Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2018, Síða 32
8. júní 2018KYNNINGARBLAÐVið þjóðveginn
SELASKOÐUN VIÐ HVAMMSTANGA:
Í návígi við stóran
hóp af forvitnum selum
Við siglum frá Hvammstanga og erum eingöngu inni á Miðfirði. Við erum svo heppin að hafa
selalátur hérna inni í firðinum og það
var forsendan fyrir því að þetta væri
hægt. Það hafa verið sveiflur í stofn-
stærð þessarar selafjölskyldu, þegar við
byrjuðum vorið 2010 voru þetta um 90
selir en þeir fóru smám saman niður í
um 60–70 en svo eru þeir komnir aftur
upp í um 90 núna,“ segir Eðvald Dan-
íelsson hjá fyrirtækinu Selasigling ehf. á
Hvammstanga.
Selasigling felur í sér skoðun á stórum
hópi sela í návígi, meðal annars ungum
selum, náttúruskoðun og fuglaskoðun,
en mikið fuglalíf er á svæðinu. „Hér
er mikið af æðarfugli, hér eru teista,
himbrimi, skarfur, lómur og svanur, og
lunda sjáum við oft svo eitthvað sé nefnt.
Selir halda sig nálægt ströndinni og sigl-
ingin tekur mið af því,“ segir Eðvald.
Selaskoðunin nýtur mikilla vinsælda
meðal erlendra ferðamanna sem lýsa
yfir hrifningu á upplifuninni á TripAdvisor
og fleiri slíkum síðum. Íslendingar eiga
hins vegar eftir að uppgötva töfra sela-
skoðunarinnar:
„Það er ríkjandi viðhorf hjá Íslending-
um að við getum alls staðar séð seli hér
og þurfum þess vegna ekki að borga fyrir
það. En það er ekki sambærilegt að sjá
einstaka sel einhvers staðar langt í burtu
og að komast í návígi við stórfjölskyldu af
selum og fá leiðsögn. Þessi árstími sem
nú fer í hönd er langskemmtilegastur
fyrir selaskoðun því nú eru kóparnir litlir
og þú getur horft á þá á spena eða að
leika sér í sjónum,“ segir Eðvald.
Farnar eru þrjár ferðir á dag með
bátnum Brimli og tekur hver ferð um
eina og hálfa klukkustund. Kostar hún
8.500 kr. fyrir fullorðna, 4.500 kr. fyrir 7
til 16 ára en er ókeypis fyrir börn 6 ára
og yngri.
Innifalið í hverri ferð er aðgöngumiði
í Selasetur Íslands sem er einstaklega
fræðandi og skemmtilegt safn, staðsett
við höfnina á Hvammstanga.
Að sögn Eðvalds er gott veður ávallt
heppilegt fyrir selaskoðun en sólskin
er ekki nauðsynlegt. „Selurinn er þó
líkur okkur mannfólkinu að því leyti að
hann elskar sólina og leggst flatur upp
í sólskinið. Alla jafna eru suðlægar áttir
heppilegar ef það rignir ekki mikið en
norðanáttin hér blæs hins vegar köldu
og þá er gott að klæða sig vel.“
Ljóst er að selaskoðun við Hvamms-
tanga er mikil upplifun sem innlendir
ferðamenn þurfa að uppgötva og eiga
þannig ógleymanlega stund. Selirnir eru
gjarnan forvitnir og því oft ófeimnir við
að sýna sig vel fyrir ferðamönnunum.
Selasigling ehf. er með lögheimili
að Höfðabraut 13, Hvammstanga, en
nánari upplýsingar og bókanir eru á
vefsíðunni sealwatching.is. Miðasala og
upplýsingar í Selasetri Íslands við höfn-
ina á Hvammstanga.