Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2018, Page 35
Lýstu upp myrkrið 19. október 2018 KYNNINGARBLAÐ
Feðginin Jóhannes Ómar Sigurðs-son og Herdís Telma Jóhann-esdóttir stofnuðu heildverslun-
ina Esjufell árið 2010 og lögðu þar
megináherslu á innflutning á ljósum og
öðrum húsbúnaði frá danska gæða-
framleiðandanum House Doctor. Árið
2013 opnaði Esjufell verslunina FAKÓ á
Laugavegi. Vorið 2016 var síðan FAKÓ
HÚSGÖGN opnuð í Ármúla 7 og varð
hluti af þeirri grósku sem einkennt hefur
Múlahverfið síðustu ár sem ekki síst
birtist í fjölbreyttum verslunum með
húsgögn og húsbúnað.
FAKÓ er sannkallað fjölskyldufyrirtæki
en þær systur Herdís Thelma og Ylfa
Björg reka fyrirtækið ásamt Jóhannesi
föður sínum. Gífurleg fjölbreytni einkenn-
ir FAKÓ en ljósin frá House Doctor eru
líklega mest áberandi í vöruúrvalinu. Þar
er meðal annars hægt að fá borðlampa,
standlampa, veggljós, strengjaljós og
skerma.
„House Doctor er með fallegar vörur
til heimilisins, allt frá hnífapörum upp
í húsgögn og ljós. Öll hönnun er undir
stjórn systkinanna sem stofnuðu fyrir-
tækið en House Doctor er fjölskyldufyr-
irtæki rétt eins og FAKÓ. Núna eru brass
og málmtónar áberandi í ljósunum frá
House Doctor en það gildir um híbýla-
prýði eins og föt að það eru tískusveifl-
ur þó að þær séu ekki eins hraðar í
fyrrnefnda heiminum,“ segir Herdís.
House Doctor er rómað gæðamerki
eins og svo algengt er með danska
hönnun og húsgagnaframleiðslu. Ljósin
hafa auk þess þá skemmtilegu og
óvenjulegu sérstöðu að hver og einn
eigandi þeirra getur gefið þeim sinn sér-
staka blæ: „Það er hægt að gera ljósin
persónulegri með því að skipta út per-
um, velja snúrur og svo er hægt að festa
hólka á snúrurnar. Við erum með mjög
gott úrval af ólíkum perum til að nota í
lampana, til dæmis demantaperur, stór-
ar og litlar skrautperur,“ segir Ylfa.
Veggljósin koma sterk inn
FAKÓ er einnig með veggljós og
kertastjaka frá Vanilla Fly. Þá er FAKÓ
nýbúið að taka inn merki sem heitir
Living By Colors og er þar um að ræða
snúrur og perustæði úr silíkoni í mörgum
litum, og þær systur eru mjög spenntar
fyrir þessum nýju vörum sem eru líklegar
til að slá í gegn hjá viðskiptavinum versl-
unarinnar.
„Ein er sú þróun sem hefur orðið ný-
lega, að veggljós eru að verða algengari.
Loftljósin eru vissulega algeng áfram en
það færist í vöxt að fólk setji frekar upp
veggljós og fái þá mjög kósí birtu,“ segir
Herdís og Ylfa bætir við að sums staðar
þar sem eru tvö göt fyrir veggljós kjósi
fólk að setja bara ljós í annað gatið og
loka hinu.
Ylfa bætir einnig við að ljósin frá
House Doctor veiti ekki bara góða birtu
heldur séu þau sem slík listmunir og hí-
býlaprýði og falleg á að horfa hvort sem
kveikt er á þeim eða ekki.
Gæði skipta máli við val á kertum
Frábært úrval af kertum og kertastjök-
um er í FAKÓ sem henta afar vel til
gjafa, til dæmis jólagjafa. „Við leggjum
mikla áherslu á að selja eingöngu mjög
góð kerti þannig að til dæmis þurfi fólk
ekki að hafa áhyggjur af eldhættu varð-
andi þau. Kertin hjá okkur eru öll fram-
leidd í Danmörku en Danir eru mjög stífir
á öryggisstaðla varðandi kerti og gera
þar ríkari kröfur en flestar aðrar þjóðir,“
segir Herdís.
Af miklu úrvali í FAKÓ eru ónefndar
inni- og útiluktir, ljósaseríur, eldstæði til
að hafa úti og kyndlar, en þetta eru ljós
sem henta afar vel á pallinn eða ver-
öndina og skapa þar huggulega stemn-
ingu í skammdeginu.
Umhverfisvænar áherslur
Meraki er eitt af undirmerkjum House
Doctor, með sérstaka áherslu á snyrti-
vörur og afar vönduð ilmkerti. „Þeir
framleiða kertin sín með umhverfisvæn-
um hætti, nota sojavax og náttúruleg
efni í kveikiþræðina,“ segir Herdís, og
Ylfa bætir við að þessar umhverfisvænu
áherslur séu gegnumgangandi í öllu
vöruúrvalinu og séu t.d. hluti af stefnu
House Doctor. Áherslan er á náttúruleg
efni, aukaefni eru í lágmarki og reynt er
skilja eftir sem minnst vistspor við fram-
leiðsluna.
Margir gleyma sér í búðunum í
Múlahverfinu
„Fólk hefur sagt mér að það geti
gleymt sér í versluninni í allt að tvo tíma
því hér er margt að skoða,“ segir Herdís.
Gífurleg fjölbreytni einkennir vöruúrvalið í
FAKÓ auk þess sem þar eru afar margir
fallegir hlutir sem gleðja augað. Fólki
þykir því gaman að koma í verslunina en
í Múlahverfinu eru margar aðrar versl-
anir með húsgögn og húsbúnað. „Þetta
styður hvert annað og hér í fjölbreytninni
er líklegt að fólk finni það sem það leitar
að,“ segir Herdís.
Auk þess sem hér hefur verið nefnt
áður selur FAKÓ sælkeramatvörur frá
Nicholas Vahé, skrifstofuvörur fyrir skap-
andi fólk frá Monograph og margt fleira,
þannig að fjölbreytnin er gífurleg.
Það er líka hægt að versla í FAKÓ á
netinu, nokkuð sem kemur sér til dæmis
vel fyrir fólk á landsbyggðinni en versl-
unin sendir vörur hvert á land sem er.
Sjá nánar á www.fako.is.
Verslunin í Ármúla 7 er hins vegar
opin mánudaga til föstudaga frá 10 til 18
og á laugardögum frá 11 til 16. Síma-
númer er 568-0708.
FAKÓ:
Ljós í heimsklassa og
heillandi fjölbreytni