat miðað við stöðu stofnana í síðustu eftirlitskönnun. Með skilgreiningu áhættuþátta er átt við til dæmis hvort hætta er á því að skjöl glatist við óbreytt ástand. Gert er ráð fyrir því að mótuð verði stefna um eftirlit fyrir þrjú til fjögur ár í senn byggt á niðurstöðum kannana, hvar helst er þörf á aðhaldi og eftirliti. Þannig verði hægt að leggja áherslur á til dæmis rafræn kerfi eða skjalageymslur fyrst um sinn en svo breyta áherslunum í samræmi við niðurstöður eftirlitskannana á fjögurra ára fresti. Þjóðskjalasafn Íslands verður, eins og aðrar stofnanir, að forgangsraða verkefnum sínum og þrátt fyrir góðan vilja er ekki möguleiki að framkvæma eins margar skipulagðar eftirlitsheimsóknir og þyrfti. Í síðustu stefnumótunaráætlun, sem gildir 2014-2018, er gert ráð fyrir 10-15 eftirlitsheim- sóknum á ári og verður það markmiðið áfram. Stefnt er að því að þær stofnanir sem metnar eru með skjalasöfn sem eru í mikilli hættu ef ekkert er að gert, eða með öðrum orðum eru í mikilli þörf fyrir eftirlit og ráðgjöf, munu vera í forgangi við skipulag eftirlitsheimsókna. Þjóðskjalasafn mun ekki vera með óundirbúið eftirlit heldur tilkynna það eftirlitsþeganum með góðum fyrirvara ásamt því að óska eftir upplýsingum sem nauðsynlegar eru fyrir undirbúning heimsóknarinnar. Eftirlitsheimsóknirnar sjálfar munu vera nokkuð formlegar og stuðst verður að miklu leyti við fyrir- fram ákveðinn spurningalista. Það getur þó verið misjafnt hvaða þættir eru skoðaðir sérstaklega eða nánar eftir því hvaða áherslur eru í verkefninu hverju sinni en þær stofn- anir sem sæta eftirliti verða upplýstar um það með góðum fyrirvara. Eftir heimsóknina útbýr starfsmaður skýrslu frá heimsókninni sem stofnunin fær til yfirlestrar og getur hún gert athugasemdir ef þurfa þykir. Skýrslan verður opinbert skjal og verða þar athugasemdir útlistaðar sem og tillögur að úrbótum eins og við á. Þetta skjal geta starfsmenn eftirlits- þegans þá notað til að rökstyðja þær úrbætur sem gera þarf. Þjóðskjalasafn hefur nú þegar tekið einn þátt til sérstakrar skoðunar í eftirliti sínu en árið 2014 voru skjalageymslur Stjórnarráðs Íslands teknar út og kom skýrsla safnsins um þessa úttekt út árið 2016. Eftirlitið fór þannig fram að skjalavörður Þjóðskjalasafns boðaði heimsókn og skoð- aði allar geymslur ráðuneytanna og tók þær út með tilliti til alþjóðlegs staðals um skjalageymslur og leiðbeininga Þjóðskjalasafns um sama efni. Úttektin tók aðallega til öryggis skjalanna út frá aðgengi, hita- og rakastigi, tjón- hættu vegna vatns eða bruna og aðbúnaðar í geymslunum. Niðurstaða úttektarinnar var sú að öll ráðuneytin þurftu að fara í einhverjar endurbætur hjá sér til að fá samþykki Þjóð- skjalasafns fyrir þeim og margar uppfylltu ekki lágmarks- kröfur um skjalageymslur. Að lokum Markmið skipulags eftirlits er ekki að íþyngja afhendingar- skyldum aðilum eða reyna til hins ítrasta að finna þætti sem megi gagnrýna heldur að aðstoða skjalastjóra og þá er vinna við skjalavörslu og skjalastjórn að fá yfirlit yfir þá þætti sem betur megi fara í starfseminni og veita ráðgjöf og aðstoð. Langtímamarkmið þessa verkefnis er að ná fram aukinni reglufylgni afhendingarskyldra aðila og þannig tryggja betri skjalavörslu og skjalastjórn til framtíðar enda er það hagur stjórnsýslunnar og almennra borgara sem eiga í samskiptum við hið opinbera.

x

Bókasafnið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.