Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2018, Blaðsíða 62

Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2018, Blaðsíða 62
62 fólk 11. maí 2018 Ef þú þyrftir að breyta, hvað myndirðu vilja heita annað en Selma eða vera annað en leikstjóri, söngkona eða leikkona? Væri til í að heita Ísadóra Lóa og vera barnalæknir. Hverjum líkist þú mest? Ég á þrjár systur en ég líkist Birnu og Hrafnhildi, systrum mínum, mest. Guffa og ég erum meira líkar með húmor frekar en í útliti Hvað halda margir um þig sem er alls ekki satt? Að ég sé köld og fráhrindandi, sem mínir bestu kannast alls ekki við og finnst ég einmitt vera viðkvæmt og um- faðmandi blóm. Í hverju finnst þér þú vera betri en aðrir? Að halda stutta og effektífa fundi. (Hata langa og leiðinlega, tilgangslausa fundi) Hvað finnst þér að eigi að kenna í skólum sem er ekki kennt þar núna? Að þú sért ekki heimskur þótt þú eigir við námsörðugleika að stríða, út af tauga- eða geðröskunum sem þú fæddist með. Ef þú þyrftir að eyða 100 þúsund kalli á klukkutíma, í hvaða verslun færirðu? Vá, svo margar búðir koma upp í hugann, Louis Voitton, Chanel, en ef við eigum að halda þessu á eyjunni okkar, þá tekur enga stund að eyða 100.000 krónum í Geysi eða Farmers market. Hvað viltu að standi skrifað á legstein- inum þínum? Vil engan legstein, vil láta brenna mig og dreifa minni ösku yfir mína uppáhaldsstaði. En sloganið mitt verður alltaf: HÚN LIFÐI LÍFINU LIFANDI! Sex ára barn spyr þig hvort jólasveinninn sé til. Hvernig svarar þú? Já, elsku barn. Ég hef hitt þá alltof marga í lífinu. Ef þú mættir velja eitt lag sem yrði alltaf spilað um leið og þú gengir inn í herbergi allt þitt líf, hvaða lag myndirðu velja? Who run the world? girls með Beyoncé. Hvaða bíómynd hefurðu séð oftast? „Shit“ hef horft á margar býsna oft en ég held að Grease hafi vinninginn. Hvað var í tísku þegar þú varst yngri en er það ekki lengur? Herðapúðar. Borðarðu mat sem er kominn fram yfir síðasta söludag? Að sjálfsögðu! Hverju laugstu síðast? Að það væru 5 mínútur í mig. Um hvað geta allir í heiminum verið sammála? Að bros getur dimmu í dagsljós breytt. Ef þú mættir bæta við ellefta boðorðinu, hvernig hljómaði það? Æi, mér finnst trúarbrögð vera úrelt. Tek undir með Ricky Gervais sem sagði: „There have been nearly three thousand gods in the universe. None of them are real… except yours… yours is real.“ Er nefnilega trúlaus eftir mikla rannsókn í mörg ár og útskrifast sem athafnastjóri Siðmenntar vonandi í byrjun sumars. Get þá farið að gefa saman fólk og stjórna nafngjafarathöfnum. Hlakka mikið til. Hvað í hegðun hins kynsins ruglar þig mest? Leikir. Skil ekkert í þeim og kann ekki. Hvaða áhugamál myndirðu ekki sætta þig við að maki þinn stundaði? Barrölt. Á hvern öskraðirðu síðast? Sennilega son minn, fyrir að öskra á Playstation partner- inn sinn. Skil þetta stöff ekki. Hvaða einstakling finnst þér þú þekkja, þótt þú hafir aldrei hitt hann? Madonnu. Hvaða hljóð fer mest í taugarnar á þér? Klór í krítartöflu. Hvaða frægu persónu leistu upp til en sérð eftir því í dag? Bill Cosby. Elskaði fyrirmyndarföðurinn en gubbaði upp í mig eftir síðustu fréttir. Hver er versta vinnan sem þú hefur unnið? Unglingavinnan þar sem ég þurfti að sópa götur en var með rykofnæmi. Um hvað varstu alveg viss þangað til þú komst að því að þú hafðir rangt fyrir þér? Að maður ætti alltaf að trúa því besta upp á fólk. Hvert er þitt stærsta líkamlega afrek í lífinu? Að fæða börnin mín!!!!!! Hvað verður orðið hallærislegt eftir 5 ár? Að drekka vín. Ef þú yrðir handtekin án skýringa, hvað myndu vinir þínir og fjölskylda halda að þú hefðir gert af þér? Logið einhverju til að bjarga vini úr veseni. Hvaða teiknimyndapersónu myndirðu vilja eiga sem vin? Marge í Simpsons, hefðum margt að fara á trúnó yfir. Hvað ættu allir að prófa að minnsta kosti einu sinni í lífinu? Að elska! Hvað myndirðu segja ef Guð hnerraði? Noh, ertu þá til? Nú labbar mörgæs með kúrekahatt inn um dyrnar hjá þér. Hvað segir hún og af hverju er hún þarna? HÆ, hvenær koma Selma og Miðnæturkúrekarnir með „comeback“! Og svo myndi hún að sjálf- sögðu biðja um diskinn Alla leið til Texas, áritaðan. Selma Björnsdóttir söngkona hefur tekið þátt í Eurovision tvisvar, leikið og sungið og dansað í yfir 20 sýningum á vegum Þjóðleikhússins og Borg- arleikhússins, en frá árinu 2007 mest megnis verið að leikstýra um allan heim meðal annars í Royal Shakespeare Company í Stratford, Noregi, Svíþjóð, Boston, og Toronto. Selma sýnir lesendum DV á sér hina hliðina. „Þurfti að sópa götur en er með rykofnæmi“ hin hliðin Í spennutrylli með Ian McKellen og Helen Mirren Jóhannes Haukur J óhannes Haukur Jóhannes­ son fer með hlutverk í spennutryllinum The Good Liar eftir Óskarsverð­ launahafann Bill Condon, leik­ stjóra Chicago, Dreamgirls og Beauty and the Beast. Tökur á myndinni eru hafnar og fara að mestu fram í Bretlandi, en einnig í Þýskalandi. Sjá stór­ leikararnir Helen Mir­ ren og Ian McKellen um burðarrullurnar. Condon er einnig einn framleiðandi myndarinnar og hef­ ur áður unnið með McKellen að mynd­ unum Mr. Holmes og Gods and Mon­ sters, en Condon vann Óskars verðlaun fyr­ ir árið 2000 í flokki besta handrits byggðu á áður út­ gefnu efni. Leik­ stjórinn naut einnig mikillar velgengni með lokamyndum Twilight­seríunnar og halaði Beauty and the Beast inn rúman milljarð í Bandaríkjadölum á heimsvísu, þar með tekjuhæsta kvikmynd síðasta árs. The Good Liar er byggð á samnefndri skáldsögu eftir Nicholas Searle og skrifuð af handritshöfundi Mr. Holmes, þar sem Ian McKellen fór einnig með aðalhlutverkið. Að þessu sinni leikur McKellen glæpa­ mann sem ætlar að setjast í helgan stein eftir eitt lokasvindl. Áætlunin er að vinna sér inn traust dularfullrar ekkju og stela peningum hennar, en stigmagn­ andi vefur lyga reynist hafa ófyrir sjáanleg áhrif á þau bæði. Kvikmyndavefurinn IMDb staðfestir að Jóhannes fari með hlutverk persónu að nafni Vlad og verður The Good Liar frum­ sýnd á næsta ári, á svipuðum tíma má einnig búast við vestr­ anum The Sisters Brothers, þar sem Jóhannes er í kominn í hóp með mönnum á borð við Jake Gyllenhaal, John C. Reilly og Joaquin Phoenix. n tomas@dv.is lítt þekkt ættartengsl: Forstjórinn og stór- söngvarinn Svanhildur Konráðsdóttur, forstjóri Hörpu, hefur verið á hvers manns vörum undan­ farna viku vegna launamála sinna. Fréttablaðið greindi frá því að laun hennar hefðu hækkað um 20% á sama tíma og lægst settu starfsmenn tón­ listarhússins voru látnir taka á sig launalækkun. Ekki sér fyrir endann á deilunni en nýjustu fregnir herma að á þriðja tug starfsmanna Hörpu hafi sagt störfum sínum lausum. Færri vita að Svanhildur kemur af söngelsku fólki norðan heiða. Þannig er föðurbróðir hennar stór­ söngvarinn Kristján Jóhannsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.