Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2018, Page 2
2 8. júní 2018FRÉTTIR
Fjölmargir
Íslendingar
eru á
leiðinni til
Rússlands
til að fylgjast
með sínum mönnum keppa á
HM í fyrsta sinn. Er þetta einnig
fyrir marga fyrsta skiptið sem leið
þeirra liggur til Rússlands enda
hefur landið til þessa ekki verið
ofarlega á listanum yfir vinsæl-
ustu ferðamannastaði okkar. Af
því tilefni tók DV saman lista yfir
fimm hluti sem þú átt ekki að taka
með þér.
Vuvuzela-ið þitt
Plasthljóðfærið
sem gerði
HM 2010
gjörsamlega
óþolandi.
Nokkrir
sáust með
svoleiðis á
HM 2014.
Skulum
ekki láta
það
endur-
taka
sig.
Regnboga-
fánann þinn
Það er æðislegt að
vera stolt/ur. En ekki
í Rússlandi. Rússar
eiga það til að lemja
hinsegin fólk. Líka
löggan.
Nasista-
búninginn þinn
Nasistar réðust inn í
Rússland og rúmlega
20 milljónir létust
í kjölfarið. Skildu
nasistabúninginn þinn
eftir heima, í guðanna
bænum.
Millistykki
Praktískt atriði. Rússar
nota eins innstungur
og við. Þú þarft ekki
að leita að millistykki í
fríhöfninni.
Messi-
bolinn þinn
Við erum þarna til að
styðja okkar menn.
Messi getur verið þinn
maður í spænsku
deildinni en ekki á
HM 2018. Mátt líka
skilja eftir Maradona-,
Modrić- og John Obi
Mikel-bolina þína.
hlutir sem þú átt ekki að taka með þér á HM
Á þessum degi,
8. júní
632 – Spámaðurinn Muhammad deyr
í Medina.
1783– Skaftáreldar hófust í Lakagíg-
um. Gosið stóð í átta mánuði og markaði
upphafið að sjö ára hungursneyð og
annarri eymd. Talið er að gosið hafi
kostað hátt í 10.000 manns lífið.
1949 – Skáldsagan 1984, eftir George
Orwell, er gefin út.
1984 – Samkynhneigð er lýst lögleg í
Nýju Suður-Wales í Ástralíu.
2009 – Tveir bandarískir blaðamenn
eru sakfelldir fyrir að koma inn í Norður-
Kóreu með ólöglegum hætti. Þeir eru
dæmdir til 12 ára betrunarvinnu.
George Orwell
Síðustu orðin
„Hvað í helvítinu ertu að
syngja fyrir mig, klerkur? Þú
heldur ekki lagi.“
– Franska tónskáldið Jean-Philippe
Rameau (25. sept. 1683–12. sept. 1764)
S
íðastliðið mánudagskvöld
átti sér stað skelfilegt bílslys
á Vesturlandsvegi á Kjalar
nesi skammt frá Enni, þar
sem fólksbifreið og sendibifreið
lentu saman. Einn lést í slysinu
og níu einstaklingar, allir úr sömu
fjölskyldu, voru fluttir á slysa
deild, þar af fjórir á gjörgæslu.
Ökumaður sendibifreiðar
innar var Sigrún Elísabet Einars
dóttir, 39 ára gömul. Ásamt henni
voru í bílnum sjö börn hennar,
á aldrinum 3 til 16 ára og eitt
systurbarn hennar. Ökumaður
fólksbifreiðarinnar, karlmaður á
fertugsaldri, erlendur ríkisborgari
búsettur hér á landi, lést í slysinu
og hefur nafn hans ekki verið gef
ið upp.
Vakti þjóðarathygli vegna
barnafjölda
Sigrún og fjölskylda hennar vöktu
athygli þjóðarinnar þegar fjallað
var um fjölskylduna í Eyjanesi
í Ísþjóðin, þáttum Ragnhildar
Steinunnar Jónsdóttur á RÚV,
árið 2015. Sigrún er yngsta núlif
andi íslenska konan sem hefur
eignast tíu börn. Sigrún var 17
ára þegar hún eignaðist sitt fyrsta
barn og 35 ára þegar það tíunda
kom í heiminn, börnin eru í dag á
aldrinum 3–21 árs. Sambýlismað
ur hennar, Albert Jónsson, á þrjú
börn úr fyrra sambandi.
Sigrún var útskrifuð í gær,
seinnipart fimmtudags, en eitt
barna hennar er enn á gjörgæslu,
næstyngsta barn Sigrúnar, Mirra
sem er fjögurra ára. Hin börnin
sem lentu í bílslysinu eru öll kom
in heim, sex börn Sigrúnar og
systurbarn hennar.
Þann 1. júní síðastliðinn eign
aðist Sigrún fyrsta barnabarn sitt,
þegar dóttir hennar, Fanney Sand
ra, eignaðist son. Það er því ljóst
að stutt er á milli gleði og sorgar
hjá Sigrúnu. Þegar slysið varð var
Sigrún á leið frá Akranesi heim
til Reykjavíkur eftir heimsókn
hjá dóttur sinni og barnabarni.
Sigrún býr á Stúdentagörðun
um ásamt börnunum meðan
hún stundar nám í sálfræði við
Háskóla Íslands, á meðan sinnir
Albert faðir barnanna bústörf
um í Eyjanesi í Hrútafirði.
Atvinnulaus og bíllaus eftir
bílslysið
Sigrún var búin að ráða sig
í vinnu í Reykjavík í sumar
og hugðist keyra á milli til að
sinna vinnunni. Vegna að
stæðna, en hún dvelur enn
á almennri deild á spítala,
mun hún ekki geta sinnt
þeirri vinnu. Bíllinn er einnig
gjörónýtur eftir slysið, auk þess
sem fatnaður og annað skemmd
ist. Það er því ljóst að tekjurnar
hjá stórfjölskyldunni verða minni
en vanalega, auk þess sem verald
legar eigur, líkt og bíllinn, fást ekki
bættar í bráð. María hefur fengið
fjölda símtala og heimsókna þar
sem vinir og ættingjar hafa boð
ið fram aðstoð sína og var því
ákveðið að opna söfnunarreikn
ing fyrir Sigrúnu og börn hennar.
„Bræður mínir stofnuðu söfn
unarreikning á nafni mágkonu
minnar,“ segir María móðir Sig
rúnar. „Bíllinn hennar er gamall
og því fæst aðeins brot af and
virði hans úr tryggingunum,
hún hafði því áhyggjur af að
komast ekki lengur um með
börnin. Það væri líka gott
ef þannig safnaðist að Sig
rún gæti verið áhyggjulaus
heima með börnin sín í sum
ar og þyrfti ekki að vinna.
Elstu þrjár dæturnar eru flutt
ar að heiman, þannig að átta
manna bíll dugar.
Það eru allir að hringja og
spyrja hvað þeir geti gert, ég
kann ekki að þiggja hjálp,“ segir
María. Hún hefur bent fólki á
að það sé verið að opna söfn
unarreikning og þeir sem vilji
og geti, geti aðstoðað þar.“ n
Við hvetjum þá sem geta
lagt söfnuninni lið að gera það.
Söfnunarreikningurinn er á
nafni mágkonu Maríu, Önnu
Bergsteinsdóttur, kennitala
100754-3129 og reikningur
545-14-408963.
10 barna móðirin Sigrún lenti í
alvarlegu bílslysi á Kjalarnesi
n Með átta börn í bílnum n Yngsta dóttirin enn á gjörgæslu
Ragna Gestsdóttir
ragna@dv.is
„Hún er
ofurkona.
Krónprinsinn
Nökkvi Fjalar á
meðal þeirra
áhrifamestu
Á nýjum lista Nordic Business
Forum yfir áhrifamestu einstak
linga í viðskiptalífinu í Norður
Evrópu, 25 ára og yngri, er
Nökkvi Fjalar Orrason, fram
kvæmdastjóri Áttunnar og eig
andi CAISocial Media í 13. sæti.
Nökkvi er sonur Orra Páls
Ormarssonar, stjörnublaða
manns Morgunblaðsins og rit
höfundar, sem skrifaði með
al annars ævisögu Gunnars
Birgis sonar.
Á heimasíðu Nordic
Business Forum er farið yfir fer
il Nökkva frá því að hann hóf
að birta myndbönd á Facebook
og YouTube þar til hann stofn
aði Áttuna árið 2014, aðeins
tvítugur. Árið 2016 færði hann
starfsemina alfarið á netið og er
hann sagður krónprinsinn þar.