Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2018, Blaðsíða 24
24 fólk - viðtal 11. maí 2018
Eldra fólk á miklu betra skilið
Hún segist hafa ákveðið að hella
sér út í baráttu Sósíalistaflokks
ins þrátt fyrir að hún geti staðsett
sig víða á hinum pólitíska skala.
„Ástæðan fyrir því að mig langar
að leggja þeim lið er sú að þetta er
fólk sem er ekkert búið að heyrast
í og þetta er fólk sem er raunveru
lega að halda uppi samfélaginu
okkar, sem er í lægst launuðu stör
funum. Ég held að fólk átti sig
ekki á því en þetta fólk gjörsam
lega heldur uppi landinu okkar og
þetta fólk hefur það verst. Ef þess
ar stoðir fara að hrynja þá verður
þetta bara eins spilaborg og ég vil
ekki einu sinni ímynda mér hver
afleiðingin verður.“
Natalie segist hafa staðið í
miklu stappi fyrir ömmu sína og
afa og þá hafi örorka afa hennar
veitt henni innsýn í þann heim.
„Það er búið að vera ótrúlega
erfitt að sjá um þeirra mál og líka
að sjá þau fara inn á þessar stofn
anir og sjá hvernig aðbúnaðurinn
er þar. Það vantar svo mikið upp
á. Það er eins og fólk átti sig ekki
á því að á einhverjum tímapunkti
þá verðum við öll gömul. Það vill
enginn enda á einhverjum stað
sem er bara geymslustaður, eldra
fólk á miklu betra skilið og þetta á
ekki að vera svona.“
Hroki að gera lítið úr láglaunafólki
Hún segist hafa vonað fyrir hverjar
einustu kosningar að þetta stokk
aðist upp og yrði betra en hún hafi
alltaf orðið fyrir vonbrigðum.
„Allt virðist fara í eitthvert
ákveðið far sem þjónar hagsmun
um ótrúlega lítils hóps. Það er ekki
verið að hugsa um heildina, það er
bara staðreynd. Við sjáum hvernig
þetta er með lóðaúthlutanir og við
sjáum hvernig allt virkar í þessu
landi. Þetta er ekki fyrir heildina.
Við búum í það litlu landi að þetta
á ekki að vera svona mikið mál.
Með allar þessar auðlindir, það er
skammarlegt að svona margir hafi
ekki aðgang að mannsæmandi lífi.
Mér finnst það ekki sanngjarnt.“
Hún segist hafa orðið vör við
fordóma fyrir því að hún sé að
leggja þessu framboði lið en ekki
öðrum.
„Fólk spyr mig: „Hvað ertu
að gera? Er þetta ekki bara eitt
hvað láglaunafólk og öryrkjar?“.
Ég skynja þá fordóma sem þetta
fólk er að verða fyrir og það ein
faldlega svíður. Það sannfærir mig
enn frekar um að ég sé að gera rétt.
Ég reyni þá að útskýra fyrir því að
þetta sé fólkið sem sé að hugsa um
börnin þeirra, þetta sé fólkið sem
er að láta hjól atvinnulífsins snú
ast. Ætlarðu að fara að gera lítið
úr þessu fólki líka? Hversu mikill
getur hrokinn verið? Ég mótmæli
þessu og mig langar ekki að búa í
samfélagi þar sem er litið niður á
ákveðinn hóp af því hann er ekki
eins og klipptur út úr einhverju
tímariti. Mig langar að búa í sam
félagi þar sem allir hafa það gott.“
Hún segir að forsvarsmenn
Sósíal istaflokksins hafi nálg
ast hana að fyrra bragði og boðið
henni að taka þátt í baráttunni. „Ég
fór að skoða hvað þau voru að gera
og sá hvað það er algjörlega með
hjartanu. Það er engin tilgerð,
þetta fólk sem er að koma fram,
og þú sérð það á sögunum sem
það er að deila. Þetta er fólk sem
er að koma fram hreint og beint, til
dyranna eins og það er klætt, ekk
ert kjaftæði í gangi. Mér finnst það
vera ferskur blær í þessa pólitík
sem er í gangi núna.“
Þarft ölmusu til að
komast í gegnum veikindi
Hún veltir því fyrir sér hvernig
standi á því að fólk borgi skatt alla
sína ævi en svo virðist heilbrigð
iskerfinu ekki vera fært að sinna
fólki sem skyldi. „Ég fór með afa
í gegnum það þegar hann fékk
krabbamein 2011, svo ég þekki
ágætlega til. Það á ekki að þurfa
einhverja samfélagssöfnun þegar
við erum öll að borga okkar út
svar, okkar skatta og okkar gjöld.
Það grípur þig enginn og þú þarft
að biðja um ölmusu frá samborg
urum þínum til að geta komist í
gegnum veikindi. Þessu dæmi þarf
að breyta. Ég er að vona núna að
við getum breytt þessu, því þetta
er skammarlegt ástand.“
Hún bendir á að oft sé það þó
þannig að fólk kjósi flokka sem
fari þvert gegn þeirra persónulegu
hagsmunum.
„Af því að þarna kemur skömm
in. Það er fólk sem þorir ekki að
fara í örorkumat, þetta veit ég fyrir
víst, af því það vill ekki fá þennan
stimpil sem öryrki, af því að það
er búið að búa til eitthvert skrímsli
úr öryrkjum. Það er líka það, að ef
þú ert öryrki en þig langar samt að
leggja hönd á plóg þá máttu það
ekki. Það er bara allt eða ekkert.
Þetta fólk á ekki að þurfa skamm
ast sín fyrir að hafa veikst á ein
hverjum tímapunkti í lífinu og geta
ekki tekið hundrað prósent þátt í
atvinnulífinu. Þetta fólk á ekki að
þurfa að skammast sín.“
Hún segist vona að flokkurinn
fái tækifæri til að taka þátt í því
ferli sem er óumflýjanlegt til að
bæta stöðu þeirra sem verst hafi
það.
„Þótt ég virkilega voni að Sósíal
istaflokknum gangi vel þá skiptir
langmestu máli að samfélagsvit
undin muni breytast. Að fólk átti
sig á því að það hafi það ekki all
ir jafn gott. Ég er líka að vonast til
þess að í kjölfar þess að fólk deil
ir sínum sögum að samfélagið í
heild muni átta sig á því hve slæm
staðan hjá sumum er.“
Útvarp Saga ýtti
undir veikindi ömmu
Afi Natalie lést árið 2011 eftir erf
iða baráttu við krabbamein. Hún
segir að dauði hans hafi reynst
litlu fjölskyldunni erfiður. „Við
vorum alltaf bara þrjú, lítil fjöl
skylda og því var það gríðarlegt
áfall að missa hann. Jólin fyrstu
tvö árin á eftir voru mjög erfið og
þá grétum við amma mikið,“ segir
Natalie. Síðan þá hefur hún annast
ömmu sína samhliða starfi sínu en
fyrir nokkrum árum fór að bera á
elliglöpum hjá ömmu Natalie.
„Ég tók eftir því að hún var
orðin ringluð og utan við sig. Hún
hlustaði afskaplega mikið á Út
varp Sögu og ég tel það hafa gert
hana enn þá ruglaðri. Það ýtti
undir veikindin og olli henni mik
illi vanlíðan. Útvarp Saga fyrir
heilabilað fólk er eins og að hella
olíu á eld. Stöðin sendir út mis
kunnarlausan hræðsluáróður og
þegar þú byrjar að missa tökin og
fá heilabilun þá gleypirðu við öllu
sem heilögum sannleika,“ segir
Natalie.
„Það er stöðugt verið að ala á
hatri gagnvart innflytjendum og
flóttamönnum. Amma var farin
að verða mjög hrædd og fékk mjög
brenglaðar skoðanir á þessum
málaflokki,“ segir Natalie.
Jól með flóttamönnum
eyddu fordómum
Hún hafi þá dottið ofan á snjalla
lausn sem tengdist því hversu erf
ið jólin höfðu reynst þeim eftir að
afi hennar kvaddi. „Þetta var fyrir
tveimur árum þegar umræðan um
flóttafólk var í hámarki. Þá sá ég
fréttir um að margir flóttamenn
myndu halda jólin hjá Hjálpræðis
hernum og að það væri mikil þörf
á sjálfboðaliðum. Ég ákvað að skrá
mig og skráði ömmu sem gest,“
segir Natalie.
Að sögn Natalie komst amma
hennar í mikið uppnám þegar hún
heyrði af fyrirætlununum. „Amma
er auðvitað af þessari kynslóð sem
er ekki vön fjölmenningu. Síðan
dynja á henni þessu brengluðu
sjónarmið Útvarps Sögu sem gera
það að verkum að fræjum fordóma
er sáð,“ segir Natalie. Hún hafi þó
náð að sannfæra ömmu sína um
að koma með sér, ekki síst með því
að segja henni frá öllum börnun
um sem yrðu á staðnum og fengju
þarna mögulega einu jólapakkana
frá Hjálpræðishernum,“ segir hún.
Amma lét tilleiðast og við átt
um ótrúlega fallega stund saman.
Starfið sem Hjálpræðisherinn
vinnur er stórkostlegt. Þarna
sungu allir saman jólasöngva og
fögnuðu þessari hátíð saman,
sama hverrar trúar þeir voru. Þessi
stund breytti ömmu, þarna sá hún
innflytjendur og útlendinga í réttu
ljósi. Hún hlustar enn á Útvarp
Sögu en áhrifin af þessari stund
gerðu það að verkum að fordómar
hennar hurfu alveg,“ segir Natalie.
Hún segist hafa heillast af
þessari upplifun, því hafi hún
ákveðið að heimsækja Hjálpræðis
herinn aftur síðustu jól. „Amma
kom ekki með í það skipti. Hún
fékk pláss á Grund í október og því
kíkti ég til hennar í kaffi eftir há
tíðarhöldin. Þetta gefur mér ótrú
lega mikið og gott að geta látið
eitthvað gott af sér leiða á þessum
degi. Þetta er það sem jólin snúast
um,“ segir Natalie. n
„Það er eins
og fólk átti
sig ekki á því að á
einhverjum tíma-
punkti þá verðum
við öll gömul
Lítil fjölskylda Natalie ásamt ömmu sinni og afa, Guðríði Jóhönnu Jensdóttur og
Gunnari Guðmundssyni.
m
y
n
d
H
a
n
n
a