Bókasafnið - 01.07.2018, Síða 52
52 Bókasafnið
fyrra skrifaði og sendi hópurinn frá sér sameiginlega yfir-
lýsingu til forseta IFLA í nafni hvers félags þar sem IFLA
var hvatt til þess að hafa tjáningarfrelsi og upplýsingafrelsi
að lykilatriði í komandi verkefnum sínum þar á meðal
Global Vision verkefnis IFLA sem byrjað var á í apríl 2017
og stendur enn yfir. Önnur yfirlýsing er svo í bígerð frá
Norðurlöndunum varðandi val á staðsetningu IFLA ráð-
stefnunnar árið 2018 en hún verður haldin í Malasíu. Þykir
það stinga í stúf, svo vægt sé til orða tekið, að land sem
samþykkir ekki LGBTQI fólk og viðheldur ritskoðun skuli
vera valið sem vettvangur IFLA ráðstefnu þegar grunngildi
bókasafna og IFLA snúa meðal annars að því að fylgja eftir
þeim grundvallaratriðum sem sett eru fram í mannréttinda-
yfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna.
Samstarf Upplýsingar við IFLA hefur aukist talsvert á
síðustu tveim árum og má þar nefna þátttaka eða undirbún-
ingur hennar í tveim verkefnum IFLA. Annars vegar er það
fyrrnefnt Global Vision verkefni og hinsvegar IFLA Libr-
ary Map of the World.
Global Vision verkefni IFLA var sett af stað í apríl 2017
og markmið þess er að sameina og efla starf bókasafna
og bókasafnsfræðinga um allan heim. Haldnar voru sex
vinnustofur víðsvegar um heiminn þar sem einum fulltrúa
bókasafna frá hverju landi var boðið að taka þátt, koma
með hugmyndir og leggja drög að víðtækri sýn á sviði
bókasafna og fags okkar í heild. Spáð var í spurningum eins
og hvað er hlutverk bókasafna í dag og hvernig verður það á
morgun, hvað eru bókasöfnin að gera rétt og hvað geta þau
gert meira af. Ég sjálf tók þátt í síðustu vinnustofunni sem
haldin var í Madrid á Spáni fyrir fulltrúa Evrópulanda. Í
kjölfar vinnustofunnar áttu fulltrúar að fara heim og halda
sína eigin vinnustofu ásamt því að hvetja fólk í sínu landi til
þess að taka þátt í netkosningu sem opnuð var með pomp
og prakt á IFLA ráðstefnunni í Wroclaw í Póllandi í ágúst
2017. Vinnustofan í Madrid var haldin mjög nálægt þeim
tímamörkum sem fulltrúum landanna var gefinn til að halda
vinnustofu í sínu landi. Vegna þessa náðist ekki að halda
vinnustofu hér heima og gerðist það því miður í fleiri lönd-
um. IFLA hafði skilning á því en við tókum hinsvegar þátt
í netkosningunni og var ánægja með þátttöku Íslendinga í
henni. Næstu skref í Global Vision verkefni IFLA er skýrsla
sem á að koma út í mars 2018 og er því vonandi komin út
þegar þessi grein er lesin. Einnig stendur til að halda aftur
vinnustofur á þessu ári en þar sem þá á að vera búið að
marka þessa víðtæku stefnu á sviði bókasafna og fags okkar
er tilgangur komandi vinnustofa að spá og skoða hvernig
hægt er að nýta þá stefnu svo vel sé. Lokaútkomu verkefnis-
ins er að vænta í mars 2019.
IFLA Library Map of the World var formlega opnað á
IFLA ráðstefnunni í Póllandi í ágúst 2017 og er gagna-
safn sem er inniheldur ýmsa tölfræði um um bókasöfn
víðsvegar um heiminn. Hægt er að sjá upplýsingar um
fjölda bókasafna, stöðugildi þeirra, tegundir og margt fleira í
hinum ýmsu löndum. IFLA hefur aflað gagna í gagnasafnið
með því að bjóða fulltrúum bókasafna í hverju landi að
fylla út könnun með upplýsingum um öll söfn í landinu,
hve mörg þau eru, hvaða tegundir safna eru til og hve mörg
söfn eru innan hverrar tegundar, hversu mörg stöðugildi
þau hafa, útlána- og gestatölur og margt fleira. Ísland er í
gagnasafninu en eingöngu með eitt safn, Landsbókasafn
Íslands og því auðvelt að afla þeirra gagna sem þurfti. Gögn
um aðrar safnategundir og söfnin innan þeirra eru til hjá
til dæmis Landskerfi bókasafna, hjá sveitarfélögum og svo
framvegis en það eru hrágögn sem á eftir að vinna með
áður en hægt er að skrá þau í þetta gagnasafn IFLA um
bókasöfn heimsins. Árlega er haldin könnun þar sem hægt
er að bæta við upplýsingum í gagnasafnið og því ekkert
því til fyrirstöðu að bæta við nýjum gögnum um íslensk
bókasöfn um leið og gögnin eru tilbúin. Farið verður í það
á næstu vikum að finna einhvern sem hefur getu og áhuga
til að vinna þessi gögn fyrir Upplýsingu og verður sú vinna
vonandi hafin þegar Bókasafnið kemur út.
Þessi tvö ár sem ég hef starfað sem formaður Upplýsingar
hafa svo sannarlega verið viðburðarík og óhætt að segja að
nóg hafi verið að gera. Starfið hefur fært mér gríðarlega
reynslu í bankann, ómælda ánægju og stundum smá stress
en það er ekkert gaman að lífinu ef það er ekki stundum
smá pressa! Ég vona að félagsmenn og aðrir séu sáttir með
störf mín og þeirra stórkostlegu kvenna sem sátu með mér
í stjórn félagsins. Fyrir hönd stjórnar félagsins árin 2016-
2018 þakka ég kærlega fyrir okkur og óskum við nýrri stjórn
ánægjulegs og farsæls starfs.
Stjórn Upplýsingar árið 2016-2018. Frá vinstri: Alda Davíðsdóttir,
meðstjórnandi, Sigurlaug Rósa Guðjónsdóttir, varaformaður, Magný
Rós Sigurðardóttir, gjaldkeri, Kristjana Mjöll Jónsd. Hjörvar, formaður
og Jóna Guðmundsdóttir, ritari.
Gestir í vísindaferð til Kvikmyndasafns Íslands í apríl 2017