Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.2018, Page 45
FÓLK 458. júní 2018
Jói Fel „Ég hef alltaf haldið með
Englandi á stórmótum. Þar þekkir maður
flesta leikmenn og svo hefur mað-
ur fylgst vel með enska
boltanum lengi,“
segir Jói.
Edda Björgvins
„Er HM einhver verslun?“
Logi
Einarsson
„Argentína. Ég hef alltaf verið
hrifinn af skapandi suðuramerískum
leikstíl, þar sem einstaklingar fá
að njóta sín og brydda upp á hinu
óvænta. Þá eru þeir líka harðir í
horn að taka og geta spilað
fast þegar við á.“
Stefán Pálsson
„Úrúgvæ hefur alltaf verið
mitt lið,“ segir Stefán. Hann
segir ástæðuna að einhverju
leyti vera sagnfræðilega
og bendir á að Úrúgvæ
hafi borið sigur úr býtum
á fyrsta heimsmeistara-
mótinu árið 1930. Þá
heilli hann einnig að
Úrúgvæ sé smáþjóð,
enda aðeins um þrjár
milljónir íbúa þar í landi. „Sé
horft til þess þá eru þeir mesta
fótboltaþjóð heims. Þeir rúlla okkur
Íslendingum upp þegar kemur að
öllum höfðatölum. Þeir eiga frábæra
leikmenn sem eru prímadonnur í sínum
félagsliðum en þegar þeir koma saman þá
pakka þeir í vörn og berjast sem eitt lið.
Þetta er íslenska liðið með hæfileika,“
segir sagnfræðingurinn.
Sigríður
Björk Guð-
jónsdóttir
„Ég get ekki gert
upp á milli Svía eða
Dana. Ég bjó í báðum
löndum og þykir
vænt um þau.“
Siggi Hlö „Ítalirnir hafa alltaf verið mínir menn en þeir þurftu að
sitja eftir með sárt ennið í ár,“ segir útvarpsmaðurinn góðkunni. Af þeim
sökum vonar Siggi að Englendingar fari að láta að sér kveða enda sé
hann mikill áhugamaður um enska boltann. „Englendingar verða mitt lið
númer tvö. Það væri samt gaman að slá þá út aftur,“ segir Siggi og hlær.
Dóra Björt Guðjónsdóttir „Perú. Því mér
þykir vænt um landið. Einu sinni fór ég til Perú í bakpokaferðalagi um
Suður-Ameríku og smakkaði Ceviche í fyrsta sinn, perúskan fiskrétt. Það
er ekki frásögur færandi nema vegna þess að meðan á þessari dásamlegu
máltíð stóð, sem var alveg svakalega góð, slysaðist ég til þess að gleypa
risa chili-flykki í nánast heilum bita, enda hélt ég að þar væri hálfslöpp
tómatsneið á ferð. Allt starfsfólkið kom askvaðandi til að reyna að bjarga
málunum og hjálpa mér. Það fór að leka úr öllum götum, mér leið eins og
allur líkaminn væri að brenna upp og það eina sem hjálpaði var að skella í
kjaftinn nokkrum skeiðum af strásykri. En þetta er eftirminnilegt.“
Gústaf
Níelsson
„Mitt lið númer
tvö á HM er Þýska-
land. Þar skortir
ekki sigurvilja og
seiglu.“