Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2018, Blaðsíða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2018, Blaðsíða 39
 11. maí 2018 KYNNINGARBLAÐ Mæðradagurinn Skata-stóllinn er bæði klassískur og splunkunýr Mikil gróska er í íslenskri hönnun þessa dagana og hún farin að vekja æ meiri athygli erlendis. Þetta á ekki síst við um húsgagnahönnun sem nú virðist vera að vakna til lífsins á ný. Fáir vita hins vegar að íslensk húsgagnahönnun átti sér mikið blómaskeið á 6. og 7. áratugnum þar sem íslensk húsgögn vöktu jafnvel athygli á sýningum erlendis. Sum þessara húsgagna eru að fara í framleiðslu á ný og ættu að vera sjálfsagðir hlutir á íslenskum heimilum í bland við það nýjasta og besta. Tvö þessara húsgagna eru stól- arnir Skata og Þórshamar, sem voru hannaðir árið 1959 og 1961 og voru þá fyrstu íslensku stólarnir úr form- beygðum krossvið. Báðir státa þeir síðan af því að vera elstu íslensku stólarnir sem enn er í framleiðslu, en framleiðslan á þeim hófst að nýju árið 2007 eftir 35 ára hlé. Hönnuður stólanna var Halldór Hjálmarsson, húsgagnahönnuður og innanhússarkitekt, en sonur Halldórs, arkitektinn Örn Þór Halldórsson, hóf framleiðsluna að nýju og hefur auk þess verið að þróa útfærslu á þessari klassísku hönnun föður síns í takt við samtímann. Örn segir að Skata sé tímalaus hönnun, þó að grunnformin séu klassísk sé stóllinn líka viðfangsefni nýjustu strauma í húsgagnahönnun: „Ýmsir arkitektar og hönnuðir hafa auk þess komið að máli við mig og viljað aðlaga stólana að sínum verkefnum. Þetta hefur fætt ýmis- legt skemmtilegt af sér og má með- al annars nefna að hönnunar- og arkitektastofurnar Tvíhorf og Gagarín hafa þróað sérstaka útfærslu fyrir sín verkefni, meðal annars fyrir sameig- inlegu kaffistofuna sína. Sú útgáfa er afskaplega skemmtileg og talar beint inn í nútímann með sínum fjöl- breytileika og ætti eiginlega að heita Gagarín- og Tvíhorf-stólarnir.“ Skata og Þórshamar eru því til í mörgum útgáfum og nýjustu út- gáfurnar er hægt að skoða og kaupa í nýrri verslun Geysis-heima að Skólavörðustíg 12. Allar útgáfurnar af Skötu og Þórshamri, bæði nýjar og gamlar, eiga þó enn sitt sameiginlega útlit, sem er í senn stílhreint og list- rænt og segir Örn að þetta séu ljóð- rænir stólar: „Þetta ljóðræna kemur ekki síst fram í því að festingarnar undir Skötustólnum minna á „egg“, en fiskurinn skata verpir einmitt eggjum.“ Fyrir áhugasama þá er best að hafa samband við Örn beint með því að senda skilaboð í gegnum heima- síðuna http://skata.is/, á netfangið info@skata.is. eða senda skilaboð á Facebook-síðunni Skata. „Í kjölfarið kemur fólk í heimsókn á verkstæðið mitt hérna í Vesturbæn- um og kaupir stólana beint frá býli,“ segir Örn. Þess má að lokum geta að stóll- inn er á leiðinni á sýningu hjá Illums Bolighus í Kaupmannahöfn í lok maí. Veitingastaðurinn Sumac, Laugavegi 28, heitir eftir djúprauðum villiberjum sem vaxa víða í Miðausturlöndum og við Miðjarðarhaf. Matseldin á Sumac er innblásin af seiðandi stemningu frá Beirút í Líbanon og tælandi áhrifum frá Marokkó. Á staðnum er ferskt hráefni úr íslenskri náttúru, matreitt undir áhrifum Miðausturlanda og á matseðlinum eru eldgrillaðir réttir með framandi kryddi. Á barnum er Miðjarðarhafsstemn- ing og í boði eru ferskir, fjölbreyttir og freistandi kokteilar. Á vínseðlin- um blandast saman innblástur frá Evrópu, Marokkó og Líbanon. Sumac er kjörinn staður til að gleðja móður sína með á mæðradaginn og fá í leiðinni Mið- jarðarhafshita í sálina. Borðapantanir eru á heimasíðunni sumac.is og í síma 537-9900. Einnig er kjörið að gefa gjafakort frá Sumac á Valentínusar- daginn en þau er hægt að kaupa á sumac.is eða á staðnum, að Lauga- vegi 28. Mæðradagsmatseðill á Sumac è Miðjarðarhafsstemning á Valentínusardaginn SuMAc:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.