Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2018, Side 60
60 19. október 2018
E
lísabet II Bretadrottning
fæddist 1926. Fyrsta barn
George prins sem var annar
sonur George V. konungs.
Afi hennar lést 1936 og föður-
bróðir hennar, Edward VIII., tók
þá við konungdómi. Hann afsal-
aði sér hins vegar krúnunni síð-
ar þetta ár eftir að hafa ákveðið
að kvænast Wallis Warfield Simp-
son sem var fráskilin og frá Banda-
ríkjunum. Faðir Elísabetar var þá
næstur í röðinni og tók við kon-
ungdæminu sem George VI. Á
meðan síðari heimsstyrjöldin stóð
yfir dvöldu Elísabet og eina syst kin
hennar, Margrét prinsessa, fjarri
höfuðborginni Lundúnum til að
tryggja öryggi þeirra enda rigndi
sprengjum úr þýskum herflugvél-
um yfir borgina. Foreldrar þeirra
vildu hins vegar sýna löndum sín-
um samstöðu og dvöldu í Buck-
ingham-höll. Elísabet fékk þjálf-
un sem liðsforingi í kvennadeild
hersins og ók og sinnti viðgerðum
á hertrukkum.
Elísabet giftist fjarskyldum
frænda sínum, Philip
Mountbatten, fyrrverandi prins af
Grikklandi og Danmörku, 1947.
Hann afsalaði sér þessum titlum
til að geta kvænst Elísabetu. Hann
var gerður prins af Edinborg að
kveldi brúðkaupsdagsins. Brúð-
kaupið og allt umstangið sem því
fylgdi lyfti þjóðarsál Breta en þjóð-
in glímdi við mikla efnahagslega
erfiðleika eftir síðari heimsstyrj-
öldina og brúðkaup þessarar vin-
sælu prinsessu var ljós í myrkrinu
að margra mati. Fyrsta barn þeirra,
Karl prins, fæddist 1948 í Bucking-
ham-höll og tveimur árum síðar
eignuðust þau dótturina Anne.
Andrew prins fæddist 1960 og
Edward prins 1964. Þegar hjón-
in voru á ferðalagi í Kenía þann
6. febrúar 1952 voru þeim færðar
þær sorgarfregnir að George VI,
faðir Elísabetar, væri látinn.
Varð þjóðhöfðingi samstundis
Þegar rétt nýbúið var að skýra
opin berlega frá láti konungs var
tilkynnt að Elísabet væri nú orðin
þjóðhöfðingi Bretlands. Hún hélt
sig þó alveg til hlés næstu þrjá
mánuði og syrgði föður sinn. Um
sumarið byrjaði hún að sinna
hefðbundnum skylduverkum
þjóðhöfðingja og í nóvember setti
hún þingið í fyrsta sinn. Þann 2.
júní 1953 var hún krýnd drottning
í Westminster Abbey. Athöfnin var
íburðarmikil og gegnsýrð af hefð-
um sem rekja má allt að 1.000 ár
aftur í tímann.
Um eitt þúsund fyrirmenni og
7.000 aðrir gestir voru viðstaddir
krýninguna í Westminster Abbey
og mörg hundruð milljónir manna
hlustuðu á beina útsendingu í út-
varpi eða horfðu á beina sjón-
varpsútsendingu. Skýrri og há-
tíðlegri röddu fór Elísabet með
innsetningareiðinn þar sem hún
hét því að vinna fyrir íbúa Stóra-
-Bretlands og Breska samveldis-
ins.
Að krýningarathöfninni lokinni
fögnuðu milljónir regnvotra
áhorfenda hinni 27 ára drottningu
og þrítugum eiginmanni henn-
ar þegar þau óku sjö kílómetra
leið í hestvagni. Þeim fylgdu
fulltrúar rúmlega 40 aðildarríkja
Breska samveldisins, þar á með-
al forsætisráðherrar, soldánar
og forsætisráðherrar. Að akstrin-
um í hestvagninum loknum kom
Elísabet fram á svölum Bucking-
ham-hallar ásamt fjölskyldu sinni
og veifaði til mannfjöldans. Krýn-
ingarathöfnin var sýnd í banda-
rísku sjónvarpi samdægurs en
þetta var í fyrsta sinn sem banda-
rískar sjónvarpsstöðvar sýndu
evrópskan atburð samdægurs.
Áhorfið var gríðarlegt.
Víðförul og vinsæl
Á þeim 65 árum sem Elísabet II
hefur ríkt hefur hún notið mik-
illa vinsælda þegna sinna og hafa
vinsældirnar verið nokkuð stöð-
ugar en þó dvínuðu þær tölu-
vert í tengslum við erfiðleika í
hjónabandi Karls prins og Díönu
prinsessu og andlát hennar.
Elísabet hefur þó unnið sig aftur
upp í vinsældum meðal þegna
sinna og hefur hugsanlega aldrei
verið eins vinsæl og hún er nú
á nítugasta og þriðja aldursári.
Hún sinnir enn skyldustörfum
af miklum móð en hefur þó að-
eins dregið úr störfum sínum og
látið yngri kynslóðirnar taka við.
Það er orðið langt síðan hún hef-
ur ferðast út fyrir Bretlandseyjar
og væntanlega er hún hætt slík-
um ferðalögum enda orðin vel
roskin eins og áður sagði. Hún
hefur þó ferðast miklu meira en
forverar hennar og var fyrsti ríkj-
andi þjóðhöfðingi Stóra-Bret-
lands til að heimsækja Suður-
-Ameríku og ríkin við Persaflóa.
Hún hefur aldrei gefið í skyn að
hún hyggist segja af sér og setj-
ast í helgan stein og virðist vera
við ágæta heilsu svo Karl prins,
sem er næstur í erfðaröðinni,
verður að bíða enn um sinn,
orðinn sjötugur. Þrjár kynslóðir
krúnuerfingja eru nú lifandi því
Vilhjálmur prins, sonur Karls
og Díönu, gengur föður sínum
næstur að erfðum og sonur hans,
George, er þriðji röðinni.
Elísabet veitir sjaldan viðtöl en
í einu af þeim fáu sem hún hefur
veitt ræddi hún um krýninguna
og krýningarathafnir. Viðtalið var
tekið á síðasta ári í tengslum við
gerð heimildamyndarinnar „The
Coronation“. Þar sagði Elísabet
meðal annars að hún hefði fylgst
með einni krýningarathöfn, en
það var 1937 þegar faðir hennar
var krýndur konungur.
„Ég hef fylgst með einni krýn-
ingarathöfn og verið móttak-
andinn í hinni, það er ansi athygl-
isvert,“ sagði hin aldna drottning.
Kórónan, sem var sett á höfuð
hennar við krýninguna, er sú
sama og var notuð þegar faðir
hennar var krýndur konungur
1937. Hún er skreytt 2.868
demöntum, 17 safírum, 11 smar-
ögðum og mörg hundruð perl-
um. Einnig er gimsteinn, þekktur
sem the Black Prince’s Ruby,
á henni en talið er að Henry V.
hafi borið hann í orustunni við
Agincourt 1415. Það er ekkert
grín að bera kórónuna, sem er
tæplega þrjú kíló, og því æfði
Elísabet sig fyrir krýninguna og
var með hana á höfðinu á með-
an hún sinnti daglegum störfum.
Kórónan var þrengd lítillega fyrir
hana og gerð aðeins kvenlegri í
útliti. n
TÍMAVÉLIN
Kristján Kristjánsson
ritstjorn@dv.is
LEIÐANDI Í GREIÐSLULAUSNUM
Greiðslulausnir tengdar
helstu afgreiðslukerfum
Sjálfstandandi greiðslulausnir
og handfrjálsir posar
Hlíðasmára 12 201 Kópavogi verifone@verifone.is S: 544 5060
2. júní 1953
STÓR DAGUR Í SÖGU BRESKU ÞJÓÐARINNAR
n Elísabet II krýnd drottning„Ég hef fylgst með
einni krýningar-
athöfn og verið móttak-
andinn í hinni, það er ansi
athyglisvert.
Elísabet og Filippus
Glæsileg á krýningardaginn.
Elísabet II 92 ára og aldrei vinsælli.