Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2018, Qupperneq 21

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2018, Qupperneq 21
FÓLK - VIÐTAL 2119. október 2018 og fá að stýra eigin verkefnum. Þegar við erum þrír í hljómsveit getur verið erfitt að taka ákvarð- anir. Upp úr 2011 fæ ég í fyrsta sinn athygli í fjölmiðlum. Þegar Skábræður seldu plötu í 200 ein- tökum í Smash fann ég alveg fyrir því að fjöldi fólks var að hlusta og kannaðist léttilega við mann, en þegar ég gaf út sólóplötuna fóru hjólin að snúast. Þegar ég gaf út aðra breiðskífu mína árið 2013 og fékk góða dóma fór ég að finna fyrir því að fólk sýndi „live - settinu“ mínu áhuga. Þá var ég að vinna á Dolly og í útvarpinu en ég var farinn að finna mig rosalega fljótt á sviði. Þá var ég farinn að snúa mér alfarið að tónlistinni. Þetta var líka farið að bitna mik- ið á vinnunni. Ég vann um kvöld og var alltaf að biðja um frí. Ég prófaði að hætta í vinnunni í tvo mánuði og hugsaði að ég kæmi þá bara aftur ef þetta gengi ekki upp. En enn í dag hef ég ekki snúið til baka. Þegar ég tók ákvörðunina um að þetta væri vinnan mín, að geta vaknað á morgnana og hugs- að „Ég er tónlistarmaður“, þá fór ég að vinna í efninu mínu og spil- aði mikið til að koma mér á fram- færi. Smám saman var komin ein- hver létt athygli en þegar ég gaf út Strákana, mína fyrstu alvöru smá- skífu, sem ég fann að allir höfðu heyrt, var þetta alveg neglt.“ Hyldýpi af djammi Nú er tónlistarsenan þekkt fyrir mikið djamm. Hvernig er að vinna sem tónlistarmaður og vera í kringum allt þetta skemmtana- líf? „Það þarf auðvitað að átta sig á því umhverfi sem maður spilar í. Ég er sáttur við hvað tilhlaupið að mínum ferli tók langan tíma. Þegar ég var farinn að „meika“ það, þá var ég búinn að sýsla í þessu svo lengi að ég kunni vel við að vera kominn þá leið. Það er vissulega mikið um djamm og partístand í þessu, sérstaklega þegar þú vinnur í rauninni við að halda partí og skemmta fólki. Mér finnst reyndar persónulega miklu skemmtilegra að halda tónleika en að spila á djammi. Það fylgir þessu alltaf að fólk fær sér glas á börum og þvíumlíkt en í dag finnst hef ég ekkert sérstaklega gaman af að spila klukkan þrjú að nóttu til. Tímarnir voru öðru- vísi þegar ég var yngri og graðari, en nú er það aðeins öðruvísi. Það þarf voðalega mikið að passa það að sogast ekki inn í eitthvert hyldýpi af djammi, því skemmt- anahald – eins og allt annað – verður rosalega þreytt ef þú ert alltaf í þeirri senu.“ Undanfarið er búin að vera mikil umræða um lyfseðilsskyld lyf, sem hafa verið mikið tengd við tónlistarsenuna. Hvað finnst þér um slíkt? „Ég held að það sé rangt að benda á hipphopp-senuna sem einhvern blóraböggul í þessum málum. Hins vegar er þetta mjög alvarlegt mál og ástandið sem er í gangi í dag er vissulega hræði- legt. Það eru prósentur og dauðs- föll sem sýna fram á að neyslan er miklu þyngri hvað varðar svona óbjóð. Þetta þekktist ekki þegar ég var krakki, ég tók allavega ekki eftir því. Á mínum tíma var mað- ur stimplaður dópisti fyrir það eitt að fá sér jónu. Það er miklu meira umburðarlyndi gagnvart lyfseðilsskyldum lyfjum, en stað- reyndin er sú að þetta fylgir öllum senum, hvort sem þú ert í rokki eða jakkafataklæddur maður á sinfóníutónleikum eða húsmóðir í Breiðholti. En það er ótrúlega auðvelt að ráðast á toppinn. Hipphopp er mest áberandi tónlist sem er í gangi í dag. Ég held að það sé nauðsynlegt fyrir okkur sem fyrirmyndir að upp- hefja ekki eiturlyfjanotkun. Við erum kannski ekki sjálfskipaðar fyrirmyndir en við erum vissulega fyrirmyndir. Hins vegar stend ég báðum megin við línuna, því mér finnst líka mjög skrítið að ritskoða svona hluti. Poppkúltúr endur- speglar náttúrlega bara samfélag- ið í heild sinni. Það þarf að ráðast að rót vandans og velta því fyrir sér hver er að uppáskrifa þessi lyf, af hverju er verið að uppáskrifa þessi lyf og í hvaða tilgangi? Ég hef átt þetta spjall við yngri gaura í senunni sem eru með- vitaðir um þetta líka. Mér finnst nauðsynlegt að tala um eiturlyf og eiturlyfjaneyslu, en þá þarf einnig að sýna dimmu hliðarnar á því. Það þarf að sýna að þetta sé ekki alltaf gott partí og stanslaust stuð. Gott dæmi finnst mér vera nýjasta plata Gísla Pálma, þar sem hann fer yfir sinn lífsstíl en kemur líka inn á það hvernig hann glím- ir við eigin djöfla. Ef hægt er að tala um þetta á tvo vegu, þá finnst mér það réttlæta að tala um lyfin á annan hátt líka. Þetta er við- kvæmt mál og mér finnst erfitt að tala um þetta, því mér líður svo oft eins og það þurfi svo lítið til að segja eitthvað sem mun stuða eða særa einhvern. Mín skoðun er allavega sú, þangað til einhver breytir henni, að hræðsluáróð- ur virkar ekki frekar en að öskra á fólk. Það er að koma breyting smátt og smátt en auðvitað fárán- legt að benda á fíkla í einhverju glæpamannasamhengi. Umfjöllun um neyslu talar yfir- leitt um lokastigið á neyslunni, sem færri tengja sig við. Meira að segja lið sem fiktar við sína fyrstu pillu hugsar aldrei: „Ég mun enda eins og þessi þarna“, þannig að ég held að hræðsla í gegnum ferl- ið sé aðal skaðaminnkunin sem gæti átt sér stað.“ Reynir að sigta út það vonda Nú átt þú tvö börn. Finnst þér þú hafa breyst mikið með tilkomu dætra þinna? „Ég held að það sé algjör klisja að maður breytist við að eignast börn, en hugsunarhátturinn breytist auðvitað. Ég geri ekki sömu heimskulegu hlutina og áður en ég varð pabbi. Ég finn fyr- ir þessu þegar ég sem texta í dag. Ekki það að ég skammist mín fyrir fortíðina en föðurhlutverkið hvet- ur mig meira til þess að horfa inn á við og spyrja sjálfan mig: Hver er ég og hvaða arfleið er ég að skilja eftir fyrir dætur mínar? Staðreyndin er samt sú að þú verður að þroskast þegar þú eignast barn. Það er líf í höndun- um þínum sem þú verður að sjá um. Ég veit auðvitað ekkert hvað framtíðin mun bera í skauti sér en mér finnst nauðsynlegt að vera heiðarlegur og segja hvern- ig líf mitt var, að reyna að sigta út vondu hlutina og kenna börnun- um að gera betur. Ég held að þar liggi aðalbreytingin.“ Ef þú myndir skjóta á einhverja tölu, hvað heldurðu að þú sért bú- inn að taka mörg gigg? „Í heildina? Ef ég ætti að giska á einhverja tölu, myndi ég skjóta á tvö þúsund tónleika. Sem dæmi spilaði ég á 140 tónleikum árið 2017. Þá er ég að tala um allt, þótt ég hafi komið einu sinni fram og tekið eitt lag. Oft hef ég spil- að fjórum eða fimm sinnum á kvöldi, sem er náttúrlega ruglað.“ Hvert var eftirminnilegasta giggið? „Það eru tvö gigg sem koma upp í hugann. Annars vegar er það Rímnaflæði 2002, sem mark- aði fyrsta skiptið þar sem ég kem fram fyrir framan fólk. Það stóð að sjálfsögðu upp úr af mörg- um ástæðum og situr í mér. Það var þess valdandi að ég ákvað að halda áfram í tónlistinni. Síðan eru það útgáfutónleikarnir sem ég hélt árið 2016, fyrir Vagg og veltur. Þá leigði ég skemmtistaðinn NASA og bjó til sérstakt svið í miðjunni á salnum þar sem ég spilaði í fjór- ar áttir í boxhring. Það var mjög metnaðarfullt verkefni sem vekur upp góðar minningar.“ Eltur heim af óðum aðdáanda Gerist það oft að aðdáendur reyni að ná samband við þig í síma eða er fólk að koma heim að dyrum hjá þér? „Krakkarnir í hverfinu eru stundum að banka upp á og eiga það til að gera dyraat. Fólk gerir líka símahrekki af og til, en ég finn fyrir því að kjarnahópur aðdáenda er rosalega næs og virðingarfull- ur hópur. Það er fólk sem er ekki mikið að betla ljósmyndir og virð- ir einfaldlega tónlistina. Ég upplifi það þannig að það sé ekki vanda- mál að vera þekkt andlit á Íslandi fyrr en fólk er komið í áfengið.“ Hefur þú lent í mörgum grilluð- um uppákomum frá aðdáendum? „Hiklaust, alveg ótal mörgum. Sem dæmi lenti ég einu sinni í strák á Prikinu sem var greini- lega aðdáandi. Þá var ég ekki al- veg í stuði til þess að tala við fólk en hann var alveg ofan í andlitinu á mér og vildi segja mér frá hug- myndum um lög. Ég bað hann um að fara en hann vildi það ekki og var á endanum orðinn óþol- andi. Þá bað ég dyravörðinn um að fylgja honum út og hélt að allt væri búið. Síðan gerðist það eftir kvöldið að hann elti mig heim og réðst á mig, þegar ég var rétt ókom- inn í Vestur bæinn. Ég hafði seinna samband við þennan strák og talaði við hann. Þá sá hann rosa- lega eftir þessu en talaði um hvað honum sárnaði mikið að ég hefði sýnt honum svo mikla óvirðingu. Hann hefur verið drukkinn og í einhverju ruglástandi. Ég mæli samt með að fólk íhugi hvort það sé að ráðast á persónu- legt svæði annarra, sérstaklega ef það er komið í glas. Þetta á ekki bara við um þá sem eru frægir. Það eru ekkert alltaf allir til í spjall. Ég er til dæmis viss um að sjónvarps- karakterar, sem vinna við það að vera skemmtilegir í sjónvarpinu, lendi mikið í því að aðrir búist við því að þeir séu alltaf í stuði. Maður verður eitthvað svo brenglaður þegar allt gengur rosavel og þegar allir eru alltaf að segja manni hvað maður er flottur. Það er allt í gangi og fólk er endalaust að hrósa manni, þá á maður það til að fela sig á bak við það og gleyma alvöru manneskjunni.“ Fylgir annarri stefnu en áður „Segjum að ég fari grátandi eða leiður upp á svið, þá þarf ég að hrista það af mér með einhverri grímu, því fólk vill að þú sért alltaf í stuði. Þessi texti snýst um mig að „feisa“ sjálfan mig. Ég fann einhvern glugga og ákvað að rífa sjálfan mig aðeins niður. Mér „Á mínum tíma var maður stimplaður dópisti fyrir það eitt að fá sér jónu Gauti hætti í mat- reiðslunámi sökum vinnutímanna.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.