Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2018, Blaðsíða 31
11. maí 2018 KYNNINGARBLAÐ Sumarið
Grétar Örvarsson leiðir einvala lið sÖnGvara á stórtónleikum
Sjóarinn síkáti í Grindavík: Fjölskyldu-
væn og metnaðarfull bæjarhátíð
Bæjarhátíðin sjóarinn síkáti í Grindavík er ávallt haldin fyrstu helgina í júní, 1.–3. júní, og
markar hún upphaf bæjarhátíða sem
fara fram víða um landið í sumar. Há-
tíðin er haldin í 23. skipti í ár og hefur
alla jafna laðað til sín fjölda gesta,
bæði brottflutta Grindvíkinga sem
og aðra og margfaldast íbúafjöldi
bæjarins um sjómannahelgina. Fjöldi
viðburða við hæfi allrar fjölskyldunn-
ar er í boði og ættu allir, heimamenn
sem gestir, að finna eitthvað við sitt
hæfi.
„sjóarinn síkáti er fyrst og fremst
fjölskylduhátíð, sem hefur verið haldin
undanfarin ár með föstu sniði, en í
ár ákváðum við að breyta aðeins frá
fyrri hátíðum,“ segir Björg erlings-
dóttir, sviðsstjóri frístunda- og menn-
ingarsviðs Grindavíkurbæjar.
Hátíðin hefst að vanda á föstu-
degi með því að hverfin hittast og
grilla saman. Bænum er skipt í fjögur
hverfi sem hvert eiga sinn lit: rauðan,
bláan, appelsínugulan og grænan,
og er gestum bent á að klæða sig
eftir hverfislit síns gestgjafa, ef þeir
vilja. eftir grill er síðan skrúðganga
frá hverju hverfi fyrir sig, þar sem allir
sameinast síðan á einum stað og
ganga fylktu liði niður Hafnargötuna
niður á hátíðarsvæðið við höfnina.
Þar er dagskrá á sviðinu og ingó
veðurguð mun stjórna brekkusöng, en
ekki verður bryggjuball eins og verið
hefur. „Þetta er helsta breytingin á
hátíðinni, að stytta kvölddagskrána
á föstudagskvöldinu og leggja frekar
áherslu á laugardagskvöldið,“ segir
Björg.
Einvala lið söngvara flytur íslensk
lög á stórtónleikum
Hefðbundin dagskrá er síðan að
deginum til á laugardag, en kl. 20 á
laugardagskvöld hefst dagskráin á
því að rapparar stíga á svið, þar á
meðal viktor Örn Hjálmarsson, sem
keppti í söngkeppni samfés fyrir
stuttu. Herra Hnetusmjör kemur síðan
með sína félaga. síðan kl. 21 tekur
Grétar Örvarsson við, en hann leiðir
stóra hljómsveit og fjöldi landsþekktra
söngvara kemur fram. áhersla er
lögð á íslenska tónlist og nokkur
sjómannalög fá að fljóta með í tilefni
sjómannadagsins en miðað er við að
lagavalið sé áheyrendum kunnuglegt
og að góð stemning skapist. Friðrik
Dór, ágústa eva, sigga Beinteins, ey-
þór ingi, Pálmi Gunnarsson og Grind-
víkingarnir tómas Guðmundsson og
Íris kristinsdóttir stíga á sviðið.
Sjómenn heiðraðir í hátíðardag-
skrá á sunnudag
á sunnudag er síðan hátíðardagskrá.
„við höldum okkur við þá hefð að
sunnudagurinn er hátíðlegur, byrj-
að er í Grindavíkurkirkju með
hátíðarmessu, síðan gengið
að minnismerkinu um látna
sjómenn og loks að hátíðar-
sviðinu þar sem sjómenn verða
heiðraðir fyrir störf sín.“
Fjöldi viðburða í aðdraganda
sjómannahelgar
„vikuna fyrir sjómannahelgina
er einnig dagskrá í boði: í
kvikunni verða fyrirlestrar
og kynning á verkefnum sem
Grindvíkingar eru að vinna að,
strandminjar sem við vinn-
um í samstarfi við minja- og
sögufélagið, og á fimmtudags-
kvöld verður hún Berta Dröfn
ómarsdóttir með tónleika í
kirkjunni, sem heita klassík fyrir
sjóara.“
Það ættu allir að finna
eitthvað við sitt hæfi á sjóar-
anum síkáta, hvort sem fólk gerir sér
dagsferð suður með sjó eða dvelur í
Grindavík alla helgina.
upplýsingar um dagskrá sjóar-
ans síkáta má finna í heild sinni inn á
heimasíðu Grindavíkur: grindavik.is.
myndir:
Heiða Dís