Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2018, Page 37
Lýstu upp myrkrið 19. október 2018 KYNNINGARBLAÐ
Barr Living var opnuð fyrir ári að Lyngási, en flutti í sumar í stærra húsnæði á Garða-
torgi. Í versluninni má finna
fallegar og spennandi vörur sem
fegra heimilið og gleðja augað.
„Ég var að vinna í lyfjageir-
anum en hef alltaf haft mikinn
áhuga á hönnun og ég hafði lengi
átt þann draum að reka verslun.
Svo varð ég fertug og ákvað loks-
ins að slá til,“ segir Lilja Guðmunds-
dóttir, eigandi Barr Living, aðspurð af
hverju hún ákvað að opna verslun með
heimilisvörur.
Stílinn sem Barr Living býður upp
á er fullkomin blanda af því hráa og
því hlýja. „Viðtökurnar hafa verið
frábærar, enda höfum við kappkost-
að að flytja inn vörur sem eru ekki til
fyrir hér heima. Það er líka gaman að
bjóða upp á vörur sem eru öðruvísi og
blanda þeim saman við aðrar hefð-
bundnari.
Megináherslan er á vörur sem eru
framleiddar að hluta eða öllu leyti úr
endurunnum og endurnýtanlegum
hráefnum. Hrár viður, leður, járn, gler,
leir og steypa eru lykilorðin okkar. Nýtt
sem og notað.“
Grófi stíllinn er vinsæll, en grófur
náttúrulegur stíll er alls ráðandi hjá
Barr Living og hann má finna í ljósun-
um sem fáanleg eru. Borð-, loft- og
gólfljós fást, og ef fólk kýs, þá er hægt
að kaupa allt í stíl.
Í smávörunni má finna kertastjaka
og kertaluktir, sem fylgja stíl Barr Liv-
ing, og eru blanda af hráum og hlýjum
stíl. Kjörið að kveikja á kertum í vetur
og njóta hlýjunnar.
Barr Living er á Garðatorgi í Garða-
bæ, netfangið info@barrliving.is.
Opið er
frá kl. 12–18 þriðjudaga til
föstudaga og laugardaga
frá kl. 13–16. Vefverslunin
á barrliving.is er opin allan
sólarhringinn.
Finna má barrliving á
heimasíðunni, Facebook
og Instagram.
BARR LIVING FAGNAR ÁRS AFMÆLI:
Stíll sem er fullkominn
blanda af því hráa og því hlýja