Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2018, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2018, Page 36
 11. maí 2018KYNNINGARBLAÐMæðradagurinn „Gleðja hjartað og lyfta andanum“ Stærsti viðskiptavinahópurinn hingað til er hótel og fyrirtæki sem leggja áherslu á aðlað- andi móttöku og vilja bæði bjóða viðskiptavinum og starfsfólki upp á að hafa í kringum sig ný og fersk blóm. Það er nú yfirleitt starfsfólkið sem fær mest út úr þessu, það nýtur þess að vinna innan um lifandi blóm og það er mikil upplyfting þegar skipt er um blóm hverju sinni. Það er eitthvað einstakt við lifandi blóm, þau snerta við einhverju í sálinni, gleðja hjartað og lyfta andanum,“ segir Eva Sæland sem rekur þjónustufyrirtækið Reykjavik Gift Shop. Eva býður bæði fyrirtækjum og einstaklingum upp á að panta fersk blóm sem keyrð eru til viðtakenda. Blómin eins fersk og þau geta verið Viðskiptavinir sem eru í áskrift hjá Reykjavik Gift Shop fá eingöngu ís- lensk blóm og alveg sérstaklega ný og fersk, því fyrirtækið er ekki með lager heldur kaupir blómin jafnóðum inn og pantanir berast. Blómin eru skorin degi áður en þau eru afhent og hefur þessi ferskleiki í för með sér að blómin lifa mun lengur en ella. Þó er ávallt hægt að sérpanta blóm að utan ef viðskiptavinur óskar eftir. Sjálf er Eva af þriðja ættlið úr fjöl- skyldu blómabænda og grænmetis- ræktenda sem hefur sinnt þeirri iðju í 70 ár og hefur hún því mikla þekkingu af öllu ræktunarferli blómanna, allt frá græðlingi að fullbúnum blóm- vendi, tilbúnum til afhendingar. Hún veit því hvað það er mikilvægt að koma blómunum hratt og vel til við- skiptavina til að tryggja mestu mögu- legu gæði og lengstu endingu. Reykjavik Gift Shop þjónar Stór- Reykjavíkursvæðinu og innan þess svæðis er heimsending innifalin í verði blómanna á virkum dögum. Blóma- verðið er auk þess hagstætt þar sem yfirbygging á starfseminni er í lág- marki. Bæði áskrift og stakar blóma- sendingar Blómin er hægt að kaupa bæði fyrir stök tilefni og í áskrift. Eins og getið var um hér í upphafi hefur fyrir- tækjaáskriftin gert stormandi lukku en hægt er að velja milli þess að fá ný blóm vikulega, á tveggja vikna fresti eða mánaðarlega svo dæmi séu tekin. Eva kemur þá á staðinn og skiptir bæði um blóm og vasa. Fimm prósenta afsláttur er af blómaverði fyrir þá sem eru með blóm í áskrift og hærri afsláttur gefinn viðskiptavinum sem kaupa meira magn hverju sinni. „Þegar fer að vanta ný blóm byrjar starfsfólkið að sakna mín,“ segir Eva og bætir við að starf hennar sé mjög gefandi og hlaðið góðri upplifun: „Það fer nefni- lega enginn í fýlu við að fá ný blóm.“ Fyrirtæki kaupa einnig blóm fyrir sérstök tilefni, til dæmis þegar þau vilja gleðja viðskipta- vini eða starfsmenn vegna tímamóta í lífi þeirra. Fyrirtækjaþjónustan vegur enn mun þyngra í starfseminni, en Eva finnur fyrir auknum áhuga einstak- linga á að nýta sér þessa þjónustu: „Það á ekki síst við fólk sem vegna anna og tímaleysis kaupir sér sjaldan blóm.“ Því hef ég tekið upp á þeirri nýjung að bjóða einstak- lingum einnig upp á áskriftarþjónustu og fólki finnst það alveg hreint frábært.“ Á vefnum reykjavikgiftshop. is er að finna ítar- legar upplýsingar um þjónustuna og blómaúrvalið. Þar er enn fremur hægt að ganga frá pöntunum. En það er líka hægt að ganga frá öllum viðskipt- um og fá allar upplýsingar í síma 777-0311 enda leggur Eva áherslu á persónulega þjónustu. Einnig eru upplýsingar á Facebook- síðunni facebook.com/reykjavikgiftshop og þar vekur athygli hvað umsagnir viðskiptavina eru lofsamlegar. FERSK íSLENSK BLóm í pöNtuN EÐA ÁSKRIFt:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.