Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2018, Blaðsíða 10
10 FÓLK - VIÐTAL 19. október 2018
„Hún bauð mér í heimsókn og
fékk áfall þar sem ég starði út í
loftið, gjörsamlega búin, uppgef-
in á sál og líkama. Í kjölfarið fór
ég að reyna að leita mér lækn-
inga,“ segir Katrín.
Að hennar sögn upplifði hún
það sterkt að hún hefði ekki stuðn-
ing yfirmanna Fjársýslunnar í bar-
áttu sinni. „Það var látið greinilega
í ljós með ýmsum athugasemd-
um. Á árshátíð í Stykkishólmi gekk
ég skyndilega frá samræðum til
þess að fara að veipa og þá spurði
fjársýslustjóri mig hvort mig vant-
aði athygli núna. Þá bauð móðir
mín mér og börnunum í afslöpp-
unarferð til Kanaríeyja um jólin
þegar ég var í veikindaleyfi. Þá var
skráð á mig orlof og gefið í skyn að
ég gæti allt eins mætt til vinnu eins
og fara í frí. Það var þó leiðrétt eft-
ir að ég gerði athugasemd við það.
Ég get nefnt mörg önnur dæmi,“
segir Katrín.
Neitað um aðstoð við
sálfræðikostnað
Í byrjun janúar 2018 hóf Katrín
aftur störf hjá Fjársýslunni en
þá aðeins í hálfu starfi. Verkefn-
in höfðu hrannast upp og hún
upplifði mikinn þrýsting um
meira vinnuframlag en ákveðið
hafði verið þegar hún sneri aft-
ur. Skömmu síðar byrjuðu líkam-
legu einkennin að láta á sér kræla
að nýju og í lok janúar neyddist
Katrín til að fara aftur í veik-
indaleyfi.
Næstu mánuði var Katrín í afar
slæmu andlegu ástandi. „Ég var
mjög langt niðri en reyndi mitt
ýtrasta til þess að ná bata,“ segir
hún. Í febrúarlok fékk hún skila-
boð þess efnis frá Pétri starfs-
mannastjóra að hún ætti lítið eftir
af veikindarétti sínum. „Ég óskaði
eftir því að fá 13 vikur aukalega
vegna starfstengds sjúkdóms en
því var hafnað. Því var sömuleið-
is hafnað að aðstoða mig varðandi
kostnað við sálfræðiþjónustu,“
segir Katrín sem fundaði með
stéttarfélagi sínu vegna málsins.
Alls var Katrín í launalausu
veikindaleyfi í 225 daga. Um sum-
arið fór hún með vinkonu sinni til
Balí og var sú ferð hugsuð til að
styrkja hana andlega og ná heilsu
á ný. „Skömmu áður höfðu mér
borist skilaboð frá Pétri starfs-
mannastjóra um að ég hefði frest
til 1. september til að snúa aftur
til vinnu og að það væri ófrávíkj-
anlegt skilyrði að það yrði 100%
starfshlutfall,“ segir Katrín.
Í dagbók Katrínar frá lok janúar
2018 segir:
„Líkamleg einkennin komin á
fullt aftur, hiti, þrýstingur í höfði,
svefnleysi. Ég fór aftur í veik-
indaleyfi.“
Í dagbók Katrínar um miðjan
mars 2018 segir:
„Verkefnastjórinn minn bað mig
að koma við og setja fjarvistartil-
kynningu á tölvupóstinn minn og
ég sagði honum að ég myndi koma
við þegar að flestir væru farnir.
Þegar að ég ætla svo að fara inn
í FJS þá var búið að aftengja að-
gangskortið mitt. Verkefnastjórinn
minn varð miður sín.“
Martröð í Paradís
Balíferð Katrínar, sem átti að vera
eins konar upphaf að betri heilsu
hennar, breyttist þó í martröð.
Vinkonurnar voru staddar nærri
Lombok-eyju þegar afar öflug-
ur jarðskjálfti, 7 á Richterkvarða,
gekk yfir. Þak hótelsins sem þær
dvöldu á hrundi niður og allt var
á tjá og tundri. „Þetta var algjör
hryllingur. Eyðileggingin var al-
gjör og við sáum lík fólks borin
fram hjá okkur,“ segir Katrín.
Þegar heim var komið óskaði
hún eftir því að fá að hefja störf
aftur 1. október enda hefði áfall-
ið ytra haft slæm áhrif á heilsu
hennar. Það kom ekki til greina af
hálfu Fjársýslunnar og það þrátt
fyrir að trúnaðarlæknir stofn-
unarinnar hefði metið Katrínu
með fjölþætta áfallastreitu og að
hún væri engan veginn hæf til
þess að vinna 100% vinnu. „Í kjöl-
farið hringdi starfsmannastjór-
inn í mig og bað mig afsökunar
á því hvernig hann hefði með-
höndlað mín mál.“
Í dagbók Katrínar frá 5. sept-
ember 2018 segir:
„Hitti Teit trúnaðarlækni sem
sagði að ég væri klárlega ekki
starfshæf. Ég væri augljóslega
með fjölþætta áfallastreitu
„Ég fann
kyrfilega
fyrir því að það
var álitið eins og
ég væri með ves-
en og að ég væri
að svíkjast um
Smiðjuvegur 4C - 202 Kópavogur - S 587 2202
Ryðga ekki
Brotna ekki
HAGBLIKK
Álþakrennur & niðurföll
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt, silvurgrátt og dökkgrátt