Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2018, Qupperneq 4
4 8. júní 2018FRÉTTIR
Beðið eftir fatalausum föstudögum
Svarthöfði er mikill áhugamað-ur um brjóst eins og margir aðrir karlmenn á miðjum aldri.
Svarthöfði kvartar ekki yfir að sjá
ber brjóst í sundi og sér ekkert að
því að konur marséri niður götur
berbrjósta. Svarthöfði reynir að vera
penn með áhuga sinn og starir ekki,
kemur ekki með athugasemdir og
man að þetta eru dætur, mæður og
systur að berjast gegn úr sér gengnu
og árþúsunda gömlu feðraveldi.
Þess vegna smellti Svarthöfði á frétt mbl.is í vikunni um að stelpurnar væru „drullu-
þreyttar á feðraveldinu“. Frétt sem
fjallar um doktorsverkefni í fé-
lagsfræði, mjög forvitnilegt allt
saman en Svarthöfði veit að hann
mun seint nenna að lesa ritgerðina
sjálfa. Fyrst þarf að klára Harry
Potter, Da Vinci Code og The
Secret.
Það sem truflaði Svarthöfða voru viðbrögð Sykurbergs við fréttinni. Allrasamskipta-
þjónustan Snjáldra hefur ákveðið
að túttur kvenfólks séu ekki við-
eigandi myndefni og fjarlægði því
frétt mbl.is vegna forsíðumyndar-
innar sem skartaði ungum
dömum í miðri #freethenipple-
-byltingu. Ekkert að því, meira að
segja einn ráðherra tók þátt í því á
sínum tíma og síðan þá gildir: vei
þeim sem dirfist að skammast yfir
geirvörtum á almannafæri. Við
sem þjóðfélag erum bara að bíða
eftir að þetta hætti að verða yfir-
leitt umræðuefni.
Í vikunni kom einnig fram að starfsmaður Seðlabankans hefði kvartað undan brjóstamynd
sem hékk á vegg inni í Svörtu-
loftum, þeirri stórgóðu fasteign.
Án þess að gera lítið úr upplif-
un starfsmannsins þá skýtur það
skökku við að sett sé spurningar-
merki við berbrjósta málverk. Þá
má jafnvel segja að hin ýmsu for-
pokuðu fyrir bæri hafi verið ár-
hundruðum á undan almúganum
að bera brjóst kvenna í gegnum
listaverk.
Það má jafnvel segja að þessi tvö mál kristalli þetta milli-bilsástand á milli #freethen-
ipple og framtíðarinnar þar sem
kyn skipta ekki máli. Annars vegar
hversu framar við Íslendingar
stöndum teprunum í hinum
stóra heimi og stóra spurningin
hvort vegi þyngra, nekt eða upp-
lifun einstaklings við að sjá nekt.
Svarthöfði getur engan veginn
myndað sér skoðun á þessu og
hyggst fara í felur þangað til sam-
félagið ákveður að taka upp „fata-
lausa föstudaga“.
Svarthöfði
Rækju-
kokteill
Jakobs
Þessi klassíski forréttur hefur
ekki verið í tísku undanfarin ár.
Hann er þó að ganga í endur-
nýjun lífdaga þessi dægrin,
sérstaklega í flottum boðum
í íslensku fjármálalífi. Það
þarf því enginn að segja af sér
þó að hann elski rækjukok-
teila. Fyrir nokkrum árum,
í viðtali við breska tímaritið
GQ, viðurkenndi einn þekkt-
asti matreiðslumaður heims,
Hestor Blumenthal, að honum
líkaði fátt betur en rækjukok-
teilar. Hér er uppskriftin sem
Blumen thal birti í blaðinu, með
þeirri einu undantekningu þó,
að við notum chili-tómatssósu í
stað hefðbundinnar tómatsósu.
Lífið er of stutt til að borða ekki
sjóðheitan mat.
Að lokum er rétt að taka
fram að það er algjörlega
nauðsynlegt að nota risarækjur
í þennan rétt.
Verði ykkur að góðu!
Hráefni (fyrir fjóra):
n 110 grömm af chili-tómatssósu
n 100 grömm mæjónes (heimagert er
langbest en Hellmans dugar)
n 1/4 úr teskeið af cayanne-pipar
n 12 dropar af Worcestershire-sósu
n 10 grömm af sítrónusafa
n 400 grömm eldaðar risarækjur
n Rifin iceberg-salatblöð eftir smekk
n heilt avókadó, skorið í teninga
n Salt og pipar
Aðferð:
Setjið tómatsósuna, mæjónesið, pip-
arinn og sítrónusafann í skál og hrærið
duglega saman. Bætið við salti og pipar
eftir smekk og hrærið. Dengið rækjunum
saman við. Leggið salatblöðin tættu
á botn fjögurra skála og setjið síðan
avókadóteningana ofan á. Skiptið
rækjunum jafnt í skálarnar.
Þ
etta hófst allt með einu poti,
eða réttar sagt Facebook-
-poti. Um ári síðar fæddist
íðilfögur stúlka og tveir
urðu að sex í kjölfarið. Þau Þórey
og Ómar Örn Magnússon hafa
verið kölluð „Costco-parið“ af vin-
um, ættingjum og víða hefur það
verið uppspretta margra brandara
hjá nánum hópi parsins.
Saga þeirra skötuhjúa hófst
í fyrrasumar en segja sögur að
Þórey hafi verið tilbúin til að gefast
upp á ástinni fyrir fullt og allt. Hún
var búin að vera einstæð á fimmta
ár þegar ástin „potaði“ að dyrum,
skömmu eftir að hún skildi eft-
ir líflega athugasemd í Facebook-
-grúppunni Keypt í Costco Ísl. –
Myndir og verð.
Ómar Örn, sem var einnig með-
limur hópsins, sá athugasemd
Þóreyjar og stóðst ekki mátið að
senda henni skilaboð með tilheyr-
andi „Facebook-poti“ og boði á
stefnumót, stefnumót sem Þórey
ætlaði alls ekki að þiggja í fyrstu.
Þórey reyndi að sannfæra sig
um að sleppa stefnumótinu og
vildi ómögulega eyða tíma sínum
með enn einni tilrauninni til þess
að finna hinn rétta. Hún lét þó til-
leiðast að lokum og sér ekki eftir
því í dag. Fyrsta stefnumót gekk
vonum framar og stóðust þau
ómögulega sjarma hvort annars.
Á þeim tíma átti Þórey tvö börn
en Ómar þrjú sjálfur. Í kjölfar
nokkurra rómantískra stefnumóta
var ljóst í hvað stefndi og í sumar-
lok voru þau búin að sameina hóp-
inn í eina stóra fjölskyldu. Samlífi
þeirra Ómars og Þóreyjar bar fljót-
lega ávöxt og var mikil gleði þegar
þau deildu tilkynningu um nýjan
erfingja með ættingjum og vinum.
Segja má að aðstandendur
parsins hafi ærst úr gleði þegar í
ljós kom að barnið var sett á sama
dag og verslunin fagnaði eins árs
opnunarafmæli, þann 23. maí
2018. Því benti allt til þess að krílið
yrði Costco-barn í orðsins fyllstu
merkingu. Tengingin við stór-
verslunina hélt lífi þegar vinkonur
Þóreyj ar héldu fyr ir hana barna-
boð eða „ba by s hower“, en þar
léku vörur og matvæli frá Costco
stórt hlutverk.
Örlagadísirnar voru þó með
aðrar áætlanir. Stúlkan lét bíða eft-
ir sér og spennan hjá stóru fjöl-
skyldunni magnaðist með hverj-
um deginum, ekki ósvipuð þeirri
eftirvæntingu sem lagðist yfir
landann þegar styttast fór í sjálfa
Costco-opnunina ári fyrr.
Tvær vikur liðu hjá og að lok-
um kom falleg og heilbrigð stúlka
í heiminn á sjómannadeginum.
Það þótti nýbökuðum föður stúlk-
unnar skemmtileg tilviljun í ljósi
þess að hann starfaði sjálfur í árar-
aðir sem sjómaður.
„Tilfinningin er náttúrlega
meiriháttar,“ segir Ómar Örn í sím-
anum nokkrum dögum eftir að
dóttir hans kom í heiminn.
„Hún er heilsuhraust og allt
gengur eins og í sögu. Við höfum öll
náð að hvílast vel og njóta þessara
dýrmætu stunda,“ segir Ómar sem
var nývaknaður þegar DV hafði
samband. Að hans sögn eru fjöl-
skyldumeðlimir himinlifandi með
nýju viðbótina í hópinn. n
„Costco-barnið“ fætt:
Tómas Valgeirsson
tomas@dv.is
„Hún er
heilsu-
hraust og allt
gengur eins
og í sögu
Lét bíða eftir sér og mætti
á sjómannadaginn