Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2018, Síða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2018, Síða 34
Lýstu upp myrkrið 19. október 2018KYNNINGARBLAÐ Fagmannaverslun Húsasmiðjunnar timbursala (Bree lighting) ÍSKRAFT: Að vinna í réttu ljósi Ískraft er allsherjar rafmagns-heildsala og veitir allt milli himins og jarðar sem snertir rafmagn: rafveitubúnað, innlagnarefni, lagnaleiðir, kapla, ljósleiðara og svo framvegis. Undir þetta heyrir að sjálfsögðu lýsingarbúnaður af öllu tagi. Ískraft er í eigu Húsasmiðjunnar og í verslunum hennar er Philips- -ljósabúnaður fyrir heimili, sem og almennur raflagnabúnaður. En í verslunum Ískraft, sem eru fjórar talsins á landinu, er höfuðáhersla á sölu, þjónustu og ráðgjöf við fyrir- tæki, stór og smá, sem og opinbera aðila. „Við erum með hágæðavörur í sérpöntunum, til dæmis útiljós, sundlaugaljós, iðnaðarlýsingu, lýs- ingu í söfn, götulýsingu og lýsingu í jarðgöngum svo fátt sé nefnt,“ segir Haukur Tómasson, vörustjóri lýsingarbúnaðar hjá Ískraft. Rétt lýsing er mikilvæg – LED- -byltingin þarf að komast í reglu- gerðir Ískraft hefur selt sundlaugaljós í flestar sundlaugar landsins og er með rammasamninga við flest sveitarfélög varðandi lýsingu í stofnunum, útilýsingu og götulýs- ingu. Nánast allur lýsingarbún- aður sem Ískraft selur er knúinn LED-ljósgjafa og LED er að valda byltingu í lýsingu, annars vegar vegna þess hvað ljósgjafinn endist miklu lengur og hins vegar vegna þess að lýsingin verður miklu mark- vissari. Ískraft er meðal annars fram- arlega í iðnaðarlýsingu og sér um að lýsa stór vinnusvæði, útisvæði á vinnustöðum, vöruskemmur og fleira. „Við mælum með því að not- ast sé við lýsingarhönnun frá lýs- ingarhönnuðum en ef það er ekki gert þá getum við gefið góð ráð,“ segir Haukur en Ískraft vinnur mjög oft eftir fullbúinni lýsingarhönnun. Haukur segir að rétt lýsing sér afar mikilvæg en stundum sé mikilvægi hennar vanmetið. Haukur bendir líka á að LED- -lýsing sé flóknari og auka þurfi fræðslu um hana. Enn fremur sé mikilvægt að betur sé gerð grein fyrir lýsingu í reglugerðum. „Á næstu fimm til sex árum verð- ur skipt um lýsingu í flestum götu- staurum á landinu. LED kemur með byltingu í götulýsingu þar sem nú er ekki bara keyptur götulampi með ákveðnum styrkleika heldur er LED útbúið linsutækni sem tekur mið af þáttum á borð við umferðarhraða, breidd götu og hæð ljósastaursins – lýsingin verður þannig mun stefnuvirkari.“ Ískraft ætlar sér stóra hluti í endurnýjun götulýsingar á landinu enda er fyrirtækið afar vel í stakk búið til að takast á við það mikil- væga verkefni. Ískraft er með verslun að Smiðjuvegi 5 í Kópavogi, Hjalt- eyrargötu 4 á Akureyri, Iðavöllum 12 í Reykjanesbæ og Eyrarvegi 42 á Selfossi. Nánari upplýsingar um starfsemina og vöruúrvalið eru á vefsíðunni iskraft.is.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.