Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2018, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2018, Side 20
20 FÓLK - VIÐTAL 19. október 2018 Þ að hefur tekið listamann- inn tíma og metnað að komast á þann stað sem hann er á í dag en hann hefur sent frá sér fimm breiðskíf- ur og yfir tuttugu smáskífur. Á leiðinni hefur hann lent í ýmsum uppákomum. Fimmta breiðskífa kappans leit dagsins ljós fyrr í vik- unni undir heitinu FIMM. Sjálf- skoðun og aðra upplifun á sjálfum sér segir Gauti hafa valdið því að platan hafi orðið rólegri og farið í aðra átt en þær fyrri. Gauti er með mörg járn í eldinum þessa dagana en hann vinnur nú að opnun nýs veitingastaðar í vestur bæ Reykja- víkur, útgáfutónleika á Akureyri og jólatónleika í Gamla bíói. DV ræddi við Gauta í einlægu við tali um upprunann, ferilinn, eiturlyfjavanda ungs fólks og árás sem hann varð fyrir eftir tónleika á Prikinu. Lagði sig og missti vinnuna Byrjum á byrjuninni. Hvar ertu alinn upp? „Ég er fæddur á Akureyri og bjó þar fyrstu þrjú ár ævinnar. Ég seg- ist stundum vera Akureyringur þegar það hentar, alveg eins og ég segist vera úr Breiðholtinu þegar það hentar. En ég er alinn upp í Breiðholti og mitt heimahverfi er Seljahverfið, þó svo að hjartað sé alltaf fyrir norðan líka. Foreldrar mínir voru einhvern tímann saman en það var ekki á mínu æviskeiði. Ég hef alltaf litið ótrúlega mikið upp til þeirra varð- andi hvað þau hafa haldið frá- bæru sambandi. Það var bara tek- in ákvörðun þeirra á milli um að annað gengi ekki, en þannig á það líka að vera. Það kennir manni að kyngja egóinu, stoltinu og gera hvað sem þarf fyrir börnin.“ Hvað tók við eftir Seljaskóla og hvar varstu að vinna á yngri árum? „Ég var í Seljaskóla og hætti í tíunda bekk. Ég tók eina önn á listnámsbraut í Fjölbrautaskólan- um í Breiðholti en gafst fljótt upp á því. Þá fór ég eina önn í bakar- ann og kokkinn í Menntaskólan- um í Kópavogi. Það var eitthvað voðalega kósí við það að geta bak- að fyrir sjálfan sig, þangað til að ég áttaði mig á því hvernig vinnutími bakarans er. Bakarar vinna alltaf snemma alla morgna á meðan kokkurinn er að langt fram eftir kvöldi, þess vegna hraktist ég úr því. Eftir þetta tók ég mér pásu og fór að vinna. Ég fór að ferð- ast, vinna í hinu og þessu og fann að ég var ekki tilbúinn til þess að mennta mig á þessum tíma. Í níunda og tíunda bekk tók ég unglingavinnuna og vann síð- an í fatabúðum. Svo fór ég að fylla goskæla fyrir Vífilfell og malbik- aði eitt sumar. Ég man líka að ég vann aðeins í Húsasmiðjunni áður en ég var rekinn.“ Af hverju varstu rekinn? „Ég vann þarna með Kidda, vini mínum, og ég man alltaf að við vorum reknir með viku milli- bili. Hann sofnaði í baðkari og ég sofnaði uppi á borði. Ég var reyndar líka rekinn hjá Vífilfelli. Ég var mættur í eina Bónusversl- unina til að fylla á en ákvað að leggja mig í einni hillunni fyrir opnun. Þá sofnaði ég og vakn- aði eftir opnun. Það var klögu- skjóða í búðinni sem lét yfirmann minn vita og þannig missti ég þá vinnu. Svo fór ég að vinna aftur í fatabúð og held að ég hafi staðið mig ágætlega þar. Síðan fór ég að vinna aðallega á veitingastöðum og börum þangað til ég hætti að vinna svona störf og sneri mér að músík.“ Líður eins og ketti Þegar þú ert að finna sjálfan þig sem tónlistarmann á þess- um árum, hvernig gerist það að henda sér út í þennan bransa frá byrjunarreitnum? „Þetta var rosalega langur tími. Ég byrja að semja tónlist ungur og þá var engin regla á þessu. Ég byrjaði að semja eitt og eitt lag og kom því frá mér. Þá var helsta „platformið“ að gefa þetta út á Huga.is eða Hiphop.is. Ég spilaði mikið í Norðurkjallaranum og á félagsmiðstöðvum og slíkum stöðum. Það var 2007 þegar ég byrja í hljómsveit sem heitir Ská- bræður. Þá fór ég að sýna þessu meiri áhuga og fann fyrir því að mig langaði að gera tónlist. Stefn- an var svo sem ekki að gera þetta að neinni atvinnu, ekki fyrr en ég fór að vinna sóló. Ég var meira að segja í annarri hljómsveit inni á milli á þessum tíma sem heitir 32c, árið 2008. Svo í kringum 2009–2010 hóf ég sólóverkefnið mitt og fann að ég vann miklu betur einn. Það er frábært að kynnast öðru fólki og vinna með því, en ég er eins og köttur. Mér finnst þægi- legra að fara mínar eigin leiðir Akureyringurinn og Breiðhyltingurinn Gauti Þeyr Másson, betur þekktur sem Emmsjé Gauti, hefur verið einn allra vinsælasti rappari landsins um árabil. Listamaðurinn hefur sópað til sín tilnefningum og verðlaunum fyrir lög sín og plötur og hafa fáir lista- menn í íslensku rappsenunni komist með tærnar þar sem Gauti hefur hælana. Tómas Valgeirsson Guðni Einarsson tomas@dv.is / gudnieinarsson@dv.is Emmsjé Gauti er nýr maður „Tímarnir voru öðru- vísi þegar ég var yngri og graðari n Kynntist fyrst íslensku rappi í gegnum skátana n Rangt að kenna rappinu um eiturlyfjafaraldurinn MYNDIR/HANNA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.