Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2018, Blaðsíða 44
44 FÓLK 8. júní 2018
Sigmundur
Davíð og
Bjarni Ben
Svör höfðu ekki
borist frá Sigmundi
og Bjarna áður en
blaðið fór í prentun.
Teikn eru á lofti um að
stjórnmálaleiðtogarnir muni
styðja lið Panama með ráðum
og dáð ef íslenska liðið nær sér
ekki á flug. Það hefur þó
ekki fengist
staðfest.
Bergþór Pálsson
„Ég held alltaf með Þýskalandi,
nema þegar Norðurlanda-
þjóðirnar keppa. Hef svo sem
enga skýringu nema að ég
bjó í Þýskalandi í nokkur ár.
Reyndar hef ég búið í nokkrum
öðrum löndum, en þetta er
bara alveg óvart. Maður bara
fer á básinn, alveg eins og
fólk gerir í ensku knattspyrn-
unni. Ég skil til dæmis ekki
hvers vegna sumir halda með
Arsenal, nei grín.“
L
okakeppni heimsmeistaramótsins
í fótbolta er stærsta og vinsælasta
íþróttamót heims. Í gegnum
árin höfum við Íslendingar
þurft að horfa á viðureignir
stóru þjóðanna og þurft að
velja okkur landslið annarra
þjóða til þess að styðja og
halda upp á. Sumir hrífast
af leikmönnum ákveðinna
þjóða en aðrir velja sér
landslið út frá einhvers kon-
ar tengingu við landið, til
dæmis vegna fyrri búsetu.
Eins og flestir vita geta
Íslendingar fylgst með sínu
eigin liði á HM í ár en þó
er alltaf gott að hafa varaáætl-
un ef allt fer á versta veg. DV fór
því á stúfana og spurði þekkta Ís-
lendinga hvað væri lið nr. 2 á HM í
Rússlandi. n
á HM hjá þjóðþekktum
Íslendingum
Lið númer
Yrsa Sigurðardóttir „Ég hef ákveðið að halda með Úrúg-
væ, eingöngu vegna þess að það heldur ábyggilega enginn með þeim nema
innfæddir. Það fer ekkert sérstaklega mikið fyrir þeim í það minnsta. Ef við
vinnum ekki er best að Úrúgvæ vinni. Egyptaland má svo vera í öðru sæti.“
Eliza Reid
„Þar sem hvorki
Kanada né Skotland
komust í lokakeppn-
ina þá er of erfitt fyrir
mig að velja annað
lið. Það er bara Ísland
alla leið fyrir mig.“
Máni í
Harmageddon
„England. Íslendingar elska
enskan fótbolta meira en
allt. Ég bara skil ekki landa
mína sem styðja ekki enska
landsliðið,“ segir Máni.
Sema
Erla
Serdar
„Fyrir utan
Ísland held ég
auðvitað alltaf
með Tyrklandi
í boltanum, en
þar sem þeir eru
ekki með á HM
í sumar verð ég
að segja að auk
Íslands ætla
ég að halda
með Portúgal
eins og ég hef
gert alla tíð
síðan Luis Figo
var upp á sitt
besta.“