Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2018, Blaðsíða 30
11. maí 2018KYNNINGARBLAÐSumarið
Iceland Rentals: „Vatnasportið
hefur vakið stormandi lukku“
Viðburðaþjónusta fyrir alla: frá minni hópum til bæjarhátíða
Það sem við erum að gera er mjög víðfeðmt,“ segir þórarinn árni björnsson, verkefnastjóri
hjá viðburðafyrirtækinu iceland
rentals. „Við sjáum um allt frá árshá-
tíðum fyrir fyrirtæki, skóla og bæjar-
félög upp í sumar- og bæjarhátíðir
fyrir sömu aðila. Við erum líka að
leggja mikla áherslu á starfsmanna-
félög og þá bjóðum við upp á vatna-
sportsdag, þar sem ýmist vatnasport,
grill og góð skemmtun sameinar
hópinn.“
iceland rentals er viðburðar- og
útleigu fyrirtæki sem býður upp á
alhliða lausnir í viðburðum og öðrum
uppákomum. þar er einnig sport-
deild sem leigir út allt sem flokkast
undir sport og útivist. fyrirtækið
byggir á góðum grunni og reynslu
iceland Events, sem hefur starfað
síðan 2003 og komið að fjölmörg-
um viðburðum stórum sem smáum.
„Við erum einnig í ferðaþjónustu og
ákveðið var að skipta fyrirtækinu og
þannig verður iceland rentals til, sem
er einn hluti fyrirtækisins.
fyrirtækið fer hvert á land sem er
og hefur tekið þátt í bæjarfélagshá-
tíðum um allt land. „Við höfum komið
að flestum bæjarhátíðum einhvern
tímann, sem dæmi má nefna 17. júní í
reykjavík, markaðsdaga í bolungarvík
og mærudaga á húsavík. í gegnum
árin þá höfum við einhvern tímann
komið að öllum bæjarhátíðum á ein-
hvern hátt.“
Eina fyrirtækið sem býður upp á
vatnasport
Viðburðir iceland rentals skiptast
eftir árstíðum, sumri og vetri og á
sumrin er það vatnasportið sem
er allsráðandi. „Vatnasportið hefur
mælst mjög vel fyrir og það er sjaldan
sem fólk kemst í slíkt hér heima. þetta
hefur mælst vel fyrir og vekur alveg
stormandi lukku hjá hópum, en margir
starfsmannahópar koma til okkar.“
fyrirtækið er það eina hér á landi
sem býður upp á vatnasport af þessu
tagi: vatnabolta, vatnatrampólín,
að draga fólk á slöngu og jetski. „Við
sjáum um allt fyrir daginn, förum með
hópinn að vatni þar sem boðið er upp
á ýmislegt vatnasport, hoppukastala,
grill, tónlist, skemmtiatriði, allt eftir því
hvað hópurinn kýs að hafa.“
Enginn viðburður of lítill eða of stór
líkt og áður sagði hefur iceland
rentals komið að fjölmörgum bæjar-
hátíðum. „hefur þá tengiliður bæjar-
félagsins samband og við gerum
hugmyndapakka fyrir viðkomandi út
frá fjármagni og þá einfaldar það
mikið vinnuna fyrir viðkomandi. Öll
vinna er á einum stað, í stað þess
að leita til margra aðila. Við erum
með söluvagna, veitingavagna,
hoppukastala og önnur leiktæki og
hægt að afgreiða allt sem þarf á
einum stað.
það skiptir ekki máli hver viðburð-
urinn er, við getum þjónustað hann,
hvar sem fólk er að koma saman og
gera sér glaðan dag. Við höfum séð
um allt frá því að fara með eina fjöl-
skyldu hefðbundinn ferðamannarúnt í
að sjá um bæjarhátíðir sem þúsundir
hafa sótt.“
Verð fer eftir umfangi og stærð, en
er viðráðanlegt og iceland rentals
getur þjónustað stóra sem smáa
hópa, pakkar sem boðið er upp á eru
miðaðir við fjármagn hvers og eins.
Netfang Iceland Rentals er
iceland@icelandrentals.is, síminn:
893-0707 og 893-9933.
Heimasíðan er icelandrentals.is.