Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2018, Blaðsíða 26
11. maí 2018KYNNINGARBLAÐSumarið
Það er dýrlegt að spila golf á Akureyri
Golfklúbbur AkureyrAr oG Arctic open:
Akureyri er að mörgu leyti unaðsreitur kylfinga enda er þar hægt að stunda þessa
vinsælu íþrótt í ægifögru umhverfi við
afar góðar aðstæður. Golfvöllurinn
að Jaðri er eini 18 holu völlurinn utan
höfuðborgarsvæðisins og undanfarin
ár hefur átt sér stað mikil og farsæl
uppbygging á svæðinu. Hið einstæða
golfmót Arctic open er síðan þekkt
meðal kylfinga víða um heim, enda
engu líkt að leika golf undir miðnættið
á bjartasta tíma ársins, nærri heim-
skautsbaug.
Golfklúbbur Akureyrar, GA, rekur
golfvöllinn að Jaðri og lundsvöll, sem
er 9 holu völlur rétt innan við Vagla-
skóg. enn fremur rekur GA Golfhöllina,
sem er æfingasvæði fyrir kylfinga
á neðri hæð Íþróttahallarinnar á
Akureyri. Meðlimir í klúbbnum eru um
700 talsins og fá þeir aðgang að allri
þessari aðstöðu sem sífellt er verið
að endurbæta.
„Hér hefur orðið mikil uppbygging
síðustu tíu árin í samstarfi við Akur-
eyrarbæ ásamt gríðarlegri sjálfboða-
vinnu. Við hjá GA erum mjög lánsöm
hversu mikið og óeigingjarnt starf
hefur verið unnið af hálfu sjálfboða-
liða á öllum sviðum, ekki einungis við
uppbyggingu svæðisins heldur einnig
því sem lýtur að rekstri GA. endur-
bætur hafa verið gerðar á flötum og
teigum á Jaðri og lokahnykkurinn í
þessu ferli var nýtt æfingasvæði sem
tekið var í notkun árið 2016. núna
veitum við kylfingum einhverja þá
bestu aðstöðu sem völ er á,“ segir
Steindór kristinn ragnarsson, fram-
kvæmdastjóri GA.
eins og nærri má geta eru margir
kylfingar á Akureyri en golfvöllurinn
að Jaðri er líka mjög vinsæll meðal
ferðamanna. „Hér er vaxandi ferða-
mennska og undanfarin þrjú ár hefur
töluverður fjöldi ferðamanna komið
hingað úr skemmtiferðaskipum. en
meirihluti ferðamanna sem nýta sér
golfvöllinn að Jaðri er samt Ís-
lendingar,“ segir Steindór.
Golf í miðnætursól
Hið magnaða golfmót Arctic open
verður haldið dagana 20.–23. júní.
kylfingar sem tekið hafa þátt í mótinu
segja það vera draumkennda upplif-
un að spila golf í blóðrauðu sólarlagi
um miðnæturbil svo nærri heim-
skautsbaugi. Stemningin í kringum
mótið er engu lík og þátttakendur
eiga ógleymanlegar stundir í góðra
vina hópi.
nánari upplýsingar um Arctic open
er að finna á vefsíðunni arcticopen.is.
nánari upplýsingar um GA og
golfaðstöðu á Akureyri er að finna á
vefsíðunni gagolf.is eða í síma 462-
2974.
Þetta verður samkomu-staður fyrir Suðurnesja-búa sem vilja koma
saman og lifa sig inn í leiki
landsliðsins. Það er alltaf
svo mikil áhersla á reykjavík
og mér þykir vissulega vænt
um höfuðborgina en það
má ekki gleyma því að hér á
Suðurnesjum býr mjög margt
fólk sem hefur brennandi
áhuga á gengi strákanna
okkar,“ segir Sveinn fann-
berg, einn af rekstraraðilum
HM Skjásins í reykjanesbæ en hinir
eru trausti egilsson og Hilmar G.
Guðbjörnsson.
um er að ræða risaskjá sem byrjað
verður að setja upp þann 11. júní og
allt verður klárt á fyrsta leikdegi, sem
er 14. júní, en keppnin stendur yfir til
15. júlí.
Að sögn Sveins er verkefnið tíma-
frekara og kostnaðarsamara en hann
hafði grunað: „Þetta er ótrúlega mikil
vinna, miklu meiri en mig hafði grun-
að. Að finna rétta skjáinn, fá tilskilin
leyfi fyrir sýningunum, finna aug-
lýsendur og kostendur, þetta er búið
að standa yfir alveg frá því í október
en núna er allt að verða klárt og allir
samningar frágengnir.“
Að sögn Sveins hefur gengið vel
að fá fyrirtæki til að styrkja verkefnið
og vonir standa til að þetta komi út
á sléttu eða skilið jafnvel örlitlum
hagnaði. „en það verður enginn ríkur
af þessu og það er ekki tilgangurinn,“
segir Sveinn.
Verður stærra og íburðarmeira en á EM
Skjárinn verður settur upp fyrir fram-
an ráðhúsið í reykjanesbæ, rétt hjá
frægri pulsusjoppu (Villa borgara) í
hjarta bæjarins. risaskjár var einnig
settur upp þegar eM stóð yfir 2016
og að sögn Sveins voru þá 2–3.000
manns samankomnir þegar mest
var. Sveinn býst við mun meiri aðsókn
núna, til dæmis vegna þess að færri
Íslendingar munu fara til rússlands
til að sjá leikina en fóru á eM í frakk-
landi. Auk þess verður miklu meira
tilstand í kringum sýningarnar núna:
„Strákarnir í tólfunni koma og keyra
upp stemninguna. Þá mun aksturs-
íþróttafélagið hér á Suðurnesjum
heimsækja okkur á fyrsta leiknum og
lofa gestum að skoða glæsilega bíla.
Veitingasala verður á staðnum sem
stelpurnar og aðstandendur kvenna-
liðs keflavíkur sjá um, meðal annars
verða pítsur frá Domino's, og bjórinn
verður einhver sá ódýrasti sem sögur
fara af, eða 500 krónur hálfur lítri,“
segir Sveinn og lofar okkur frábærri
HM-stemningu í reykjanesbæ í sum-
ar.
ÁFRAM ÍSLAND!
Fjörið er rétt að byrja!
www.hmskjarinn.com.
HM Skjárinn tryggir Suðurnesja-
búum alvöru HM-stemningu