Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2018, Síða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2018, Síða 33
Lýstu upp myrkrið 19. október 2018 KYNNINGARBLAÐ XTREME LOGO: Áratuga reynsla í merkingum – fagmennska og sérþjónusta Kristján Bergmann hefur starf-að við auglýsingamerkingar í 18 ár en árið 2014 stofn- aði hann fyrirtækið Xtreme Logo sem staðsett er að Laugavegi 163. Fyrirtækið býður upp á geysilega fjölbreyttar merkingar og má þar nefna bílamerkingar en varla er hægt að hugsa sér ódýrari auglýs- ingu en vel merktan bíl sem auglýsir fyrirtækið hvar sem honum er ekið. Er boðið upp á allt frá einföldum merkingum upp í heilmerkingar þar sem bíllinn er klæddur í filmu. Margar lausnir í skiltum Ljósaskilti eru áberandi hluti af starfseminni en nú, þegar skyggja tekur, er gott að láta fyrirtæki sitt lýsa upp myrkrið. Þess má geta að Xtreme Logo býður upp á LED-skilti, bæði innan- og utandyra, á mjög hagstæðu verði. Skiltaplötur, 3D Infinity ljósaskilti, díóðuneon, LED-NEON og LED- -díóðuskilti eru meðal þeirra ljósaskilta sem í boði eru. Díóðuskilti eru ein vinsælasta gerð upplýstra skilta í dag, bæði í fram- og baklýs- ingu. Þau nota litla orku og endast vel. Í boði er margs konar útfærsla af þeim hjá Xtreme Logo. Gluggamerkingar og öryggisfilmur Sandblásnir gluggar með áletrun- um eru vinsæl lausn fyrir innganga að fyrirtækjum og geta verið góð auglýsingu. Glerið er þá heilmerkt með filmu og ekki sést inn um það. Öryggisfilmur eru síðan mögnuð þjófavörn. Filma heldur þá gler- inu saman og er hún fest með áli í köntunum þannig að afar langan tíma tekur að brjóta sér leið inn um gluggann og gífurlegur hávaði fylgir skemmdarverkinu – þannig að allar líkur eru á því að lögregla verði komin á vettvang áður en innbrots- þjófum tekst ætlunarverk sitt. Xtreme Logo prentar einnig límmiða í ýmsum stærðum sem og stórar myndir eftir málum. Prentun á veggfóður er flott lausn til að skreyta og heilmerkja veggi heim- ila jafnt sem fyrirtækja. Þá býður fyrirtækið upp á að setja ljósmyndir á álplötur eða pappaplötur með frauðkjarna. Xtreme Logo býður einnig upp á alls konar auglýsingavörur og sér- merktan varning, til dæmis penna. Innréttingaklæðningar eru einnig veigamikill þáttur í starfseminni en hægt er að klæða næstum hvað sem er í filmu og láta útlit fyrirtæk- isins taka yfir umhverfið. Starfsemi Xtreme Logo byggist á sérþjónustu þar sem alúð er lögð í hvert verkefni og snjallar lausnir eru í boði. Nánari upplýsingar um starfsemina eru á vefsíðunni xtrem- elogo.net. Einnig er gott að hringja í síma 612-6260 eða 454-6250, eða koma einfaldlega á staðinn, að Laugavegi 163. Netfang er info@ xtremelogo.net.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.