Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2018, Page 39
11. maí 2018 KYNNINGARBLAÐ Mæðradagurinn
Skata-stóllinn er bæði klassískur og splunkunýr
Mikil gróska er í íslenskri hönnun þessa dagana og hún farin að vekja æ meiri athygli
erlendis. Þetta á ekki síst við um
húsgagnahönnun sem nú virðist vera
að vakna til lífsins á ný. Fáir vita hins
vegar að íslensk húsgagnahönnun
átti sér mikið blómaskeið á 6. og 7.
áratugnum þar sem íslensk húsgögn
vöktu jafnvel athygli á sýningum
erlendis. Sum þessara húsgagna eru
að fara í framleiðslu á ný og ættu
að vera sjálfsagðir hlutir á íslenskum
heimilum í bland við það nýjasta og
besta.
Tvö þessara húsgagna eru stól-
arnir Skata og Þórshamar, sem voru
hannaðir árið 1959 og 1961 og voru
þá fyrstu íslensku stólarnir úr form-
beygðum krossvið. Báðir státa þeir
síðan af því að vera elstu íslensku
stólarnir sem enn er í framleiðslu, en
framleiðslan á þeim hófst að nýju árið
2007 eftir 35 ára hlé.
Hönnuður stólanna var Halldór
Hjálmarsson, húsgagnahönnuður og
innanhússarkitekt, en sonur Halldórs,
arkitektinn Örn Þór Halldórsson,
hóf framleiðsluna að nýju og hefur
auk þess verið að þróa útfærslu á
þessari klassísku hönnun föður síns
í takt við samtímann. Örn segir að
Skata sé tímalaus hönnun, þó að
grunnformin séu klassísk sé stóllinn
líka viðfangsefni nýjustu strauma í
húsgagnahönnun:
„Ýmsir arkitektar og hönnuðir
hafa auk þess komið að máli við mig
og viljað aðlaga stólana að sínum
verkefnum. Þetta hefur fætt ýmis-
legt skemmtilegt af sér og má með-
al annars nefna að hönnunar- og
arkitektastofurnar Tvíhorf og Gagarín
hafa þróað sérstaka útfærslu fyrir sín
verkefni, meðal annars fyrir sameig-
inlegu kaffistofuna sína. Sú útgáfa
er afskaplega skemmtileg og talar
beint inn í nútímann með sínum fjöl-
breytileika og ætti eiginlega að heita
Gagarín- og Tvíhorf-stólarnir.“
Skata og Þórshamar eru því til
í mörgum útgáfum og nýjustu út-
gáfurnar er hægt að skoða og kaupa
í nýrri verslun Geysis-heima að
Skólavörðustíg 12. Allar útgáfurnar
af Skötu og Þórshamri, bæði nýjar og
gamlar, eiga þó enn sitt sameiginlega
útlit, sem er í senn stílhreint og list-
rænt og segir Örn að þetta séu ljóð-
rænir stólar: „Þetta ljóðræna kemur
ekki síst fram í því að festingarnar
undir Skötustólnum minna á „egg“, en
fiskurinn skata verpir einmitt eggjum.“
Fyrir áhugasama þá er best að
hafa samband við Örn beint með því
að senda skilaboð í gegnum heima-
síðuna http://skata.is/, á netfangið
info@skata.is. eða senda skilaboð á
Facebook-síðunni Skata.
„Í kjölfarið kemur fólk í heimsókn á
verkstæðið mitt hérna í Vesturbæn-
um og kaupir stólana beint frá býli,“
segir Örn.
Þess má að lokum geta að stóll-
inn er á leiðinni á sýningu hjá Illums
Bolighus í Kaupmannahöfn í lok maí.
Veitingastaðurinn Sumac, Laugavegi 28, heitir eftir djúprauðum villiberjum sem
vaxa víða í Miðausturlöndum og við
Miðjarðarhaf. Matseldin á Sumac er
innblásin af seiðandi stemningu frá
Beirút í Líbanon og tælandi áhrifum
frá Marokkó. Á staðnum er ferskt
hráefni úr íslenskri náttúru, matreitt
undir áhrifum Miðausturlanda og á
matseðlinum eru eldgrillaðir réttir
með framandi kryddi.
Á barnum er Miðjarðarhafsstemn-
ing og í boði eru ferskir, fjölbreyttir
og freistandi kokteilar. Á vínseðlin-
um blandast saman innblástur frá
Evrópu, Marokkó og Líbanon.
Sumac er kjörinn staður til
að gleðja móður sína með á
mæðradaginn og fá í leiðinni Mið-
jarðarhafshita í sálina. Borðapantanir
eru á heimasíðunni sumac.is og í síma
537-9900. Einnig er kjörið að gefa
gjafakort frá Sumac á Valentínusar-
daginn en þau er hægt að kaupa á
sumac.is eða á staðnum, að Lauga-
vegi 28.
Mæðradagsmatseðill á Sumac è
Miðjarðarhafsstemning
á Valentínusardaginn
SuMAc: