Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2018, Page 33
8. júní 2018 KYNNINGARBLAÐ Við þjóðveginn
Svona er peysan þín búin til
KIDKA er framsækið fram-leiðslufyrirtæki prjónavara sem hvílir á gömlum grunni. Uppruni
fyrirtækisins er rakinn til Prjóna- og
saumastofunnar sem stofnuð var á
Hvammstanga árið 1972. Þau Irina
Kamp og Kristinn Karlsson keyptu
Prjóna- og saumastofuna árið 2008
og breyttu nafninu í KIDKA.
KIDKA framleiðir sína eigin vörulínu
úr íslenskri ull, hágæða vörur, fallegar
og þægilegar flíkur sem fylgja alltaf
nýjustu tískustraumum. Framleiðslan
fer eingöngu fram á Íslandi, í prjóna-
verksmiðju KIDKA að Höfðabraut 3,
Hvammstanga.
Hönnunin á vörunum er mjög fjöl-
breytt. Finna má sígilda liti og norræn
mynstur ásamt nýjustu tískustraum-
um ullarframleiðslunnar. Hvergi á
framleiðslustiginu fer ullin úr landi og
því er um að ræða alíslenskar vörur
– auk þess sem framleiðslan skapar
dýrmæt störf í Húnaþingi.
Ullarvörurnar frá KIDKA eru prjón-
aðar í prjónavélum. Ullin er þvegin,
burstuð og meðhöndluð með gufu
sem gerir hana mýkri og léttari en
ullina sem er notuð í handprjónaðar
ullarvörur. Ullin heldur samt sem áður
sínum mikilvægasta eiginleika, það er
að halda hita á líkamanum allt árið.
Vörurnar frá KIDKA má finna í
verslunum víða um land. Einnig rekur
KIDKA öfluga vefverslun á síðunni
kidka.com. Enn fremur er verslun í
höfuðstöðvum KIDKA að Höfðabraut
34, Hvammstanga. Þangað er gam-
an að koma og skoða vörurnar auk
þess sem hægt er að fylgjast með
framleiðsluferli varanna í verksmiðj-
unni. Þannig getur þú til dæmis séð
hvernig peysan þín verður til. Heim-
sókn í KIDKA er því prýðilegur hluti af
ferð um héraðið.
KIDKA – NÆSTUM HÁLF ÖLD AF PRJÓNASKAP:
LANGAFIT LAUGARBAKKA:
Ógleymanlegt handverkshús
Þeir sem eiga leið um Húnaþing vestra í sumar ættu endilega að koma við á Laugarbakka og líta inn í
Handverkshúsið Löngufit. Það er upplifun
sem margir eru þakklátir fyrir og sjást þess
merki í gestabók staðarins. Þar hafa meðal
annars erlendir gestir skrifað hástemmd-
ar lýsingar af upplifun sinni. Hér eru örfá
dæmi: Dásamlegur staður! – Svo glöð að
við stoppuðum! – Svo frábær upplifun! Svo
falleg búð! – Fallegasti staður sem ég hef
séð. Takk fyrir gestrisnina.
„Þetta er áttunda árið okkar en þetta
byrjaði í smáum stíl, við vorum um tíu
manns í upphafi sem vorum að selja okkar
handverk. Síðan hefur þetta undið hressi-
lega upp á sig og ætli ég sé ekki núna
með vörur frá 70–80 manns víðs vegar
af landinu til sölu hér,“ segir Regína Ólína
Þórarinsdóttir, sem rekur Handverkshúsið
Löngufit.
„Þetta eru mikið til prjónavörur – peysur,
vettlingar, húfur og sokkar, en einnig ýmis-
legt annað handverk, til dæmis smíðis-
gripir, sultur, jurtate, kex og margt fleira.
Þetta er sitt lítið af hverju og hér ægir öllu
saman,“ segir Regína.
Handverkshúsið er í senn safn og sölu-
búð. Hér má kaupa gagnlega og fallega
hluti en líka bara skoða, því ýmsir gamlir
hlutir og skemmtilegt dót er hér til sýnis en
ekki sölu, til dæmis gamlar og nýjar flöskur,
könnur og kirnur. Enginn aðgangseyrir er
að staðnum.
Jafnframt þessu er í Handverkshúsinu
Löngufit dálítið kaffihús þar sem alltaf má
ganga að kaffisopa og nýbökuðum vöfflum
vísum og stundum eru kökur í boði.
Gistiheimili er einnig rekið á staðnum
með svefnplássi fyrir 12 manns og eru það
aðallega erlendir ferðamenn sem nýta
sér gistinguna. Bæði erlendir ferðamenn
og Íslendingar gera sér hins vegar ferð í
Handverkshúsið til að skoða og njóta og
gera góð kaup. Það er upplifun sem enginn
verður svikinn af og sjálf segir Regína að
það sé afar skemmtilegt starf að reka
Handverkshúsið Löngufit sem gleður augu
og anda svo margra ferðalanga auk þess
að koma á framfæri prýðilegu handverki
handlaginna og listfengra landsmanna.
Nánari upplýsingar á Facebook-síðunni
Langafit Handverkshús.