Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2018, Síða 6
6 8. júní 2018FRÉTTIR
Viltu kaupa fasteign
á spáni ?
Hafðu samband / S. Jón Bjarni & Jónas 555 0366
Masa international
býður þér í skoðunarferð
til Costa blanCa í júní á
29.900 kr.
þar seM drauMaeignina þína gæti
Verið að finna
A
nna Worthington De
Matos, sem er fædd og
uppalin í Brasilíu, kom í
heimsókn til íslenskrar
vinkonu sinnar í fyrra eftir að hafa
misst vinnuna sína í Bretlandi.
„Vinkonan lagði til að ég myndi
flytja hingað og ég ákvað að gera
það og hingað til er það besta
ákvörðun sem ég hef tekið,“ segir
Anna. Í dag starfar hún hjá Om-
nom súkkulaðigerðinni og vinnur
jafnframt að því að opna Reykjavík
Tool Library, verkfæraleigu sem
virkar eins og bókasafn. Söfnun
er á Karolinafund og lýkur henni
þann 12. júní næstkomandi.
„Ég fékk hugmyndina af því að
ég seldi öll verkfærin mín í Bret-
landi og ætlaði að kaupa mér ný
hér, en þau eru mun dýrari hér
en í Bretlandi. Vinir mínir komu
þá með þá hugmynd að ég myndi
opna verkfæraleigu,“ segir Anna.
Hún fór á námskeið fyrir konur
af erlendum uppruna sem haldið
var í Nýsköpunarmiðstöð Íslands
og þróaði hugmyndina áfram.
„Hugmyndin er bæði að bjóða
verkfæri til leigu í ýmist 3 eða 7
daga, gegn því að greiða
árgjald. Þetta virkar þá
bara eins og útleiga á
bókasafni, nema að
í stað þess að leigja
bækur þá ertu að
leigja verkfæri.
Einnig langar mig
til að hafa aðstöðu
fyrir fólk til að koma
og nota verkfæri á
staðnum hjá mér til
að búa til handverk og
slíkt,“ segir Anna. Húsnæði
er hins vegar ekki fundið enn
og bíður Anna eftir að söfnun-
inni ljúki með að finna húsnæði.
Ef einstaklingar eða fyrirtæki vilja
gefa verkfæri þá tekur Anna einnig
á móti þeim. n
Hin brasilíska Anna skapar súkkulaði á daginn
og safnar fyrir Verkfæraleigu á Karolina Fund„Að flytja til
Íslands er
besta ákvörðun
sem ég hef tekið
Ragna Gestsdóttir
ragna@dv.is
M
ánaðarleg laun tveggja
ráðherrabílastjóra,
nánar tiltekið bílstjóra
dómsmálaráðherra og
bílstjóra samgöngu- og sveitar-
stjórnaráðherra, námu allt að 937
þúsund krónum á mánuði, án
launatengdra gjalda, á síðasta ári.
Að teknu tilliti til launatengdra
gjalda má því fullyrða að ráð-
herrabílstjórarnir hafi verið með
hærri mánaðarlaun en alþingis-
menn í nokkrum tilvikum. Laun
alþingismanna eru rétt rúmlega
1,1 milljón á mánuði.
Þessar upplýsingar koma
fram í svari innanríkisráðuneyt-
isins við fyrirspurn frá Birni Leví
Gunnarssyni, þingmanni Pírata,
sem borin var fram í febrúarlok
2018. Björn Leví spurði öll ráðu-
neytin um þennan kostnað en
aðeins hafa svör borist frá inn-
anríkisráðuneytinu þrátt fyrir að
rúmir þrír mánuðir séu frá því að
fyrirspurnin var lögð fram.
Í svarinu sem Björn Leví fékk
frá ráðuneytinu má sjá að laun
bílstjóra ráðuneytisins eru mjög
breytileg. Þau sveiflast frá 721
þúsund krónum á mánuði, án
launatengdra gjalda, og upp í
937 þúsund krónur á mánuði.
Athygli vekur að laun bílstjór-
anna rjúka upp eftir að slitn-
aði upp úr ríkisstjórnarsamstarfi
Bjartrar framtíðar, Viðreisnar og
Sjálfstæðisflokksins í september
2017. Þannig voru meðallaun bíl-
stjóranna tveggja um 823 þúsund
krónur í ágúst 2017 en í septem-
bermánuði ruku þau upp í 932
þúsund krónur og síðan upp í
937 þúsund krónur í október. Þá
var kosningabaráttan í hámarki
og ráðherrarnir tveir greinilega
á fleygiferð. Launakostnaður bíl-
stjóranna lækkaði síðan hratt
eftir kosningar.
Þurfa ekki að halda akstursdagbók
Þá kemur ýmislegt athyglisvert
fram í svari ráðuneytisins. Til
dæmis kemur fram að ráðherrabíl-
arnir séu í eigu og rekstri ríkisins
og eigi að vera útbúnir sérstöku
öryggiskerfi og staðsetningarbún-
aði. Slíkri bifreið skuli ekið af sér-
stökum bílstjóra sem einnig sinnir
hlutverki öryggisvarðar hlutaðeig-
andi ráðherra. Þá segir í svarinu að
tilgangur þessarar starfsemi sé að
að veita ráðherrum aukið öryggi
og þjónustu er þeir sinna emb-
ættisskyldum sínum. Samkvæmt
heimildum DV er gerð krafa til
ráðherrabílstjóra um að þeir hafi
lokið sérstöku námskeiði hjá sér-
sveit ríkislögreglustjóra.
Þá er sérstaklega tiltekið í reglu-
gerð að ráðherrabifreiðin sé nýtt
til aksturs til og frá heimili ráð-
herra. Þá kemur einnig fram að
bílstjórarnir þurfi ekki að halda
akstursdagbók og því er engin leið
að kanna hvort verið sé að nýta
bifreiðina til að sinna embættis-
erindum eða einkaerindum. Björn
Leví hefur einnig spurst fyrir um
hvort ráðherrar greiði skatta af
þeim hlunnindum að fá ókeypis
akstur þegar einkaerindum ráð-
herra er sinnt. Fátt hefur verið um
svör. n
Ráðherrabílstjórar eru með
hærri laun en alþingismenn
n Þurfa ekki að halda akstursdagbók n Launakostnaður jókst hratt í kosningabaráttunni í fyrra
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is