Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2018, Síða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2018, Síða 30
 11. maí 2018KYNNINGARBLAÐSumarið Iceland Rentals: „Vatnasportið hefur vakið stormandi lukku“ Viðburðaþjónusta fyrir alla: frá minni hópum til bæjarhátíða Það sem við erum að gera er mjög víðfeðmt,“ segir þórarinn árni björnsson, verkefnastjóri hjá viðburðafyrirtækinu iceland rentals. „Við sjáum um allt frá árshá- tíðum fyrir fyrirtæki, skóla og bæjar- félög upp í sumar- og bæjarhátíðir fyrir sömu aðila. Við erum líka að leggja mikla áherslu á starfsmanna- félög og þá bjóðum við upp á vatna- sportsdag, þar sem ýmist vatnasport, grill og góð skemmtun sameinar hópinn.“ iceland rentals er viðburðar- og útleigu fyrirtæki sem býður upp á alhliða lausnir í viðburðum og öðrum uppákomum. þar er einnig sport- deild sem leigir út allt sem flokkast undir sport og útivist. fyrirtækið byggir á góðum grunni og reynslu iceland Events, sem hefur starfað síðan 2003 og komið að fjölmörg- um viðburðum stórum sem smáum. „Við erum einnig í ferðaþjónustu og ákveðið var að skipta fyrirtækinu og þannig verður iceland rentals til, sem er einn hluti fyrirtækisins. fyrirtækið fer hvert á land sem er og hefur tekið þátt í bæjarfélagshá- tíðum um allt land. „Við höfum komið að flestum bæjarhátíðum einhvern tímann, sem dæmi má nefna 17. júní í reykjavík, markaðsdaga í bolungarvík og mærudaga á húsavík. í gegnum árin þá höfum við einhvern tímann komið að öllum bæjarhátíðum á ein- hvern hátt.“ Eina fyrirtækið sem býður upp á vatnasport Viðburðir iceland rentals skiptast eftir árstíðum, sumri og vetri og á sumrin er það vatnasportið sem er allsráðandi. „Vatnasportið hefur mælst mjög vel fyrir og það er sjaldan sem fólk kemst í slíkt hér heima. þetta hefur mælst vel fyrir og vekur alveg stormandi lukku hjá hópum, en margir starfsmannahópar koma til okkar.“ fyrirtækið er það eina hér á landi sem býður upp á vatnasport af þessu tagi: vatnabolta, vatnatrampólín, að draga fólk á slöngu og jetski. „Við sjáum um allt fyrir daginn, förum með hópinn að vatni þar sem boðið er upp á ýmislegt vatnasport, hoppukastala, grill, tónlist, skemmtiatriði, allt eftir því hvað hópurinn kýs að hafa.“ Enginn viðburður of lítill eða of stór líkt og áður sagði hefur iceland rentals komið að fjölmörgum bæjar- hátíðum. „hefur þá tengiliður bæjar- félagsins samband og við gerum hugmyndapakka fyrir viðkomandi út frá fjármagni og þá einfaldar það mikið vinnuna fyrir viðkomandi. Öll vinna er á einum stað, í stað þess að leita til margra aðila. Við erum með söluvagna, veitingavagna, hoppukastala og önnur leiktæki og hægt að afgreiða allt sem þarf á einum stað. það skiptir ekki máli hver viðburð- urinn er, við getum þjónustað hann, hvar sem fólk er að koma saman og gera sér glaðan dag. Við höfum séð um allt frá því að fara með eina fjöl- skyldu hefðbundinn ferðamannarúnt í að sjá um bæjarhátíðir sem þúsundir hafa sótt.“ Verð fer eftir umfangi og stærð, en er viðráðanlegt og iceland rentals getur þjónustað stóra sem smáa hópa, pakkar sem boðið er upp á eru miðaðir við fjármagn hvers og eins. Netfang Iceland Rentals er iceland@icelandrentals.is, síminn: 893-0707 og 893-9933. Heimasíðan er icelandrentals.is.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.