Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2018, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2018, Blaðsíða 7
11. maí 2018 fréttir 7 Íslenskir feðgar sitja saman Í fangelsi n Stefán Egilsson og tveir synir hans í fangelsi n „Þeir eru áreiðanlega betur settir þarna inni“ n Nasistaklíkur n Afi frægur kontrabassaleikari hann kominn aftur í fangelsi fyrir líkamsárás og vörslu eiturlyfja, og situr nú með föður sínum í Scott County Jail. Undir væng nasista Scott County Jail er nýtt fangelsi, stofnað árið 2005. Þar eru 160 klefar, þar af 104 útbúnir fyrir tvo fanga. Fangelsið hýsir bæði gæslu- varðhalds- og langtímafanga af báðum kynjum og unglinga að ein- hverju leyti. Þetta er fangelsi með mikilli gæslu og litlum réttindum fanga en þar eru þó ýmisleg nám- skeið og vinnumöguleikar fyrir þá. Þar eru hýstir brotamenn af öllum stigum, allt frá smáglæpamönn- um upp í dæmda morðingja. Moose Lake, þar sem Stefán Árni afplánar, er mun stærra fang- elsi með yfir þúsund föngum, stofnað árið 1988. Aðeins karl- menn afplána þar og flestir fyrir eiturlyfjabrot, kynferðisbrot og líkamsárásir. Auk þess eru í yfir hundrað morðingjar í fangelsinu. Það er þekkt staðreynd að glæpaklíkur stjórna öllu daglegu lífi í bandarískum fangelsum og fara þær oft eftir kynþáttalínum. C.J. Smith, leiðtogi arískra þjóð- ernissinna, þekkir vel til íslensku feðganna. Þegar Stefán Árni fékk sinn þunga dóm skrifaði Smith á Facebook-síðu Stefáns eldri: „Hann tók dóminum eins og maður, tók ábyrgð á gjörðum sín- um og mun afplána með höf- uðið hátt. Við í hvíta kynþættin- um erum þess heiðurs aðnjótandi að fá mann eins og hann til okkar, og trúðu mér, við hvítir þjóðern- issinnar erum stoltir að taka við honum og sýna honum hinn hvíta veg.“ Frægur kontrabassaleikari Kristín segir að mál feðganna hafi fengið mikið á foreldra Stef- áns eldri, þau Árna og Dorette. Árni, sem er 78 ára og hefur búið í Bandaríkjunum um áratuga skeið, er virtur kontrabassaleikari sem hefur gefið út fjölda hljómplatna og spilað á tónleik- um víða um Banda- ríkin og Evrópu. Hann lærði í Bret- landi og Hamborg og flutti til Houston og spilaði með sinfóníuhljómsveitinni þar í borg en fluttist svo yfir til Los Angeles árið 1969 þar sem hann hefur spilað inn á meira en þúsund kvikmyndir og sjón- varpsþætti. Þá átti hann í góðu samstarfi við Sir André Previn, fjórfaldan Óskars- og Grammy- verðlaunahafa. Árni hefur einnig spilað inn á klassíska plötu með píanósnillingnum Vladimir As- hkenazy og djassbassaleikaran- um Ray Brown. Um tíma var hann prófessor í kontrabassaleik við Cali fornia State University. Er Árni í sambandi við Stefán og syni hans? „Já, að einhverju leyti sem þeir mega. En þeir hafa ekki mátt vera í miklu sambandi. Við höfum ekki áhyggjur af þeim í dag og þetta virðist stefna í góða átt. En það er reyndar ósköp lítið sem for- eldrarnir vita og segja mér. Stefán Árni ætlar að reyna að koma sér út úr þessu og fara að læra eitthvað. Hann reyndi það á sínum tíma en það fór fyrir lítið.“ n Scott County Jail Moose Lake arÍska bræðralagið Aríska bræðralagið, sem stofnað var í San Quentin í Kaliforníu árið 1964, er eins kon- ar regnhlífarsamtök hvítra þjóðernisgengja í Bandaríkjunum og hafa þau starfsemi bæði innan og utan veggja fangelsanna. Heildartala meðlima er á bilinu 15 til 20 þúsund manns og stunda þeir glæpastarfsemi af ýmsum toga, svo sem eiturlyfjasölu, fjárkúgun og leigumorð. Þá reka þeir víðtæka vændisstarfsemi innan veggja. Í fangelsum Minnesota starfa sex þekkt gengi hvítra þjóðernis- sinna. Það elsta og jafnframt fjölmennasta er Prison Motorcycle Brotherhood, stofnað árið 1986. Margir hvítir fangar ganga til liðs við klíkurnar til þess að njóta verndar, jafnvel þótt þeir styðji ekki hugmyndafræði kynþátta- hyggju. Meðlimir eru flestir húðflúraðir með merkjum á borð við hakakrossinn og þórshamarinn til að merkja sig. Helstu and- stæðingar þeirra eru samtök svartra, Black Guerilla Family, en bandamenn þeirra eru mexíkóska mafían, La Eme. „Við hvítir þjóðernissinnar erum stoltir að taka við honum og sýna honum hinn hvíta veg c.j. smith Árni og Dorette DV 22. mars 1997. Stefán Árni Egilsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.