Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2018, Blaðsíða 41
8. júní 2018 KYNNINGARBLAÐ Við þjóðveginn
Afþreying og veitingar
við Ásgeirsfossa
Magnús Ásgeir Elíasson er ábúandi að Stóru-Ásgeirsá í Víðidal, skammt frá Hvamms-
tanga. Stóra-Ásgeirsá er að stofni
til sauðfjárbú en þar sem lítið er upp
úr sauðfjárræktinni að hafa hefur
Magnús verið að þróa afþreyingu og
gistingu fyrir ferðamenn á staðnum
auk þess sem hann stundar hrossa-
rækt. Er hann með fjögur herbergi
í gistingu með morgunmat. Heitur
pottur er úti rétt uppi við hina fögru
Ásgeirsfossa sem gestir kunna afar
vel að meta.
Húsdýragarður er á staðnum þar
sem gefur að líta öll helstu íslensku
húsdýrin, geitur, ketti, hunda, end-
ur og kindur. Geiturnar vekja jafnan
mikla kátínu barna sem koma að
Stóru-Ásgeirsá, enda afskaplega
kátar og mannelskar.
Þessa dagana er Magnús að
leggja síðustu hönd á aðstöðu fyrir
veitingasölu og hefur hann fengið
vínveitingaleyfi. Frá og með miðjum
júní verður hægt að fá sér bjór, léttvín
og kaffi að Stóru-Ásgeirsá og aðrar
léttar veitingar.
Ljóst er að Stóra-Ásgeirsá er
spennandi áningarstaður fyrir þá
sem verða á ferðinni á norður- eða
suðurleiðinni í sumar enda fjölbreytt
afþreying í boði á staðnum auk þess
sem gestir geta notið mikillar nátt-
úrufegurðar.
Hestaleiga, húsdýragarður og
veitingasala er opnuð upp úr hádegi
og er opið fram undir kvöld. Nánari
upplýsingar eru á Facebook-síðunni
Stóra-Ásgeirsá þar sem einnig er
hægt að panta gistingu með skila-
boðum. Einnig eru upplýsingar veittar
í síma 866-4954.
Þess má geta að Magnús er mikill
söngmaður og gaf fyrir nokkrum
árum út skemmtilegan geisladisk sem
ber heitið Legg af stað. Þar er meðal
annars að finna lagið Hófasprett sem
finna má á myndbandarásinni Youtu-
be. Hver veit nema Magnús taki lagið
fyrir gesti á barnum að Stóru-Ásgeirs
á í sumar.
STÓRA-ÁSGEIRSÁ: