Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2018, Side 34
8. júní 2018KYNNINGARBLAÐVið þjóðveginn
HÓTEL LAUGARBAKKI OG VEITINGASTAÐURINN BAKKI:
Miðja vegu milli
Reykjavíkur og Akureyrar
Þetta var umfangsmikið, við vorum með stóran hóp iðnaðarmanna úr héraðinu og það var
unnið stanslaust allan veturinn frá
morgni til kvölds til að geta opnað í
maí. En þetta gekk, við opnuðum ekki
allt húsið þarna um vorið heldur aðal
bygginguna, en um mitt sumar 2016
opnuðum við neðri hæðina í gamla
skólahúsinu og í apríl 2017 kláruðum
við að taka öll húsin í notkun,“ segir
Hildur Ýr Arnarsdóttir, hótelstjóri að
Hótel Laugarbakka. Hún og eigin
maður hennar fóru fyrir kaupum á
gamla héraðsskólanum að Laugar
bakka í Miðfirði og opnuðu þar hótel
fyrir réttum tveimur árum, eða í maí
2016.
Hótel Laugarbakki er þriggja
stjörnu hótel með 56 herbergi sem öll
eru með baði, sjónvarpi, hárþurrku,
baðvörum, sloppum og mörgu fleiru.
Nokkur herbergi eru fyrir þrjá eða
fleiri en sífellt fleiri nýta sér þann kost.
Þessi stærri herbergi henta vel fyrir
fjölskyldur en líka vini sem vilja spara
sér gistikostnað, til dæmis tvö vina
pör.
Hótel Laugarbakki er afskaplega
vel staðsett í náttúrufegurð Mið
fjarðar með Hvítserk, Kolugljúfur og
Borgarvirki í kring. Þetta er nákvæm
lega miðja vegu milli Reykjavíkur og
Akureyrar og akstursvegalengdin
er rétt um 200 kílómetrar frá hvor
um stað. „Hér er mikil uppbygging
og fólk er að uppgötva þetta svæði,
Suðurlandið er að miklu leyti mettað
en hingað er spennandi að koma því
það er svo mikið líf hérna í Húnaþingi,“
segir Hildur.
Meirihluti gesta á Hótel Laugar
bakka yfir sumartímann er erlendir
ferðamenn en Íslendingar gista meira
á öðrum tímum, til dæmis um helg
ar, á haustin og veturna. „Við erum
með tilboðspakka á haustin sem
henta til dæmis vel hjónum og pörum,
þar fléttast inn sú dagskrá sem við
erum með hér hverju sinni. Til dæmis
erum við með villibráðarhlaðborð í
lok október sem er afar vinsælt og
jólahlaðborðin taka svo við lengra inn
í haustið. Við fáum líka hingað lista
menn úr Reykjavík, höfum til dæmis
verið með Ellen og KK, og svo eru
jólatónleikar í desember. Svo eru hér
heitir pottar og útisturtur sem gera
þetta að huggulegri gistingu fyrir hjón
og pör.“
Veitingastaðurinn Bakki
Afbragðsgóður veitingastaður er
rekinn að Hótel Laugarbakka og er
hann ekki síður fyrir ferðalanga sem
eiga leið um en gesti hótelsins. „Ég
er hér með tvo frábæra kokka, hann
Ingvar Óla yfirmatreiðslumann og svo
hana Svövu Karen. Við erum mikið
með mat út héraðinu, fáum allt okkar
lambakjöt úr Húnaþingi, frá slátur
húsinu á Hvammstanga; á sumrin
fáum við jarðarber úr gróðurhúsun
um hér við hliðina; gæsakjötið er hér
af svæðinu enda mikið fuglalíf hér;
silungur og þorskur eru líka héðan,“
segir Hildur en mikið er lagt upp úr
ferskleika hráefnisins sem unnið er úr
á veitingastaðnum.
„Við leggjum líka mikið upp úr því
að stilla verðlagi í hóf á veitinga
staðnum,“ segir Hildur en segja má
að verðlagið sé einn af þeim kostum
Bakka sem gera hann að fjölskyldu
vænum veitingastað.
Frábær aðstaða fyrir fundi
og ráðstefnur
„Við erum með frábæra aðstöðu
fyrir fundi og ráðstefnur sem fyrir
tæki nýta sér mikið. Grettissalurinn
okkar tekur 250 manns í sæti og við
bjóðum upp á mjög fínan fundar
búnað. Síðan erum við líka með
minni fundarherbergi, meðal annars
Ásdísarstofu. Þetta hentar bæði fyrir
stóra viðburði og litla fundi. Fyrirtæki
sem eru með útibú bæði á Akureyri
og Reykjavík hafa nýtt sér þetta mikið
enda liggur staðurinn nákvæmlega
miðja vegu milli Akureyrar og Reykja
víkur.“
Fundarsalirnir bera nöfn Grettis
sterka Ásmundssonar og Ásdísar
móður hans en Grettir er fæddur
skammt frá Hótel Laugarbakka. Þau
mæðgin eru ekki einu sögufrægu
persónurnar á svæðinu því á Illuga
stöðum, þarna skammt frá, bjuggu
þau Agnes Magnúsdóttir og Natan
Ketilsson, aðalpersónur eins fræg
asta sakamáls Íslandssögunnar, sem
gerð hafa verið góð skil í hinni frægu
skáldsögu eftir Hannah Kent, Náðar
stund. Erlent kvikmyndatökulið er
væntanlegt á svæðið sumarið 2019
vegna kvikmyndunar á skáldsögunni.
Nánari upplýsingar og bókanir eru
á vefsíðunni hotellaugarbakki.is
Sjá einnig Facebooksíðu veitinga
staðarins Bakki.