Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2018, Blaðsíða 36
11. maí 2018KYNNINGARBLAÐMæðradagurinn
„Gleðja hjartað
og lyfta andanum“
Stærsti viðskiptavinahópurinn hingað til er hótel og fyrirtæki sem leggja áherslu á aðlað-
andi móttöku og vilja bæði bjóða
viðskiptavinum og starfsfólki upp
á að hafa í kringum sig ný og fersk
blóm. Það er nú yfirleitt starfsfólkið
sem fær mest út úr þessu, það nýtur
þess að vinna innan um lifandi blóm
og það er mikil upplyfting þegar
skipt er um blóm hverju sinni. Það er
eitthvað einstakt við lifandi blóm, þau
snerta við einhverju í sálinni, gleðja
hjartað og lyfta andanum,“ segir Eva
Sæland sem rekur þjónustufyrirtækið
Reykjavik Gift Shop. Eva býður bæði
fyrirtækjum og einstaklingum upp á
að panta fersk blóm sem keyrð eru til
viðtakenda.
Blómin eins fersk og þau geta verið
Viðskiptavinir sem eru í áskrift hjá
Reykjavik Gift Shop fá eingöngu ís-
lensk blóm og alveg sérstaklega ný og
fersk, því fyrirtækið er ekki með lager
heldur kaupir blómin jafnóðum inn
og pantanir berast. Blómin eru skorin
degi áður en þau eru afhent og hefur
þessi ferskleiki í för með sér að blómin
lifa mun lengur en ella. Þó er ávallt
hægt að sérpanta blóm að utan ef
viðskiptavinur óskar eftir.
Sjálf er Eva af þriðja ættlið úr fjöl-
skyldu blómabænda og grænmetis-
ræktenda sem hefur sinnt þeirri iðju í
70 ár og hefur hún því mikla þekkingu
af öllu ræktunarferli blómanna, allt
frá græðlingi að fullbúnum blóm-
vendi, tilbúnum til afhendingar. Hún
veit því hvað það er mikilvægt að
koma blómunum hratt og vel til við-
skiptavina til að tryggja mestu mögu-
legu gæði og lengstu endingu.
Reykjavik Gift Shop þjónar Stór-
Reykjavíkursvæðinu og innan þess
svæðis er heimsending innifalin í verði
blómanna á virkum dögum. Blóma-
verðið er auk þess hagstætt þar sem
yfirbygging á starfseminni er í lág-
marki.
Bæði áskrift og stakar blóma-
sendingar
Blómin er hægt að kaupa bæði fyrir
stök tilefni og í áskrift. Eins og getið
var um hér í upphafi hefur fyrir-
tækjaáskriftin gert stormandi lukku
en hægt er að velja milli þess að fá
ný blóm vikulega, á tveggja vikna
fresti eða mánaðarlega svo dæmi
séu tekin. Eva kemur þá á staðinn og
skiptir bæði um blóm og vasa. Fimm
prósenta afsláttur er af blómaverði
fyrir þá sem eru með blóm í áskrift og
hærri afsláttur gefinn viðskiptavinum
sem kaupa meira magn hverju sinni.
„Þegar fer að vanta ný blóm byrjar
starfsfólkið að sakna mín,“ segir Eva
og bætir við að starf
hennar sé mjög
gefandi og hlaðið
góðri upplifun:
„Það fer nefni-
lega enginn í
fýlu við að fá ný
blóm.“
Fyrirtæki
kaupa einnig blóm
fyrir sérstök tilefni,
til dæmis þegar þau
vilja gleðja viðskipta-
vini eða starfsmenn vegna
tímamóta í lífi þeirra.
Fyrirtækjaþjónustan vegur enn
mun þyngra í starfseminni, en Eva
finnur fyrir auknum áhuga einstak-
linga á að nýta sér þessa þjónustu:
„Það á ekki síst við fólk sem vegna
anna og tímaleysis kaupir sér sjaldan
blóm.“ Því hef ég tekið upp á þeirri
nýjung að bjóða einstak-
lingum einnig upp á
áskriftarþjónustu og
fólki finnst það alveg
hreint frábært.“
Á vefnum
reykjavikgiftshop.
is er að finna ítar-
legar upplýsingar
um þjónustuna og
blómaúrvalið. Þar er enn
fremur hægt að ganga
frá pöntunum. En það er líka
hægt að ganga frá öllum viðskipt-
um og fá allar upplýsingar í síma
777-0311 enda leggur Eva áherslu á
persónulega þjónustu.
Einnig eru upplýsingar á Facebook-
síðunni facebook.com/reykjavikgiftshop
og þar vekur athygli hvað umsagnir
viðskiptavina eru lofsamlegar.
FERSK íSLENSK BLóm í pöNtuN EÐA ÁSKRIFt: